Vefrit um pólitík og mannlíf

3. september 2010
Gamlar steinsmugur

Misskildir sjálfstæðismenn

14.6.2010 18:18 Steinsmugan

tre2

Sjálfstæðismenn njóta ekki sannmælis í umhverfismálum að mati Steinsmugunnar. Undir hrjúfu yfirborði kapítalismans slær milt hjarta sem finnur til með móður jörð. Þannig sá Davíð ákaflega mikið eftir trjánum sem fór í að prenta endurreisnarskýrslu flokksins og gerði það að umtalsefni á landsfundi.

Arftaki hans á formannsstóli sagði líka á þingi í dag að það væri glapræði að henda vatnalögunum frá 2006 í ruslafötuna. Sjálfsagt líka út af trjánum

Sjálfstæðismenn eru líka sannir jafnaðarmenn en þeir njóta ekki sannmælis í því frekar en öðru.  Þannig tóku þeir út orðið einstaklingsfrelsi úr stjórnmálaályktun flokksins á flokksráðsfundi í Stapa í apríl.

Þar stóð áður:

Að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum. „

Nú stendur:

 „Grunnstef Sjálfstæðisflokksins byggist á víðsýnni umbótastefnu á grundvelli jafnréttis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta að leiðarljósi.“

Steinsmugan velti fyrir sér í hverju jafnaðarmennska Sjálfstæðisflokksins væri  fólgin? Og hún komst að þeirri niðurstöðu að í kjölfar útkomu Rannsóknarskýrslu Alþingis hefði flokknum þótt við hæfi að allir tækju jafna ábyrgð á bankahruninu óháð því sem á undan væri gengið.

Slík jafnaðarmennska gerir í raun allar frekari rannsóknir óþarfar og er því fjarskalega umhverfisvæn í sjálfu sé.

Ekki síst með tilliti til trjánna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Aðsendar greinar

GunnarSkuli

Pakistan-í hvoru liðinu ert þú - 2/9/10 Aðsendar greinar

Er það sjálfgefið að endurgreiða öll lán án tillits til afleiðinganna. Í tilfelli Pakistana erum við að tala um dauðsföll venjulegra manneskja sem eiga sína framtíðardrauma eins og ég og þú. Eiga lánadrottnar alltaf að fá sitt en almenningur millifærir fé frá þeim sem eru aflögufærir til þeirra sem eru í neyð?

Lesa meira
 

Frá ritstjórn

thora-kristin

Andarteppusamfélagið - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Það þykir ekki tiltökumál lengur hvort ríkisstjórnin sé að springa, það er meira svona eins og að spyrja, hvað er í matinn? Og það þykir heldur ekki tiltökumál að krefjast opinberrar afsökunarbeiðni þótt sjaldnast fylgir hugur máli. Maður fær á tilfinninguna að menn yrðu ánægðir með að fá hvaða afsökunarbeiðni sem er, að ráðherrann viðurkenndi að hafa ekki burstað í sér tennurnar um morguninn eða gleymt að borga í stæði.

Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica