Högni Hoydal, formaður færeyska Þjóðveldisflokksins segir Dana í mótsögn við sjálfa sig, þegar þeir vilji að íslenskir skattgreiðendur taki einir á sig mistök og tap íslenskra banka í útlöndum. Þá afstöðu hafi þeir ekki haft þegar Danske bank tapaði stórfé í Færeyjum. Þá hafi þeim ekki fundist að senda ætti reikninginn til danskra skattgreiðenda, heldur ættu Færeyingar að borga.
Lesa meira
Skötuselsfrumvarpið var tekið af dagskrá Alþingis að kröfu Sjálfstæðismanna í dag. Samtök atvinnulífsins hóta að segja upp stöðugleikasáttmálanum ef frumvarpið verður samþykkt. Frumvarpið fór aftur á dagskrá að kröfu stjórnarþingmanna. Atli Gíslason formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis á ekki von á öðru en að greidd verði atkvæði um frumvarpið í dag. Standi atvinnurekendur við hótanir sínar er stöðugleikasáttmálinn fyrir bí.
Lesa meira
Björgvin G. Sigurðsson, þngflokksformaður Samfylkingarinnar hefur komið talsvert að E.C.A. Program sem vill stofna einkaherstöð á Íslandi. Hann sagðist í gærkvöld binda miklar vonir við þetta risastóra verkefni. Hann segir öll leyfi liggja fyrir en aðstoðarmaður Samgönguráðherra segir hinsvegar ekki hægt að taka pólitíska ákvörðun fyrr en Flugmálastjórn og fleiri hafi skoðað málið.
Lesa meira
Norskt lán án Icesave
Norska ríkisstjórnin útilokar ekki viðbótarlán til Íslands, jafnvel þótt enginn Icesave-samningur liggi fyrir. Þetta kemur fram í nýju viðtali Aftenposten við Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs. Áður hafði ráðherrann brugðist illa við gagnrýni forseta Íslands, sem telur Norðurlönd hafa svikið Íslendinga.
Lesa meira
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins segir óheppilegt að viðhalda óvissu um þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave. Slíkt geti verið túlkað sem veikleikamerki að hálfu viðsemjenda. Forsætisráðherra segir atkvæðagreiðsluna tilgangslausa.
Lesa meiraEr næsti kafli hrunsins að hefjast með því að dýrustu framtíðarverðmæti íslensks almennings eru seld í hendur einkaaðilum á tombóluprís og án nokkurrar umræðu?
Lesa meira
Frjálslyndi flokkurinn lofar óvæntri innkomu í íslensk stjórnmál nú með haustinu. Innkoman mun verða í formi tíðinda sem vænta er í fréttatilkynningu frá flokknum sem hefur mátt muna sinn fífil fegurri.
Lesa meira
Óánægju gætir með samkomulag stjórnavalda við Breta og Hollendinga um IceSave-deilunnar. En hvernig kom málið til og hvað felst í samkomulaginu?
Lesa meira
Mikill æsingur varð vegna ummæla umhverfisráðherra um olívinnslu á Drekasvæðinu í aðdraganda Alþingiskosninga. En hvert var tilefnið?
Þótt meirihluti þingmanna teljist nú styðja umsókn um aðild að Evrópusambandinu, er ekki þar með sagt að eindreginn inngönguvilji liggi að baki hjá öðrum en Samfylkingunni. Borgarahreyfingin vísar til þess að þjóðin eigi að ráða og Framsókn setur stíf skilyrði.
Lesa meira