Viðtöl
Óskar eftir plani B
Ekki hægt að keyra tvö svona stór mál í gegn á einni viku
Nú standa yfir nefndadagar á Alþingi þar sem nefndir funda stíft, aðallega um ríkisábyrgð vegna Icesave samninganna. Þrjár nefndir hafa fjallað um málið, utanríkismálanefnd, efnahags- og skattanefnd og fjárlaganefnd. Birgitta Jónsdóttir þingmaður sem situr í utanríkismálanefnd segist æ sannfærðari um að stór hluti Íslendinga sé ekki hlynntur því að skrifa undir samninginn.
„Mér finnst líka hræðilegt að við fáum ekki að sjá eignasafnið [Landsbankans] sem er sagt að eigi að borga lánin. Ég get ekki skilið hvers vegna við eigum að skrifa upp á mörg hundruð milljarða króna samning án þess að vita hvað stendur að baki.“ Hún segist hafa gengið eftir því lengi að fá að sjá eignasafnið, bæði formlega og óformlega. „Núna er bankaleyndinni borið við sem ekki var gert í fyrstu. Ég skil þetta ekki.“
Birgitta vonast eftir þverpólitískri lausn á málinu og óskar einlæglega eftir plani B sem hún segir óskiljanlegt að ekki sé til. Það verði að vera til önnur lausn verði samningurinn felldur.
„Pirringur okkar er svipaður og þegar núverandi stjórn var í minnihluta og hlaut ekki hljómgrunn. Ég hef bara orðið fyrir innilegum hjartans vonbrigðum með þetta,“ segir Birgitta og bætir við: „ég hélt að þessi stjórn myndi sýna lýðræði í verki en upplýsingaflæði er því miður of lítið til þess að svo geti talist.“
Birgitta segist munu mótmæla því innilega ef kemur til þess að keyra eigi bæði umræðu um Icesave og ESB í gegn í þessari viku þegar þingfundur hefst að nýju - tvö stærstu mál Íslandssögunnar frá því við fengum frelsi frá Dönum.
„Við erum ennþá að taka við upplýsingum sem varða Icasave samningana. Ennþá erum við að reyna að leggjast yfir leyniskjöl um málið eitt og eitt þar sem það má bara einn þingmaður lesa skjölin í einu með mann standandi yfir sér,“ segir Birgitta og heldur áfram: „það er líka ótækt að ræða eigi ESB aðildarumsókn á morgun. Við fengum nefndarálit í hendur klukkan hálfátta í gærkvöldi og höfum fundað í allan dag. Við verðum að fá tíma til þess að skoða málið betur og leggjast yfir það.“
Athugasemdir (10)
-
Þórarinn Einarsson skrifar:
Hér er plan B:
Íslendingar hafna Icesave samningunum og leggja þess í stað fram eftirfarandi lausn:
1) Innistæðutryggingasjóðir á evrópska efnahagssvæðinu verði sameinaðir í einn sjóð með nýrri löggjöf sem taki mið af hruni bankakerfis í einstökum ríkjum og njóti sá sjóður forgangs í þrotabú fjármálastofnanna.
2) Eignasafn Landsbankans renni til nýs sameinaðs innistæðutryggingasjóðs EES.
3) Upphæð greiðslna í sameiginlegan innistæðutryggingasjóð verði háðar skuldatryggingarálagi eða lánshæfismati viðkomandi fjármálastofnanna.
4) Eftir að nýtt fyrirkomulag hefur tekið gildi (sem ætti að tryggja stöðugleika evrópska fjármálakerfisins og eyða vafa) ættu deiluaðilar að geta sæst á dómstólaleið, þ.e.a.s. ef þess verður enn krafist að Ísland greiði meira upp í kröfur Icesave innistæðueigenda.
5) Úrskurði dómstóll að íslenska ríkið beri að greiða umtalsverðar fjárhæðir vegna Icesave innistæðna þá skulu deiluaðilar semja um greiðslufyrirkomulag þar sem raunverulega sé tekið tillit til greiðslugetu og gjaldeyrisstöðu íslenska ríkisins.
Með því að leggja til þessa lausn munu Íslendingar sýna staðfastan vilja sinn um að þeir hyggist standa við allar skuldbindingar sínar og axla ábyrgð með sanngjörnum en jafnframt raunhæfum hætti.
Hafni viðsemjendur okkar þessari sáttargjörð eða komi með óásættanlegar mótkröfur, þá liggur a.m.k. fyrir að við höfum boðið sanngjarna lausn og tökum þá afstöðu að borga ekkert fyrr en fyrir liggi dómur og/eða samningur sem við getum samþykkt og staðið við.
Þess ber þó að geta að ‘Plan B’ er sett fram sem lausleg drög með það fyrir augum að örva umræðu, draga fram fleiri hugmyndir, gagnrýni og breytingatillögur en þó aðallega til þess að hefja smíði á raunhæfum valkosti sem hægt er að tefla fram gegn þeim nauðungarsamningum sem nú bíða afgreiðslu á Alþingi. -
101 skrifar:
Plan AA+ er að Lilja Mós verði yfirtekin af Borgaraflokknum -
Magnús Björgvinsson skrifar:
Og hvað ætlar Birgitta að gera þegar hún er búin að sjá þetta eignasafn. -?Halda menn að svona almennir þingmenn skilji eða geti metið þetta safn sem tók marga mánuði að ná utan um og meta með ekki meiri áreiðanleika en raun ber vitni og það gert af sérfræðingum? Og eins krafan um verðmæti þess eftir 7 ár eða hvað það hefur skila inn.
. Þetta er svona svipað eins og krafan um að menn áætli hvernig staðan verði hér eða í heiminum eftir 15 ár. Furðulegar kröfur.
Ef að Birgitta hugsaði málið og færi aftur til 1994 heldur hún að einhver hefði getað spáð fyrir hvernig staðan væri akkúrat í dag? -
Héðinn Björnsson skrifar:
Þegar við erum búin að fá að sjá eignarsafnið getum við t.d. fengið sérfræðing sem við þekkjum til að gera stikkprufutest á verðmætamatinu. Enn hefur enginn viljað standa fram og binda sinn faglega heiður við þetta verðmat.
-
Magnús Björgvinsson skrifar:
Héðinn held að það verði ekki í boði? Held að í öllum löndum sé það þannig að það fái ekki hver sem er að sjá lán og lánakjör einstakra fyrirtækja. Það er spurning fyrir þá sem eru með þessi lán ef að samkeppnisaðilar kæmust að kjörum þeirra þá kæmu upp vandamál. Þeir gætu notað það til að reikna nákvæmleg út stöðu samkeppnisaðlians. Og sennilega gætu þeir allir átt möguleika á skaðabótum. Ef þetta yrði sýnt þingmönnum þá yrði það í trúnaði!
-
HH skrifar:
Ætti ekki Birgitta og aðrir sem vilja fella ríkisábyrgðina að bera fram „plan B“?
Enn hefur enginn sett fram raunverulegan valkost við að staðfesta ábyrgðina en það veður Birgitta að gera ef hún ætlar að segja „nei“. - „Nei“ Birgittu liggur bara inn blindgötu og lokast í öngstræti. -
Birgitta Jónsdóttir skrifar:
Plan B má finna í stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar
Það hlýtur að vera hægt að fá að sjá þetta eignasafn í trúnaði og kalla til sín sérfræðing sem verður bundinn trúnaði til að fara yfir þetta með mér.
Eftir því sem ég hef kynnt mér þennan samning ljósara verður það að honum ber að hafna og finna aðrar leiðir til að vinna sig út úr þessu máli en að skrifa undir opinn tékka.
Ég viðurkenni það fúslega að ég hef ekki svör við öllu og kannski er okkar plan B alveg út úr kortinu - en þegar ég tala um plan B varðandi viðbrögð okkar stjórnvalda þá er alveg ljóst að ég er jafnframt að hugsa um það hvernig ætlum við að kynna okkar málstað fyrir Bretum og Hollendingum - ég held að það mæti vel nýta sér alla þá vinnu sem Indefence hópurinn hefur lagt á sig og nota bene það er fjarri lagi að allir þeir sem eru í þeim hópi séu framsóknarmenn:)
Ég held að best væri ef við gætum fundið þverpólitíska lausn á þessu máli og sýnist að það geti vel orðið. Það er alveg ljóst að þessi samningur verður felldur ef hann fer fyrir þingið í dag. Minnihlutinn hefur heitið því að verja stjórnina falli þó samningurinn verði felldur. Það finnst mér í raun alveg frábært og vona að meira verði um það hérlendis að þingmenn fái það nauðsynlega frelsi sem þeim ber að fara eftir að kjósa eftir eigin samvisku.
Mér finnst reyndar sú hugmynd að láta þetta mál kólna og gefa þingmönnum nauðsynlegan tíma til að kynna sér þetta til þaula vera góð - því við þurfum ekki að klára þetta fyrr en eftir sumarfrí þingheims og það ætti að gefa öllum þingmönnum kost á að kynna sér þetta mál eins vel og nauðsynlegt er, sem og ríkisstjórninni tíma til að útbúa aðgerðaáætlun um kynningu á okkar málstað og réttindum á erlendri grundu.
Förum nú upp úr skotgröfunum og finnum sameiginlega lausn. -
Halldór Ásgeirsson skrifar:
Einu sinni las ég stutta sögu. Hún hljómaði einhvern veginn svona: Lítil mús var að hlaupa eftir tunnum í geymslu. Allt í einu datt hún ofaní eina tunnuna sem var þá ekki með loki. Í tunnuni var mjöður, og eftir mikið barsl og eftir að hafa sopið drúgt af miðinum gat hún kraflað sig upp úr tunninni. Þegar upp var hún komin, leit hún valdsmannslega í kringum sig og sagði: " Hvar er núna bansettur kötturinn". Tilvitnun lýkur! - Þetta mál með Icesave væri allt voða einfallt ef við Íslendingar hefðum öll tromp á hendi og gætum bara sagt viðsemjendum okkar að halda kj. Þessi bjartsýni að halda, að við séum svo sérstök þjóð, er ekki ný af nálinni. Þegar erlendir fjármálasérfræðingar og blaðamenn viðskiptablaða og tímarita voru að vara við væntanlegu hruni íslenska hagkerfisins, þá fóru fyrverandi forsætis- og utanríkisráðherra hrunstjórnarinnar í víking bæði austur og vestur um haf, til að tala upp áreiðanleika íslenska hagkerfisins. Núna er bara komið að skuldadögunum. Hagkerfið hrundi og nú þurfum við að borga, því eftirlitsstofnanir og fyrverandi stjórnmálaskörungar okkar sváfu á verðinum, og reyndu að kjafta okkur út úr ógöngunum. Lánin eru núna fallin og komið að því að greiða skuldirnar. Ég vil minna á að það eru fleiri kröfuhafar í þrotabú hins gamla Landsbanka en þeir sem vilja fá sitt til baka úr icesave ráninu. - Það hefðu kanski fleiri en Bretar átt að setja hryðjuverkalög á Landsbankann. Neyðarlögin íslensku sl. haust voru nauðsynleg, en það þurfti líka að setja íslensk hryðjuverkalög.
-
VoloBiaffaf skrifar:
<a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1662174/>inderal anxiety</a> , inderal and weight gain
-
kictEntaica skrifar:
<a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669214/>drug information inderal</a> , inderal off label
<a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669727/>inderal abuse</a> , inderal info
<a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669891/>topomax and inderal for migraines</a> , proponol inderal for preformance stress

Skrifa athugasemd