Vefrit um pólitík og mannlíf

3. september 2010

Gamlar steinsmugur

Árni Sigfússon

2.9.2010 23:51 Steinsmugan : Svartnætti

Steinsmugan hlakkar ákaflega til að fara á ljósanótt í Reykjanesbæ. Stóra spurningin er hvort  Árni Sigfússon hafi borgað rafmagnsreikninginn eða hvort Magma Energy slái út rafmagninu?  Nei, ætli fyrirtækið sýni bæjarstjóranum ekki góðvild í ljósi þess hversu vel vináttan við hann hefur gefið af sér? Ekki þar fyrir að bærinn þarf að spara og hefur kannski ekki efni á allri þessari ljósadýrð?

Nei en það er alltaf hægt að slá út götuljósin á umferðargötum bæjarins í vetur eða kenna við grútarlampa í grunnskólunum þegar mesta fjölmiðlafárið vegna fjárhagsstöðu bæjarins er gengið yfir. En ætti ekki Árni að slökkva öll þessi ljós og spara rafmagnið fyrir nýja álverið? Þar er komin veigamikil og karlmannleg ástæða til að snúa dæminu við. Árni er maður ráðagóður og gæti markaðssett ljósahátíðina upp á nýtt. Steinsmugan stingur upp á hátíðinni Svartnætti í Reykjanesbæ. Höldumst í hendur og segjum hvert öðru draugasögur.

Lesa meira
 
SigmundurDavid

29.8.2010 1:09 Steinsmugan : Landinn rís!

Eitthvað hefur Gevalia- kaffið hjá sérstökum saksóknara farið illa í Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings en hann fer hörðum orðum um gestgjafa sinn. Sigurður vill að opinber rannsókn fari fram á vinnulagi saksóknarans. Hann segir rannsókn hans bera vott um óskiljanlegan yfirgang, ofbeldi og valdníðslu.

Steinsmugan fagnar þeirri rannsókn og hvetur sérstakan Sigurð til að standa mynduglega að henni. Flytja má heim fé frá aflandseyjum til að standa straum af kostnaði og nefndina mætti skipa af sérstöku trúnaðarráði útrásarvíkinga. Fjölmiðlar munu örugglega gera henni góð skil og hver veit nema Sheik Al Thani geti séð um samskipti við þá.

Að sama skapi fór hljóðlátur sigurhrollur um Steinsmuguna þegar Indefence samtökin tóku við frelsisverðlaunum Kjartans Gunnarssonar í Valhöll.

Landinn er loks að rísa!

Lesa meira
 
ziggi

18.8.2010 19:21 Steinsmugan : Sérstakur Sigurður hittir Óla spes

Sigurður Einarsson hefur fallist á að koma til Íslands ef alþjóðleg handtökuskipun á hendur honum verður felld niður og hann getur komið til yfirheyrslunnar eins og frjáls maður. Ólafur Hauksson sérstakur saksóknari féllst ljúfmannlega á þetta enda ekki við öðru að búast þar sem Sigurður er mjög sérstakur maður.

Steinsmugunni er minnisstætt að Sigurður lét ekki ná í sig meðan handtökufárið í kringum Kaupþing geysaði enda líkaði honum ekki andinn í aðgerðum lögreglunnar.

Sérstakur saksóknari hefur nú tekið sig á.

Steinsmugan vonar bara að það verði ekki einhver rauðhærður öryrki að þvælast fyrir með mótmælaspjöld og henda brauði þegar Sigurður gengur eftir rauða dreglinum inn til sérstaks saksóknara. En ef svo illa fer þá á lögreglan örugglega, kylfur og handa og fótajárn til að bregðast snaggaralega við.

Lesa meira
 
fridrik-palsson

10.8.2010 8:20 Steinsmugan : Byltingin og börnin hennar

Samfylkingin og VG mega ekki ráða fólk sem er bendlað við viðkomandi flokka í neinar stöður í stjórnkerfinu. Á valdatíma Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins mátti ekki heldur ráða það í neinar stöður. Stjórnkerfið er þannig að mestu byggt upp af ópólitísku hægra fólki sem getur ekki beðið eftir að fá gömlu húsbændurna aftur til baka.

Lesa meira
 

Gamlar steinsmugur


Aðsendar greinar

GunnarSkuli

Pakistan-í hvoru liðinu ert þú - 2/9/10 Aðsendar greinar

Er það sjálfgefið að endurgreiða öll lán án tillits til afleiðinganna. Í tilfelli Pakistana erum við að tala um dauðsföll venjulegra manneskja sem eiga sína framtíðardrauma eins og ég og þú. Eiga lánadrottnar alltaf að fá sitt en almenningur millifærir fé frá þeim sem eru aflögufærir til þeirra sem eru í neyð?

Lesa meira
 

Frá ritstjórn

thora-kristin

Andarteppusamfélagið - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Það þykir ekki tiltökumál lengur hvort ríkisstjórnin sé að springa, það er meira svona eins og að spyrja, hvað er í matinn? Og það þykir heldur ekki tiltökumál að krefjast opinberrar afsökunarbeiðni þótt sjaldnast fylgir hugur máli. Maður fær á tilfinninguna að menn yrðu ánægðir með að fá hvaða afsökunarbeiðni sem er, að ráðherrann viðurkenndi að hafa ekki burstað í sér tennurnar um morguninn eða gleymt að borga í stæði.

Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica