Viðtöl
Ekki herská heldur gagnrýnin
Nýir rassar í ráðherrastóla er ekki stóra málið
Aðgerðasinnar á Íslandi hafa hingað til aðeins verið áberandi í tengslum við mótmæli Saving Iceland gegn virkjanaframkvæmdum. Þetta er að breytast. Nýir hópar taka hendi, sulla rauðri málningu á Valhöll, hús sjálfstæðisflokksins og kasta mat og klósettpappír í Alþingi um helgar.
"Ég þekki ekki þá sem standa fyrir þessum aðgerðum," segir EvaHauksdóttir, móðir Hauks Hilmarssonar, aðgerðasinna sem lögregla handtók á föstudagskvöld, en lét lausan sólarhring síðar. Haukur var að sitja af sér sekt, sem greidd var upp eftir að til átaka kom við lögreglustöðina á laugardag. Eva hefur tekið þátt í mótmælum aðgerðasinna í rúmt ár. Hún tilheyrir hópi 30 manna sem stækkar á sumrin þegar erlendir félagar í Saving Iceland bætast við. Eva segist hafa tekið það skref í fyrra að sjálf þátt í beinum aðgerðum. Áður hafi hún fylgst vel með umhverfismálum, skrifað og mótmælt og farið allar löglegar leiðir til þess að fá áheyrn ráðamanna í þjóðfélaginu. Það hafi hinsvegar ekki verið til neins. "Ég hef skrifað bréf, sett mig á undirskriftalista, staðið ómældan tíma í mótmælafundum, en þetta hefur ekki haft neitt að segja. Beinar aðgerðir fóru að heilla mig, af því annað var til einskis. Ég er þreytt á hefðbundnum, löglegum aðgerðum sem engu skila. Þær duga ekki, ég er svekkt á að ná engri athygli og verja tíma mínum til einskis."
Ofbeldi lögreglu gegn mótmælum
Haukur, sonur Evu 22 ára, hefur margoft komist í kast við lögreglu vegna mótmæla. "Þau mótmæli hafa alltaf verið friðsamleg, þótt þau ögri lögunum. Ef við mótmælum innan settra reglna, ræður andstæðingurinn hvað gert er. Alcoa úthlutaði okkur einu sinni stað þar sem við máttum mótmæla," segir Eva, sem telur lítið gagn leyfðum mótmælum sem engum ögra. Hún segir son sinn aldrei hafa beitt ofbeldi, allir gjörningar hans hafi verið friðsamlegir og engum til tjóns. Sjálf hafi hún ekki heldur tekið þátt í ófriðsamlegum aðgerðum og í fyrsta skipti nú um helgina hafi hún verið viðstödd mótmæli sem fóru út böndum. Eva óttast hinsvegar að mótmæli fari harðnandi á næstu vikum verði ef stjórnvöld breyti ekki ofbeldishegðun sinni. "Haukur hefur alltaf verið friðsamur. En hann hefur margsinnis orðið fyrir lögregluofbeldi. Fyrsta skipti sumarið 2005, þar sem hópur af unglingum fór inn á skrifstofur Alcoa og lögðust þar niður. Það endaði með því að sérsveitin kom : þau voru dregin út á hárinu og aðgerðir voru harkalegar. Ég get ekki litið á það sem óeirðir að leggjast á gólfið."
"Aðgerðasinnar á Íslandi ganga mislangt, sumir eru listamenn, sumir hlekkja sig við vinnuvélar. Þetta er fólk með áhuga á mannréttinda- og umhverfismálum. Það tvennt er ekki hægt að skilja og það er alltaf að koma betur í ljós. Það er erfitt að berjast fyrir umhverfinu án þess að huga að mannréttindamálum í hverju landi. Barátta gegn mannréttindabrotum, umhverfisspjöllum, ofneyslu og yfirgangi stórfyrirtækja helst í hendur. Þar leiðir eitt af öðru og fólk sér fljótt að baráttan er sú sama." Eva segir að þótt hún hafi ekki verið í innsta hring mótmæla síðustu vikur, þá styðji hún aðgerðir eins og eggjakast sem ekki veldur tjóni eða meiðslum.
"Ég hef ekki hugmynd um hverjir slettu málningu á Valhöll, ég veit ekki hver dró sjóræningjafána að húni á Landsbankanum á Akureyri. Það er skemmtileg táknræn aðgerð sem skaðar engan. Eggjakast á Alþingi var ekki skipulagt í aðgerðahópnum sem ég þekki, en ég verð að segja að það er fín aðgerð. Ef fólkið er sem rís upp gegn vinnubrögðum valdhafa er skríll, þá vil ég vera skríll. Stjórnvöld hafa hvorki leyft óþægilegar aðgerðir né óþægilegar spurningar og hvoru tveggja er nauðsynlegt. Það hefur sýnt sig. Alþingishúsið er ekki lengur það tákn lýðræðis og sjálfstæðis sem það ætti að vera og fólk er að mótmæla því hvernig komið er fyrir Alþingi. Hvar hefur stjórnarandstaðan verið. Hún vissi að margt var gruggugt. Var stjórnarandstaðan að bora í nefið á sér á fullum launum. Ég efast ekkert um mótmælin harðna. Katrín Oddsdóttir sagð í geysigóðri ræðu á laugardaginn að ef ekki yrði farið að
tilmælum fólks um að leyfa kosningar þá yrðU embættismenn sóttIr og bornir út úr opinberum byggingum. Ef almenningur er hundsaður nógu lengi þá tekur hann völdin.Það sem gerðist um helgina var bara lítil viðvörun."
Pólitískur doði á undanhaldi
Eva segir að enginn hafi ákveðið að mótmælin við lögreglustöðina færu úr böndum. Það hafi einfaldleg gerst. "Fólk varð reiðara og reiðara og reitt fólk er ekki friðsamlegt. Stjórnvöld verða að sefa þessa reiði og þá duga ekki aumar aðgerðir, eins og fleiri lán og örlítil tilslökun á gríðarháum eftirlaunum. Krafan er sú að óhæfir menn víki og hún er ekki að mildast." Svona lýsir Eva ástandinu af sjónarhóli aðgerðasinna sem fjölgar nú stöðugt.
Eva segir það hafa komið sér á óvart hve margir mættu á mótmæli við lögreglustöðina. Aðgerðasinnar séu vanir því að vera handteknir án þess að neinn lýsi yfir stuðningi við málstað þeirra. "Hingað til hefur þótt hallærislegt að mótmæla á Íslandi, það gerðu ekki nema staðnir afturhaldskommúnistar og útlendingar og lopapeysuhippar. Þetta hefur breyst, virðulegar úthverfafrúr mæta nú á Austurvöll. Pólitískur doði er á undanhaldi. Ég er alveg viss um að þegar þjóð verður gjaldþrota verður hún að taka afstöðu."
Mál Hauks heldur áfram en í dag kemur í ljós hvort kæra verður lögð fram vegna handtöku hans á föstudag. Eva telur lögregluna hafa gefið villandi og rangar upplýsingar, en það sé ekkert nýtt. Talningamenn lögreglu virðist hafa lært að telja eftir öðru kerfi, þar sem um það bil þriðji hver maður sé talinn. Skýringar á handtökunni standist að engu leyti og lögreglan eigi eftir að svara því afhverju þeir mættu ekki bara heim til Hauks og tóku hann þar, fyrst þeim lá svona mikið á að láta hann afplána sektina í yfirfullu fangelsi einmitt núna. Eva telur spurningu um hversvegna þau mæðginin séu svona herská alls ekki eiga við. Þau séu friðsamleg en gagnrýnin. Og þau vilji grundvallarbreytingar í lýðræðiskerfinu. Ekki dugi að skipta um rassa í ráðherrastólum, heldur þurfi að hugsa allt kerfið upp á nýtt og færa valdið til fólksins.

Skrifa athugasemd