Viðtöl
Furðuleg reynsla mótmælanda
Lögfræðingur mótmælanda var hvítliði
Mótmælandi sem fékk óvænta heimsókn lögreglu á vinnustað sinn í gær, var kvaddur fyrirvaralaust til yfirheyrslu í gær. Lögreglan útvegaði lögfræðing sem reyndist hatursmaður mótmælenda.
Sólveig Jónsdóttir sem vinnur á leikskóla í Reykjavík fékk í gær óvænta heimsókn á vinnustaðinn þegar tveir óeinkennisklæddir lögreglumenn með lögeglumerki um hálsinn komu í vinnuna til hennar klukkan tíu um morgun.
Vildi fá Sólveigu í yfirheyrslu á lögreglustöðina strax
„Fólkið kom og spurði eftir mér og sagði starfsfólkinu að þetta væri lögreglan. Fyrr um morgunin hafði verið hringt og spurt um mig, en þá var ég ekki komin. Ég veit ekki hvort það var lögreglan, því engin skilaboð voru skilin eftir og ekki sagt hver hringdi,“ segir Sólveig.
Þegar Sólveig kom fram af deildinni biðu lögregluþjónarnir við dyrnar, kona og karl, með lögreglumerki um hálsin, en óeinkennsiklædd. Hún fór með lögreglunni inn á litla skrifstofu í leikskólanum, þar sem þau spurðu hana útúr stutta stund og sögðust vera að tala við hana vegna mótmæla í Alþingishúsinu 8. desember sem hún tók þátt í. En það samtal dugði ekki, því lögreglan var að sækja Sólveigu til yfirheyrslu niðri á stöð og bað hana um að koma með sér strax.
Hafði engan tíma til að útvega sér lögfræðing
„Lögreglumaðurinn, sem sagðist heita Lúðvík, var kurteis en hörkulegur og sagði að ég yrði að koma með þeim. Ég sagðist ekki geta það, því ég væri að fara í jarðarför og leikskólinn væri undirmannaður. Þar að auki væri búið að yfirheyra mig á staðnum og svo aftur í leikskólanum og ég hefði engu við það að bæta. En ég væri búin í vinnunni klukkan tvö. Lúðvík sagðist ætla að ræða við leikskólastjórann um hvort ég gæti farið úr vinnunni. Á endanum var samþykkt að ég kæmi eftir vinnu klukkan tíu mínútur yfir tvö.“
Þar sem fyrirvarinn var stuttur og dagskráin full hjá Sólveigu hafði hún engan tíma til að undirbúa sig fyrir yfirheyrslu lögreglu, en vildi hafa með sér lögfræðing, því hún væri óörugg um hvernig yfirheyrslan væri og vildi því gjarnan hafa einhvern hjá sér til að ráðfæra sig við.
„Lögreglan sagði að það væri velkomið, en yppti öxlum yfir því hvort það væri nauðsynlegt. Ég er auðvitað ekki með neinn lögfræðing í vinnu og hef aldrei þurft á því að halda og í rauninn var ég að ég þyrfti aðeins meira svigrúm til að undribúa mig. En þeir voru algjörlega harðir á því að ég yrði að koma strax. Í framhaldi af þessu segir lögreglan að þau geti haft samband við lögfræðingalínuna fyrir mig. Þau hringdu fyrst í einn sem ekki hafði tíma. Þá stingur hann upp á Oddgeiri Einarssyni, sem ég veit ekkert um og samþykki. "
Vonda löggan, góða löggan og lögfræðingurinn
„Ég fer svo og lýk því sem ég þarf að gera og mæti niður á stöð strax eftir vinnu. Þar hitti ég strák úr aðgerðahópunum og sem segir að búið sé að ná í margt af fólkinu. Það hafi verið viktað, mælt , tekin lögreglumynd með númeri, fingraför og allt.“
Þegar Sólveig mætti kom ungur lögregluþjónn og fylgdi henni til lögreglukonunnar sem hafði komið á leikskólann.
„Við bíðum svo þar saman og þá kemur þessi Oddgeir og er kurteis og notalegur og sest hjá mér og spyr hvort ég vilji ekki kynna honum málið. Ég sagði honum það sama og ég sagði í skýrslunni sem var tekin af mér 8. desember. Ekkert meira og svo þögðum við bara. Þegar ég var yfirheyrð léku lögregluþjónarnir tveir vondu lögguna og góðu lögguna. Konan var góða löggan. En vondu löggunni þótt mér vera heitt í hamsi. Oddgeir lögfræðingur sat hjá mér og hafði sig ekki í frammi. “
Þegar yfirheyrslan hafði staðið nokkra stund fannast Sólveigu hún þurfa að sækja sér aðeins ráðleggingar og fá smá lögfræðilegt mat og viðbrögð á hvort hún væri að standa sig í yfirheyrslunni.
„Ég bað um smá pásu og fór fram með lögfræðingnum og spurði hann hvort svörin sem ég væri að gefa væru einhvern veginn þannig að hægt væri að nota þau gegn mér. Hann sagði að allt væri að ganga vel,“ segir Sólveig.
Vill ekki að lögfræðingurinn komi nálægt sér eða sínum málum
„Eftir að skýrslutökunni lauk vildi lögreglan fara að spjalla aðeins um mótmælin, hvort mér finndust þau vera friðsöm og eitthvað slíkt. Við ræddum hugmyndafræðina í mótmælum. Oddgeir tók örlítinn þátt í spjallinu, en ekki þannig að ég tæki eftir neinu sérstöku í því sem hann sagði.“
Þegar Sólveig kom heim brá henni hinsvegar illa. Þá fékk hún þær upplýsingar frá systur sinni að Oddgeir bloggaði á moggablogginu og þar léti hann í ljós hreint hatur á mótmælendum og þar hefði hann líka bloggað um þörfina á því að stofna hvítliðasveit.
„Þá var mér mjög brugðið, en ég hafði ekki sagt neitt við hann sem gat komið sér illa fyrir hann eða mig. Ég er reyndar búin að hringja í hann núna og þá sagði hann að vissulega væru mismunandi skoðanir,„ segir Sólveig. „Ég er búin að segja Oddgeiri að komi til hans einhver plögg eða eitthvað sem snertir mín mál þá eigi hann að senda það óopnað aftur sömu leið og það kom. Ég vil ekki einu sinni að hann sendi neitt til mín, eða komi neitt nálægt mínum málum.“
Óþægileg lífsreynsla
„Mér finnst þetta reyndar vera aðeins meira en mismunandi skoðanir. Nú þarf ég að tala við lögregluna um að Oddgeir sé á engan hátt fulltrúi minn í einu eða neinu. Ég var svolítið paranoid í gær og hélt að maðurinn hefði verið plataður inn á mig. En auðvitað getur þetta verið tilviljun. Ég er ekki að klína neinu á neinn.“
Meðan á yfirheyrsluni stóð var Sólveig látin horfa á upptöku innan úr Alþingishúsinu í yfirheyrslunni og beðin um að benda á sjálfa mig í aðgerðinni og líka aðra þá sem hún gæti nafngreint meðal mótmælenda.
„Sem ég auðvitað gerði ekki . Mér finnst óþægilegt að hann hafi setið þarna með mér. Hann hefði átt að segja frá því að hann væri hatursmaður mótælenda. Maður sem vill stofna sveitir til að berja á mótmælum á ekki að mæta til lögreglu til að vera mótmælendum til aðstoðar. Ég ætla alls ekki að ákveða að þetta hafi verið eitthvert set up hjá löggunni, en mér finnst að þessi lögfræðingur hefði átt að vísa málinu frá sér. “
Tengt efni
- Dagblaðið Nei.: „Wannabe“ hvítliði skipaður verjandi mótmælenda
- Bloggsíða Oddgeir Einarssonar: Valdaráni hótað - hvar eru hvítliðarnir?
- Smugan: Sjö handteknir á Alþingi
Athugasemdir (34)
-
Björn skrifar:
Ótrúlegt! Þessi lögmaður er greinilega búinn að gera í buxurnar og algjörlega fáránlegt að lögreglan skuli leita til þessa manns. Væri nær að skella lögmanninum sjálfum í stólinn, beina að honum lampanum og yfirheyra hann um það sem hann lætur opinberlega frá sér fara á blogginu sínu. Finnst ótrúlegt annað en að samstarf sé á milli lögmannsins og lögreglunnar, í það minnsta að lögreglan viti af honum og finnist það góður kostur að geta leitað til hans. Þetta getur tæpast verið tilviljun.
-
Arnar Helgi Aðalststeinsson skrifar:
Ég á ekki eitt einasta orð........
-
Guðrún Hulda Guðmundsdóttir skrifar:
Maður er bara orðlaus! Þetta er alls ekki í lagi og getur ekki verið að þetta sé tilviljun! Ég er nú samt vinur lögreglunnar en þetta er greinilega eitthvað beyglað!
-
Njáll skrifar:
Og hvað? Það sem mér finnst standa upp úr í þessari frásögn er að manneskja sem sér um að kenna börnunum okkar sé í frítíma sínum að stunda ófriðsamleg mótmæli. Mér væri ekki vel við að aðgerðasinni sinnti barninu mínu.
Annars get ég ekki séð hvað þetta kemur lögreglunni við. Hvernig á lögreglan að vita hvað lögmenn landsins blogga um og hvort þeir bloggi yfir höfuð. Þessi vænisýki gagnvart lögreglunni er ekki heilbrigð. -
Vinur Kastljóss skrifar:
Í Kastljós með þetta strax! Svona siðleysi þarf að svara frammi fyrir alþjóð - ef Kastljósi er ritstýrt þá í Silfur Egils. Þetta er ROSALEGT... Oddgeir Einarsson er fasisti og níðingur - stórhættulegur gaur og dæmi um að menn ættu að þurfa að "sanitytest" áður en þeir fá að starfa sem lögmenn (eða lögreglumenn) á Íslandi.
-
Örn skrifar:
Mér finnst fréttnæmt að lögreglan vildi fá hana frá undirmönnuðum vinnustað sínum til skýrslutöku (sem börnin myndu gjalda fyrir) án þess að henni hafi verið gerð skýr grein fyrir hvers vegna - þetta eru ekki hagsmunir heildarinnar, né er verið að virða hennar borgaralegu réttindi.
-
Kristinn skrifar:
Svona er þetta þegar fólk þarf að taka ábyrgð á gjörðum sínum.
-
Baldvin skrifar:
Sólveig, þú þarft að lesa Íslensku stjórnarskrána: http://www.snerpa.is/net/log/stjornar.htm
Sérstaklega sjöunda kaflann. Ég er ekkert að grínast með það að þeir sem eiga í samskiptum við lögreglu VERÐA að þekkja sinn rétt.
Það má ekki handtaka fólk án þess að það hafi framið glæp!
Það má ekki leita á fólki, eða í eigum þess án dómsúrskurðar!
Og svo framvegis... ÞIÐ MÓTMÆLENDUR VERÐIÐ AÐ ÞEKKJA STJÓRNARSKRÁNA EINS OG LÓFANN Á YKKUR. ÞIÐ VERÐIÐ AÐ ÞEKKJA RÉTT YKKAR OG SKYLDUR.
Ef þið þekkið ekki rétt ykkar þá er enginn annar til að segja ykkur hver hann er.
Ef þú hefur orðið fyrir því að lögreglan hefur brotið á rétti þínum þá skalt þú ekki hika við að leita til Ríkislögreglustjóra, sem gerir aðvitað ekkert í málinu.
En þegar hann svarar þér engu eða svarar með útúrsnúningum og skæting þá leitar þú aðstoðar Umboðsmanns Alþingis og hann krefur lögregluna um svör. -
Sylvía skrifar:
,,Mér væri ekki vel við að aðgerðasinni sinnti barninu mínu.''
HFF! Fólk er ekki í lagi á þessu skeri, smásálir. -
Þráinn Kristinsson skrifar:
Spennandi tímar hjá löggunni - Á sama tíma og þeir eru að eltast við Sólveigu og aðra aktíva mótmælendur, þinga Framsóknarmenn og fjalla opinskátt um hvernig þeir ætla að klína landráðum sínum á aðra svo þeir getið haldið áfram.
-
Héðinn Björnsson skrifar:
Það segir allt sem segja þarf um forgangsröðunina í löggæslu á þessu landi að það er staðið í að eltast við fólk eins og hana Sólveigu meðan skorið er niður í efnahagsbrotadeild.
-
Golli skrifar:
Ef ég hef brotið lög, og mér er skipaður verjandi, sem yrði Atli Gíslason.
Ætti ég sjálfkrafa að hafna honum, á þeirri forsendu að hann væri ekki flokksbróðir minn, og væri þar að auki ekki skoðanabróðir minn. ?
Það hlýtur að vera erfitt fyrir morðingja, nauðgara og barnaníðinga að finna sér lögfræðing sem að er "fylgjandi" skjólstæðingi sínum, en það skiptir bara engu máli, réttargæsla og persónulegar skoðanir fara ekkert saman.
Þannig að Oddgeir er ekkert verri í þessu máli en einhver annar. -
Guðmundur skrifar:
"9. gr.Lögmanni er skylt að gera skjólstæðingi sínum kunnugt hvaðeina, er kann að gera hann háðan gagnaðila eða gera tortryggilega afstöðu hans til gagnaðila, svo sem frændsemi, samstarf, fjárhagslega hagsmuni eða önnur slík tengsl."
http://www.lmfi.is/logmenn-og-thjonusta/log-og-reglur-um-logmenn/sidareglur-logmanna/
Spurning hvort Oddgeir hafi ekki brotið gegn þessu með því að segja Sólveigu ekki frá opinberum skrifum sínum gegn mótmælendum. -
Máni Atlason skrifar:
Sú hugmynd að verjandi manns sem sakaður er um afbrot þurfi að vera "sammála" honum er auðvitað út í hött. Dettur einhverjum í hug að verjendur nauðgara og morðingja séu almennt "sammála" morðinu og nauðguninni?
Þessi frétt hér að ofan er mesta þvæla sem ég hef lesið. Oddgeir er án efa vel hæfur lögmaður og fær um að láta ekki sínar pólitísku skoðanir þvælast fyrir sér í starfinu. -
Sigurður Jónsson skrifar:
Það er eitt að vera ekki sammála skjólstæðingi sínum og annað að hvetja beinlínis til þess að hann og hans líkar verði beittir ofbeldi.
Þessi Oddgeir getur varr verið hæfur til þess að gæta hagsmuna mótmælenda þegar honum er augljóslega mikið í mun um að safnað verði saman sveit ungra Sjálfstæðismanna til þess að berja þá líkt og gert var á Austurvelli 30. mars 1949.
Það ætti reyndar ekki að koma neinum á óvart að Heimdellingar séu nú þegar farnir að safna liði til þess að berja fólk sem leyfir sér að mótmæla vanhæfri ríkisstjórn. Þeir monta sig að minnsta kosti af því á heimasíðu sinni að þáttaka Heimdallar í því að berja fólk 1949 sé ein af merkilegustu atriðunum í sögu flokksins. Sjá hér: http://www.frelsi.is/?action=grein_nanar&id=14974 og tilvitnun hér:
„7. Árið 1949 gerði hópur manna áhlaup á þinghúsið, eftir að hafa brotið rúður í Sjálfstæðishúsinu og kastað grjóti. Meðlimir Heimdallar, meðal annarra, mynduðu mannvegg um þinghúsið og vörnuðu hópnum inngöngu. Tókst þannig að verja húsið hetjulega gegn atlögunni.“
Það vita nú allir að hvítliðarnir gerðu gott betur en að mynda mannvegg. -
kristjan skrifar:
Ef sakborningur hefur ekki verið handtekinn skal lögregla kveðja hann til skýrslutöku og er honum skylt
að sinna þeirri kvaðningu. Ef taka á skýrslu af sakborningi yngri en 18 ára vegna ætlaðs brots gegn
almennum hegningarlögum eða brots gegn öðrum lögum, sem varðað getur þyngri refsingu en tveggja ára
fangelsi, skal tilkynna það barnaverndarnefnd sem getur sent fulltrúa sinn til að vera við skýrslutökuna.
Ef lögregla telur þörf á að taka frekari skýrslu af vitni, þar á meðal brotaþola, en kveðið er á um í 60. gr.
skal hún boða vitnið til skýrslutöku. Vitni getur skorast undan að verða við þeirri boðun.
Ef verjandi og réttargæslumaður eiga rétt á því að vera viðstaddir skýrslutöku samkvæmt þessari grein
skulu þeir jafnframt boðaðir til hennar. -
Jóhannes Ragnarsson skrifar:
Helvíti góður þessi Njáll, sem vill ekki að aðgerðarsinni kenni börnum hans. Það mætti halda að kallrassinn sé hræddur um að börnin hans komi einn góðan veðurdag heim af leikskólanum með grímu fyrir andlitunum og fleygi honum og móðurinni á dyr eins og stendur til að gera við Gjeir okkar hérna Haaarde og frú Ingibjörgu Sól og allt þeirra hyski eins og það leggur sig.
-
Sæmund skrifar:
Málið er að fá lögregluna í lið með okkur!!!
Rannsaka réttu hlutina... Við erum öll sömu örlögum bundin... semog börn, barnabörn og í einhverjum tilvika, barnabarnabörn!!! -
Sigríður Eyþórsdóttir skrifar:
Vá það er ótrúlegt hvað fólk virðist vera mótfallið því að aðgerðasinnar hugsi um börnin þeirra, ég er nú bara mótfallinn því að kapítalistasvínin stjórni landinum mínu og sé á hraðri leið með að eyðileggja landið sem börnin okkar munu taka við. Mótmælendur eru okkar eina von um bjarta framtíð. Fólk með svona fordómafullar skoðanir gegn aðgerðasinnum er fólk sem ég vil ekki að hugsi um börnin mín né nokkuð annað sem mér við kemur.
LIFI BYLTINGIN -
Lalli skrifar:
Þetta er magnað. Hafa allir sem voru þarna verið teknir?? Sjálfur á ég að mæta eftir helgi í þessa skýrslutöku. Hvaða mál er þetta með fingraförin og myndirnar?? Er þetta í lagi?
Þeir tóku mig afsíðis á mótmælunum í gær og sögðu mér að mæta á mánudaginn. Ég sagðist ekki geta það en skyldi mæta á miðvikudag. Það þótti þeim í lagi. Mér þykir það forkastanleg vinnubrögð að ónáða fólk í vinnunni fyrir svona tittlingaskít sem ein skýrslutaka er. Það á að vera nóg að hringja í fólk.
Lifi Byltingin. -
mummi skrifar:
Grímuklædda mussan sem varð píslarvottur. Oh boy, keyptu þér orkukristal og haltu kjafti. Já og eyddu þessu commenti yfir jurtatei í fyrramálið.
-
Birna skrifar:
Svæfingalæknir, svæfingalæknaðu sjálfan þig. -
Einar skrifar:
Merkilegt hvað það er alltaf einhverjum öðrum að kenna en ykkur sjálfum. Þið eruð hluti af heildinni. Eins og að Ísraelar eru allir dæmdi ekki bara Siggi hernaður sem skaut á S.Þ.
-
Anna María skrifar:
Bíddu, varstu handtekin í vinnunni ?
Öðruvísi er ekki hægt að heimta að fólk leggi niður vinnu og fari strax með lögreglunni.
Ég botna ekkert í því hvernig hægt er að terrorisera fólk svona. Mér er ofboðið.
Hvað í veröldinni gerðiru eiginlega þarna á alþingi, ég hef ekki frétt af neinu þar sem verðskuldar svona lagað? -
Guðmundur Guðm skrifar:
Hvað var búið að boða viðkomandi konu oft og hún ekki sinnt boðuninni. Í þeim tilvikum má handtaka fólk og færa til yfirheyrslu.
-
Birna Gunnarsdóttir skrifar:
Guðmundur, hún var aldrei boðuð, fékk ekkert bréf, ekkert símtal í heimasíma eða gsm, enga heimsókn heim til sín.
-
Hugmynd skrifar:
Við viljum bara koma þeirri hugmynd á framfæri að mótmælendur sem mest hafa orðið fyrir barðinu á lögreglu - td þeir sem hafa farið í skýrslutöku og í gegnum fingrafarafasisma - leiti til lögfræðings (einna eða tveggja) sem þykja hafa mannúðleg lífsviðhorf (til dæmis Ragnar Aðalsteinsson eða Atli Gíslason) og fái þá til að vera viðbúna ef á þarf að halda. Ef mótmælendur gætu leitað til sama aðila trekk í trekk myndi sá aðili geta gert sér betur grein fyrir heildaraðförum og taktík lögreglu og þannig varið rétt fólksins betur (og greint frá opinberlega þegar þurfa þykir).
kveðjur
fólkið í landinu -
Kona skrifar:
Er ekki búið að bíta og grýta lögreglumenn í þessum mótmælum og skemma bæði húsnæði og hluti? Er þá eitthvað skrýtið að fólk sé yfirheyrt?
Hættið þessu væli. Þetta fylgir. Ef mótmælendur brjóta lög geta þeir ekki búist við öðru. -
Ragnheiður Björnsdóttir skrifar:
Hatursmaður mótmælenda? Er ekki í lagi? Má maðurinn ekki tjá SÍNAR skoðanir á sínu EIGIN bloggi án þess að vera upphrópaður hatursmaður? Þetta er aðeins of langt gengið.
Ef fólk brýtur lög má það búast við því að þurfa að taka afleiðingum. Sama hvort það eru mótmælendur eða aðrir.
Ég les ekki margt annað úr þessari frétt en fordóma gagnvart þeim sem hafa ekki sömu skoðun og mótmælendur.
Svo finnst mér það vera frekja að skrifa inn athugasemd frá "fólkinu í landinu". Ég er ekkert endilega sammála þessari athugasemd en ég tel mig vera hluta af fólkinu í landinu. Hver og einn getur talað fyrir sjálfan sig og ef til vill einhvern afmarkaðan hóp en mér finnst rangt þegar mótmælendur segjast tala fyrir fólkið í landinu. -
Guðjón Jensson skrifar:
Spurning hvort þarna hafi sá lögreglumaður sem ákveður boðun hafi farið út fyrir valdssvið sitt. Eins og atburðarásinni er lýst þá birtast tveir óeinkennisklæddir lögreglumenn á vinnustað án þess að neinn aðdragandi virðist hafi verið að því annar en símhringingar og Sólveig rétt ókomin. Hvers vegna voru ekki lögð fram skilaboð að hafa samband? Að e-r lögreglumaður ákveður hvaða lögfræðingur sé valinn að því virðist án þess að bjóða fyrst þeim grunaða að velja, er einkennilegt að ekki sé meira sagt.
Annars er starf lögmanna fyrst og fremst að gæta réttar skjólstæðinga, að öllum formlegum skilyrðum sé fullnægt og að allt fari fram í samræmi við réttarfarið.
Af atburðarásinni að dæma virðist hafa orðið slæm mistök og að því vera brotinn réttur á samborgara. Rétt væri að fara yfir þetta og fá staðfestingu um hvað gerðist hjá lögreglunni og hvaða atvik leiddu til að konan sem starfar á leikskóla sé leidd í burtu af tveim ókunnugum mönnum í augsýn allra sem kunna að hafa verið á vettvangi. Þetta er vægast sagt einkennilegt og mjög athugunarvert. Ef lögreglan á sér engar haldbærar skyringar finnst mér að Sólveig eigi inni afsökun frá hendi yfirmanna lögreglunnar.
Það er mjög mikilvægt að allir geti treyst lögreglunni enda á hún að gæta laga og réttar. Við sem stöndum í mótmælum erum óánægð með ríkisstjórnina og gerum þær kröfur til þeirra sem ábyrgð bera, segi af sér.
Við þurfum að hafa lögregluna með okkur en ekki fá hana á móti okkur.
GJ -
Hannes skrifar:
Hvað er að gerast
-
Almenningur skrifar:
Almenningur bendir á, að á Íslandi er maður annað hvort handtekinn, eða frjáls ferða sinna.
Lögreglan veit vel af þessu, og reynir oft að flækja málin eða villa um fyrir fólki sem lögreglan vill hafa tal af, oftlega með valdsmannlegri framkomu sem jaðrar við yfirgangsemi. Lögreglan glímir nefnilega við að á Íslandi er ekkert ástand til í lögum sem heitir kyrrsetning eða custody (sem er ekki það sama og varðhald), en slíkt ástand er skilgreint í lögum víðast hvar annars staðar í heiminum. Það er slíkt ástand sem lögregla getur notað, vilji hún hafa tal af einhverjum og yfirheyra, jafnvel gegn vilja viðkomandi, en án þess að handtaka hafi farið fram.
Óski lögreglan eftir því að tala við einhvern vegna skýrslutöku er honum skylt að verða við því, en þó ekki algerlega eftir lögreglunnar hentisemi. Athugið að skýrslutaka er ekki það sama og yfirheyrsla eða varðhald. Um leið og skýrslutöku lýkur er viðkomandi frjáls ferða sinna, nema handtaka fari fram.
Oft reynir þá lögreglan að tefja (klassískt er t.d. að bjóða upp á kaffi, og brydda þá um leið upp á frekari samræðum).
Réttur lögreglunnar til að hafa frekari orðaskipti við einstaklinginn, er enginn.
Lendi einhver í því að lögregla handtaki viðkomandi í tengslum við þessi mótmæli, á viðkomandi strax að fara fram á lögfræðing og neita að tjá sig uns honum hefur verið skipaður réttargæslumaður. Lögreglunni er þá skylt að kæra fyrir eitthvað.
Stundum reynir lögreglan að kæra þá fyrir eitthvað óljóst (vítavert gáleysi, óspektir), og venjulega eru réttargæslumenn ekkert voðalega lengi að klára svoleiðis mál. Það er fráleitt að fólk verði dæmt sekt fyrir óspektir við mótmæli eins og í gær, svo það yrði fljótt afskaplega dýrt fyrir lögregluna ef hún ætlar að kæra fólk í kippum.
Borgaraleg óhlýðni í sambland við það að standa fast á sínum borgaralegu réttindum dugar prýðilega til að gera lögreglunni ókleift að drepa niður mótmælin. -
VoloBiaffaf skrifar:
<a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1662174/>inderal public speaking</a> , canada inderal buy
-
kictEntaica skrifar:
<a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669214/>canada medicine inderal bellevue</a> , inderal la withdrawl
<a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669727/>headache inderal vascular</a> , inderal la information
<a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669891/>inderal low blood sugar children</a> , use of inderal for anxiety

Skrifa athugasemd