Vefrit um pólitík og mannlíf

9. september 2010
Gamlar steinsmugur

Við erum svo sérstök

7.6.2010 9:10 Steinsmugan

steinsmuga030610

Auglýsingar og markaðsmál eru merkilegt fyrirbæri og Steinsmugan verður að játa að stundum hitta auglýsingar í mark án þess að boðskapurinn blasi við vegna þess að undirmeðvitundin sér um að geta í eyðurnar..

Sjöhundruð milljónir fara í auglýsingaátak til að sefa reiði og ótta útlendinga eftir að við sendum þeim öskuský með aðstoð úr neðra. Núna gefa illkvittnir markaðsmenn í skyn að auglýsingaátakið sem er myndband af hressum og kátum Íslendingum að hoppa við frumskógartónlist á hinum og þessum stöðum sé ekkert annað ruslpóstur og í versta falli geti borist í hann tölvuvírus.

Flugleiðir eru með auglýsingaherferð um borð í vélunum sem gengur meðal annars út á að þótt náttúra Íslands sé stórbrotin, landslagið engu líkt og fegurðin ólýsanleg sé það nú samt sem áður merkilegast við Ísland, hvað við séum lítil og skrítin, til dæmis sé forsætisráðherrann í símaskránni og meirihlutinn trúi á álfa.

Eitt af sérkennum Íslands og Íslendinga er samt innihaldið í sjálfum auglýsingunum, þetta barnalega og heimóttarlega mont og skrum, þessi löngun til að vera krútt, þessi bjargfasta trú á að við séum svo sérstök að umheimurinn hljóti að falla í stafi.

Ísland er í samfélagi þjóðanna eins og krakki sem öllum finnst ofsalega skemmtilegur og sjarmerandi þar til hann hefur upp raust sína og fer að útlista hvað hann er skemmtilegur og sjarmerandi, Þá langar mann í versta falli til að rassskella krakkann en í besta falli til að troða puttunum í eyrun.

Auglýsingu Flugleiða er beint til útlendinga en undirmeðvitund Steinsmugunnar réði engu að síður dulmál hennar eins og hún hljómar í eyrum Íslendinga.

Íslensk náttúra er stórbrotin, fegurðin engu lík og landslagið ólýsanlegt. Samt sem áður er það merkilegast við Ísland að Íslendingum er alveg sama og þeir eru til í að selja þetta allt hæstbjóðanda. Meirihlutinn er afar fégjarn og auðtrúa. Þeir sem vilja kaupa geta hringt í forsætisráðherrann, hann er í símaskránni.

 

 

Senda grein

Athugasemdir (1)

  1. Ragnheiður skrifar:

    Úff já. Þegar maður sér þessar auglýsingar skríður aulahrollurinn niður eftir bakinu á manni. Af hverju í ósköpunum höldum við að það sé vænlegt til árangurs að auglýsa Íslendinga sem einhverja krúttköggla. Heimskulegt.

    8.6.2010, kl. 15:21 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Aðsendar greinar

jakobina

Alþjóðahvítflibbaglæpamiðstöðin - 6/9/10 Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Stjórnarskráin þarf að tryggja lýðræði og vinna gegn valdi fjármagnsins. Atburðarrás síðastliðins árs bendir til þess að stjórnmálaforystunni sé fyrirmunað að vinna að samfélagsumbótum.

Lesa meira
 

Frá ritstjórn

thora-kristin

Jóhanna og Jenis av Rana - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Lítil frétt um að bókstafstrúaður stjórnmálamaður, Jenis av Rana formaður Miðflokksins í Færeyjum vilji ekki sitja til borðs með Jóhönnu Sigurðardóttur og Jónínu Leósdóttur eiginkonu hennar af því að nærvera þeirra er honum ögrun, er stór frétt því hún vekur upp hugsanir um alla þá sem hafa verið settir hjá í færeysku samfélagi fyrir tilverknað karla eins og hans.

Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica