Viðtöl
„Við erum komin niður í kviku“
Erfitt starf framundan
Björn Valur Gíslason, einn nýrra þingmanna VG, er í fjárlaganefnd Alþingis sem hefur unnið að frumvarpi um fjárlög ríkisins. Hann segir það þyngra en tárum taki að finna leiðir til reisa fjárhag ríkisins við. Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt tekjuöflun ríkisstjórnarinnar.
„Í málflutningi sjálfstæðismanna kemur fram sá áherslumunur sem er á milli Sjálfstæðisflokksins og Framsókar annars vegar og Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hins vegar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur komið sínum skoðunum skýrt á framfæri, hann vill alls ekki auka tekjur ríkisins með sköttum á fyrirtæki og einstaklinga heldur einblína á niðurskurð. Við viljum hins vegar fara þessa blönduðu leið,“ segir Björn.
Hann segir að á næsta ári verði gerð sú krafa á allan ríkisrekstur að hann verði skorinn niður um 10%, nema í menntakerfinu þar sem farið verður fram á 7% niðurskurð og í félags- og heilbrigðiskerfinu um 5%. „Þannig að við reynum að standa vörð um þessar stofnanir sem ekki væri hægt værum við einungis að sjá fram á niðurskurð en enga tekjuöflun.“
Fulltrúar stjórnarflokkanna hafi unnið að fjárlögum saman í nefndinni í 6-8 manna hópi. „Það hefur reynst þessum flokkum hollt. Unnið hefur verið að frumvarpinu með pólítískari hætti en áður hefur tíðkast og við höfum setið yfir þessu fram á kvöld höfum ráðfært okkur við alla ráðherrana.“
Fjárlagafrumvarp fyrir 2009 var birt nú fyrir helgi. Björn segir þó mikla og erfiðaða vinnu framundan hjá fjárlaganefnd sem sé þyngri en tárum taki. Fjárlagafrumvarp fyrir 2010 sé langt komið en ennþá eigi eftir að ljúka við frumvarp fyrir 2011, 2012 og 2013.
„Við erum komin niður í kviku. Við erum þó að reyna að hlífa eftir fremsta megni því sem okkur er allra heilagast, það er þjónusta á heilbrigðisstofnunum. Það er auðvitað ekkert mál að henda tölum inn í Excel skjal en við verðum líka að hafa kjark til þess að sjá að það er fólk bakvið þessar tölur, tengja þær við veruleikann. Við leitum allra leiða til þess að þetta bitni ekki illa á þeim sem síst skyldi.“
Athugasemdir (5)
Héðinn Björnsson skrifar:
Hvet fjárlaganefnd til að taka málið upp við þjóðina eins snemma og hægt er. Við ráðum við miklu meira ef við erum undirbúin og höfð með í ráðum. Opinn borgarafundur að ykkar frumkvæmði þar sem farið væri yfir verkefnið og þær mismunandi leiðir sem eru færar, væri til þess fallið að koma umræðunni um fjárlög ríkisins inn í uppbyggilegri umræðu en ESB og ICESAVE-málin sem þingið hefur reynt að taka bara á prívat og persónulega með eins lítilli upplýsingagjöf og mögulegt. Við gerum þetta saman eða alls ekki.
Sigurður Þórðarson skrifar:
"Hann segir það þyngra en tárum taki að finna leiðir til reisa fjárhag ríkisins við"
Þetta er undarlega að orði komist.
Eru menn tárvotir að leita lausna? -
hahNokKayaddy skrifar:
Hello all. And Bye.
generic cialis tadalafil -
VoloBiaffaf skrifar:
kictEntaica skrifar:
Skrifa athugasemd