Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Vilja ekki funda á NATO-hóteli

Félagar í Vinstri grænum ósáttir við að halda landsfund á Hilton Nordica

19.3.2009 20:26 Fréttaskýringar

NATO

elias_jon_gudjonsson2
Elías Jón Guðjónsson

elias@smugan.is

Talsverður urgur er á meðal félaga í Vinstri grænum vegna þess að landsfundur flokksins, um komandi helgi, verður haldinn á Hilton Nordica hótelinu sem nýlega hýsti hanastél hernaðarbandalagsins NATO. Hanastélinu var mótmælt kröftuglega og voru margir félagar í áberandi í þeim. Framkvæmdastýra flokksins segir hótelið vera eina staðinn sem getur hýst landsfundinn og flokkurinn hefur efni á.

Einstaka félagar ætla sitja heima

Margir flokksfélagar sem eru mjög ósáttir við staðarvalið ætla ekki gera neitt sérstakt veður út af því, „nema kannski að skammast yfir því í opnum stjórnmálaumræðum“ eins og einn orðar það.

Einstaka félögum  svíður staðarvalið þó svo mikið að þeir sjá sér ekki fært að mæta á landsfundinn. Þeir benda á að það sé ólíðandi að flokkurinn skuli skipta við fyrirtæki sem hafi „hýst snobbsamkomu hermangara“. Þá er einnig bent á einn félagi í flokknum hafi verið handtekinn ólöglega í fyrrnefndum mótmælum „fyrir þá einu sök að taka upp brunninn NATO-fána sem lögreglan hafði slökkt í“. Honum hafi síðan verið halið föngum í þrjá tíma áður en honum hafi verið sleppt úr haldi án nokkurra eftirmála.

Ekkert annað í boði

drifa_snaedal

Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri grænna, segist skilja gagnrýnina á staðarvalið en segir flokkinn vera nauðbeygðan til þess að halda landsfundinn á Hilton Nordica. „Þetta er einfaldlega eina hótelið á landinu sem getur hýst landsfundinn þessa helgi. Við vorum með síðasta landsfund á Grand Hótel, en nú er það of lítið,“ segir hún og bætir við: „Ef við hefðu farið með fundinn í einhverja íþróttahöll þá hefðu kostnaðurinn við landsfundinn orðið tveimur milljónum meiri og flokkurinn hefur einfaldlega ekki efni á því.“

Drífa segir að upphaflega hafi staðið til að halda landsfund flokksins næsta haust í nýju menningarhúsi á Akureyri. „En síðan hafa áætlanir breyst og landsfundinum flýtt þannig að það þurfti að hafa hraðar hendur til þess að tryggja húsnæði fyrir fundinn,“ segir Drífa.

Grænt skyr í fersku minni

Hanastél NATO á Hilton Nordica var ekki fyrsta dæmið um að hótelið hýsi samkomur sem eru fylgismönnum Vinstri grænna ekki þóknanlegar. Árið 2005 var þar alþjóðleg ráðstefnu álframleiðenda. Mögum er sú ráðstefna, sem var nokkuð umdeild, enn í fersku minni  ekki síst vegna þess að þrír náttúruverndarsinnar voru handteknir fyrir að sletta grænu skyri yfir fundargesti. Í kjölfarið kærði hótelið fólkið fyrir stórfelld eignarspjöll og krafðist tæpar þriggja milljóna króna í bætur. Þegar málið kom fyrir dóm kom strax í ljós að hótelið hafði stórlega ýkt skaða sinn sem var óverulegur.

Fleiri hótel með umdeilda gesti

Fleiri dæmi eru um að hótel séu umdeild vegna gesta sinna, eða öllu heldur væntanlegra gesta sinna. Hótel Saga var mikið í sviðljósinu í marsmánið árið 2006 eftir að klámframleiðendur boðuðu komu sína á hótelið þar sem þeir ætluðu að halda ráðstefnu. Boðuð heimsókn þeirra vakti hörð viðbrögð úti í samfélaginu og þar á meðal frá borgarstjórn Reykjavíkur sem samþykkti ályktun þar sem hún lýsti vanþóknun á því að slík ráðstefna ætti að fara fram í borginni.  Í kjölfarið ákváðu stjórnendur Hótels Sögu að rifta samningum sínum  við aðstandendur klámráðstefnunnar sem urðu því að fara annað með sína ráðstefnu.

Gagnrýnendur landsfundarstaðarins benda er að Nordica hafi nú þegar þjónað alþjóðlegum álframleiðendum og hernaðarbandalaginu NATO og því vart verjandi að skipta við það.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica