Vefrit um pólitík og mannlíf

30. júlí 2010
Steinsmugan

Innheimtuþjónusta SUS

3.3.2010 12:16 Steinsmugan

Reikningur SUS til Íslendingar

,,Fremsti fréttaskýringavefur landsins," AMX heldur úti dálki, þar sem ýmsir fuglar troða reglulega upp, Steinsmugunni og landsmönnum öllum til ómældrar ánægju. Nýjasta útspil spéfuglanna segir frá uppákomu á vegum Sambands ungra sjálfstæðismanna – en fréttir úr þeim afkima þjóðlífsins tryggja þeim sem á hlýða nánast undantekningalaust dágóða hláturroku.

Hinum hugvitsama formanni SUS, Ólafi Erni Níelssyni, datt nefnilega í hug að hrinda í framkvæmd metnaðarfullu einkaframtaki – eins og ungra sjálfstæðismanna er von og vísa. Ólafur Örn býðst til að senda sjálfum sér og Íslendingum öllum reikning upp á 2,2 milljónir króna til að gera upp Icesaveskuldina við bresk og hollensk stjórnvöld. Steinsmugunni þykir formaðurinn knái ganga vasklega til verks með þessu – reyndar heldur of vasklega, reikningurinn er augljóslega allt of hár, en þeir kunna að skrifa reikninga í Valhöll og senda þá á þjóðina.

Margoft hefur komið fram það mat Seðlabanka Íslands, og reyndar fleiri matsaðila, að skuldbinding Íslands verður um 200 milljarðar króna árið 2016, þegar ríkisábyrgðin vegna fyrirliggjandi Icesavesamnings tekur gildi. Þessi útreikningur miðast við það mat skilanefndar Landsbanka Íslands að eignir þrotabús hans standi undir 90% af höfuðstólnum. Matið er auðvitað háð óvissu en svo virðist sem allir stjórnmálaflokkar samþykki það, enda hafa þeir nú í nær þrjár vikur reynt að sannfæra Breta og Hollendinga um að það standist. Sé þessum 200 milljörðum deilt á 320 þúsund íbúa Íslands ætti hver að fá reikning upp á 625 þúsund krónur (um 6500 krónur á mánuði í 8 ár). Þessi reikningur gæti þó lækkað enn frekar því Bretar og Hollendingar hafa nú þegar boðið Íslendingum betri samning sem myndi lækka reikninginn í um 375 þúsund krónur (4000 kr./mán.). Undanfarna daga hafa síðan borist fréttir af því að samninganefnd Íslands væri mögulega að landa samningi sem myndi lækka reikninginn enn frekar, jafnvel niður í 250 þúsund krónur (2600 kr./mán.).

Steinsmugunni er alveg ljóst hvort formaður SUS hafi farið af stað í þennan leiðangur til að benda á hversu há Icesaveskuldin er, eða hvort honum þyki þetta bara temmilegur tékki að skrifa. Það er nefnilega með útgjöld eins og svo margt annað að þau eru afstæð – og ákveðnir smáfuglar hvísluðu því að formannssæti SUS hefði kostað nærri þeirri okurupphæð sem Ólafur Örn vill núna leggja á almenning.

En það var náttúrulega með reikninginn fyrir formannstólinn, að hann var settur í innheimtu hjá „stuðningsmönnum“ – þannig að Ólafi Erni er tamt að senda út greiðsluseðla.

Senda grein


Aðsendar greinar

Jon-thor-olafsson

Naflastrengurinn á Gylfa. - 24/6/10 Jón Þór Ólafsson

Nú í dag þegar Gylfi á að vera að gæta hagsmuna almennings er manni spurn hvað Gylfi gerir þegar hagsmunir almennings og hagsmunir fjárfesta fara ekki saman?

Lesa meira
 

Frá ritstjórn

thora-kristin

Til Evrópu með hvorki né - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Samfylkingin hefur skilgreint sig sem Evrópuflokk og reiðir sig nú algerlega á VG til að halda aðildarviðræðum við ESB til streitu. Það ætti að setja Vinstri græn í nýja stöðu í stjórnarsamstarfinu og greiða fyrir róttækari áherslum flokksins.

Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica