Milljón prósent formaður
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins er alvörukall sem lætur engar þvinganir á sig fá og hann er líka toppstærðfræðingur að skapi steinsmugunnar. Nú er hann tilbúinn í þingkosningar eftir að hafa lesið þá ánægjulegu niðurstöðu úr þjóðaratkvæðagreiðslu helgarinnar að 93 prósent þjóðarinnar hafi lýst vantrausti á ríkisstjórnina. „Ég öfunda ekki ríkisstjórn með falleinkunn frá 93 prósentum þjóðarinnar,“ sagði Bjarni á Alþingi í dag og steinsmugan er hjartanlega sammála. Og formaður Sjálfstæðisflokksins er greinilega, með sömu reikningsaðferðum, búinn að reikna út að hann og Sjálfstæðisflokkurinn hafi meira en 100 prósent þjóðarinnar á bak við sig. Forsendur útreikninganna eru í anda bankaútrásarinnar. Að 93 prósent þjóðarinnar hafi gefið ríkisstjórn falleinkunn, þegar aðeins 63 prósent mættu á kjörstað, er létt og kátt eins og útreikningar banka og útrásarpilta um endalausan hagvöxt, endalausan gróða og endalausan aðgang að spilapeningum. Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn er líka endalaus. Hann er 2007 prósent.

