Sigríður Víðis Jónsdóttir
Herþotur yfir Bagdad
Flóttamanni fæddum 1990 var vísað úr landi í gær - því það má
Daginn sem herþoturnar hófu að svífa yfir Bagdad vissi Layla Khalil Ibrahim að eitthvað mikið var í vændum. Hún var óttaslegin yfir því hvað tæki við í kjölfar innrásarinnar í Írak. Þrátt fyrir alla heimsins hræðslu gat hana þó ekki grunað hvaða raunasaga var um það bil að hefjast. Hvað þá að sorgarsögunni ætti eftir að skola á land á Íslandi.
Ekki það að íslensk yfirvöld hafi ekki síðar losað sig undan málinu. Í gærmorgun var yngsti sonur Laylu settur um borð í flugvél og sendur úr landi. Hann heitir Noordin Alazawi, er fæddur árið 1990, og hafði sótt um hæli á Íslandi.
Sex árum eftir styttan af Saddam Hussein var rifin niður og ringulreiðin hófst í Bagdad sat Layla ráðvillt í hvítmálaðri stofu í Sýrlandi og handfjatlaði ljósmynd af börnunum sínum. Það var þar sem ég hitti hana. Ég hafði heyrt af því að á meðal íraska flóttafólksins í Sýrlandi væri kona sem ætti strák sem sótt hefði um hæli á Íslandi og hafði því upp á henni meðan ég dvaldi í Damascus. Úr myndarömmum á veggnum í stofunni hjá Laylu brostu þau til mín, Noordin, bróðir hans sem stunginn var með hníf í Bagdad, fjölskyldufaðirinn sem öfgamenn skutu fyrir að túlka fyrir Bandaríkjaher – og dóttirin sem sá honum blæða út.
Layla reyndi að bera sig vel, bauð upp á te, beit á jaxlinn. Síðan byrjuðu tárin hægt og hljótt að renna.
„Hvernig endaði þetta allt svona? Hvað á ég að gera? Hvað verður um okkur?“
Íslendingurinn hummaði og hæjaði, hóf að muldra eitthvað um mannúð og réttlæti, en áttaði sig síðan á að hann hafði ekki græna glóru um hvað hann átti að segja við ráðvillt foreldri með sundraða fjölskyldu. Eitt barna Laylu var á flótta með henni í Sýrlandi. Annað heimilislaust í Grikklandi. Yngsti sonurinn og augasteinninn á Íslandi.
Layla sjálf sjúklingur eftir árás mannræningja í Bagdad. Bakveik. Búin á því. Brotin á sál eftir stríð sem hún bað ekki um.
„Maðurinn minn var drepinn. Við hin verðum drepin ef við förum aftur til Írak. Ég sjálf get tæpast verið áfram í Sýrlandi því spariféð fer að klárast og hér er enga vinnu að fá og ekki hægt að vera til frambúðar. Og það vilja okkur engin önnur lönd. Í alvörunni, HVAÐ Á ÉG AÐ GERA?“
Hún hélt krampakenndu taki í fjölskyldumyndina í rammanum. Hóf að tala út í eitt. „Ég er svo hrædd um hvað gerist... við Noordin heyrumst á hverjum degi og hann segir mér svo margt gott um Ísland... vonandi fær hann að vera þar... ég heyrði að það væri kominn nýr dómsmálaráðherra og kannski gerir hann eitthvað nýtt, eitthvað annað en sá sem var áður. Veistu, ég horfi svo oft á landakortið og virði Ísland fyrir mér... hann Noordin minn er meira að segja farinn að tala smá íslensku!“
Layla brosti, stolt af augasteininum sínum, en tók síðan um höfuðið á sér. „Ég bið ekki um annað en að það verði í lagi með börnin mín.“
Síðan kom sumar og svo kom haust og hálfu ári eftir að við kvöddumst í Sýrlandi náði lögreglan á Íslandi í son Laylu. Nokkrum klukkustundum síðar var búið að setja Noordin um borð í flugvél og senda í burtu. Hann hafði þá verið hér á landi í heilt ár.
Á tæknimáli hljómar gjörningurinn svo: Grikkland var inngangur Noordins inn á Schengen-svæðið. Aðildarlöndum Schengen er samkvæmt Dyflinnar-reglugerðinni heimilt að vísa hælisleitendum til þeirra ríkja sem þeir komu frá – í tilfelli Noordins til Grikklands. Það er þá í höndum grískra yfirvalda að taka beiðni hans um hæli til efnislegrar meðferðar, en ekki íslenskra stjórnvalda.
Á mannamáli hljómar þetta svo: Íslensk yfirvöld mega senda hælisleitendur eins og Noordin til baka – en það er ekkert í lögunum sem segir að þau verði að gera það. Þau mega taka mál efnislega fyrir hér á landi ef þau vilja. Yfirvöld hafa hins vegar verið óspör á að nýta sér möguleikann á brottvísun þegar þau geta. Gera það raunar nær undantekningarlaust.
Noordin og hinum sem einnig voru sendir úr landi í gær, er með öðrum orðum vísað burtu án þess að mál þeirra séu tekin formlega fyrir eða nokkur efnisleg afstaða tekin til þeirra – önnur en sú að þetta sé ekki okkar vandamál. Grísk yfirvöld verði að díla við þá.
Nú vill svo til að Grikkland er að drukkna í flóttafólki. Líkurnar á því að fá hæli þar í landi eru hverfandi. Einungis 0,05% hælisleitenda fá raunar hæli þar í fyrstu atrennu. Líkurnar á að detta í lukkupottinn eru með öðrum orðum einn á móti 2000
Vænlegt?
Hælisleitendur mega áfrýja úrskurðinum. Eftir dúk og disk, margra mánaða ferli, jafnvel margra ára – fá 90% hælisleitenda í Grikklandi nei við hælisbón sinni.
Þegar íslensk yfirvöld taka ákvörðun eins og þá í gær – að eftirláta grískum yfirvöldum að taka fyrir mál drengsins Noordin, í stað þess að gera það sjálf – eru þau varla að óska þess að hann endi aftur í Írak. Síður en svo.
Það er hins vegar freistandi að álykta sem svo að þau séu að stinga höfðinu í sandinn. Það liggur einfaldlega fyrir að yfirgnæfandi meirihluta þeirra sem biður um hæli í Grikklandi verður ekki að ósk sinni.
Nú gæti einhver viljað fullyrða að þurfi Noordin raunverulega á vernd að halda – og stafi lífshætta af því að enda aftur í Írak – hljóti hann að verða einn af þessum sem fá hæli í Grikklandi. Það verði að treysta yfirvöldum þar í landi til að meta þessi mál. Það að senda hann þangað sé allt eftir bókinni, Dyflinnar-reglugerðinni blessaðri.
Staðreynd málsins er sú að í fyrra sóttu 20.000 manns um hæli í Grikklandi og á sama tíma voru þar 30.000 ókláraðar hælisbeiðnir. Starfsmaður sem tekur viðtal við 20-25 hælisleitendur á hverjum degi á augljóslega ekki hægt um vik að skera úr um hver er í hættu og hver ekki. Hvar lendir mál eins og mál Noordins í jafnyfirfullu kerfi?
Það liggur í hlutarins eðli að legu sinnar vegna er Grikkland mun líklegri fyrsti viðkomustaður inn á Schengen-svæðið heldur en eyríkið Ísland. Raunveruleikinn með umræddu kerfi hefur raunar orðið sá að nokkur ríki syðst í Evrópu sitja uppi með vandann.
Samt allt eftir bókinni. Þetta má.
Einhver gæti viljað benda á að önnur Evrópuríki nýti sér hiklaust möguleika Dyflinnar-reglugerðarinnar og sendi fólk til baka til Grikklands. En gerir það málið betra?
Það að margir geri eitthvað þarf ekki að þýða að það sé rétt. Það að fjármálaspekúlantar byrjuðu í hrönnum að byggja flókið kerfi afleiðuviðskipta og senda gróðann á undarlegar aflandseyjar, þýddi ekki að það væri sniðugt. Raunar sjá allir í dag að það var mesta vitleysa.
Rétt er að hafa í huga að hlutfall þeirra sem fær á endanum hæli eftir að mál þeirra hafa verið tekin formlega fyrir, er mishátt eftir því um hvaða lönd ræðir. Þannig gæti það raunverulega gerst að grísk yfirvöld meti Noordin ekki í hættu og sendi hann aftur til Íraks, á sama tíma og eitthvert annað land hefði talið að honum bæri að fá vernd. Kerfið er ekki óbrigðulla en svo.
Í ofanálag telja Rauði krossinn og aðrir að um 90% hælisleitenda í Grikklandi fái ekki gistipláss í miðstöðvum fyrir hælisleitendur þar í landi á meðan þeir bíða eftir úrskurðinum. Fái enga fjárhagsaðstoð frá grískum stjórnvöldum, ekki mat, ekki heilbrigðisaðstoð – ekkert af því sem þeir eiga að fá samkvæmt kerfinu blessaða.
Layla veit raunar allt um þetta. Síðastliðinn vetur horfði hún upp á Munaf son sinn – eldri bróður Noordins – þvælast á milli staða í Aþenu. Hann var búinn að sofa úti í marga daga þegar ég hitti hana í fyrsta sinn. Þeim bræðrum hafði á sínum tíma verið sagt að þeir gætu valið á milli þess að koma sér aftur til Íraks eða vera áfram í Grikklandi og reyna að fá þar hæli – en þeir skyldu þá vita að þar fengju þeir enga hjálp.
Nú þekki ég ekki mál þeirra tveggja sem sendir voru af landi í gær ásamt Noordin – einum frá Írak og öðrum frá Íran – en varðandi mál Noordins Alazawi stendur þetta eftir:
Unglingsstrákur horfir á fjölskyldu sína ofsótta í Írak eftir að landið varð að lögleysu. Var sjálfum rænt og handviss um að hann yrði tekinn af lífi. Hann slapp. Komst yfir til Sýrlands með móður sinni. Átti erfiða vist þar. Hefur frá því að hann var fimmtán ára þvælst frá Írak til Sýrlands til Tyrklands til Grikklands til Belgíu til Grikklands til Íslands – og er nú enn á ný kominn til Grikklands. Drengurinn þvælist stað úr stað, eftir innrás sem hann bað ekki um – og enginn vill taka ábyrgð á honum.
Hvað gerir maður þá í hans sporum fái maður nei í Grikklandi?
Sest að í Írak?
Nei, ekki ef maður býst við að vera aflífaður þar. Kannski verður í lagi að fara þangað eftir tíu ár, fimmtán, tuttugu – en ekki núna, ekki meðan þeir sem hótuðu líflátinu og drápu pabba manns eru þar allir enn.
Hvað gerir maður þá? Hrökklast aftur yfir til nágrannaríkisins Sýrlands?
Verst að þá er maður aftur kominn á byrjunarreit og í nákvæmlega sömu sporum og við fyrsta flóttann frá Írak.
Nema hvað að þá er maður í millitíðinni orðinn nítján en ekki fimmtán – og væntanlega löngu búinn að missa trúna á réttlæti í heiminum.
Athugasemdir (17)
-
Margrét skrifar:
Góð grein Sigríður.
Það er sorglegt að þurfa horfa uppá þennan gjörning stjórnvalda.
Við erum vel aflögufær því þrátt fyrir kreppu verðum við aldrei á sama level við þær þjóðir sem glíma við stríð, harðsstjórn og fátækt.
Vona að Ragna nái sönsum áður en hún fer úr embætti og taki hælisleitendamálin til endurskoðunar með mannúð að leiðarljósi. -
Kjartan Sverrisson skrifar:
Mögnuð grein, vonandi sjáum við að okkur og förum að taka mál flóttamanna efnislega fyrir....af því að það má.
-
Kolbrún skrifar:
Takk fyrir að segja frá þessu. Fæ greinina þína lánaða á facebook. -
baldvin skrifar:
mögnuð og sorgleg saga,en litla ísland er á barmi gjaldþrots og löggjæsla í lámarki,og illa hefur gengið að vinna með því flótta fólki sem kemur hingað,sum þeirra ljúga til nafns og eru jafn vel með fulla vasa af peningum við komu og vita upp á hár hvað þeim ber að fá,beindu reiðinni frekar til þeirra sem valda stríðinu,það eru þær þjóðir sem hagnast á því,þær þjóðir eyga að tryggja öryggi barna,þeirra sem gerast brotlegir í sínu heima landi,t,d með að vera að túlka fyrir kanan í miðju strýði,............strýð eru ósanngjörn,og valda bara þjáningu og glundroða!skrítið að mannskepnan skuli taka þátt í þessu vitandi að svona sögur verða að veruleika,kveðja íslendingur
-
Ásgeir H Ingólfsson skrifar:
Ókei, ég veit ég er ekki á Facebook núna - en samt, like like like, frábær grein.
-
Aftaka skrifar:
Á Aftöku eru nokkrar áhugaverðar greinar tengdar málinu:
Þjóðernissinnar kveða: http://aftaka.org/2009/10/15/thjodernissinnar-kveda/
Bréf frá Noor Al-Azzawi: http://aftaka.org/2009/10/16/bref-fra-noor-al-azzawi/
Og tilkynning Öskru! vegna frábærrar aðgerðar í Háskólanum í dag...
Mission Accomplished! – Þaggað niður í mannréttindabrjóti:
http://aftaka.org/2009/10/16/mission-accomplished-thaggad-nidur-i-mannrettindabrjoti/ -
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson skrifar:
Ég krefst þess að Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon svari fyrir gjörðir mannréttindaráðherrans í þessu máli. Þau bera pólítíska ábyrgð á gjörð sem þessari.
-
Helgi Jóhann Hauksson skrifar:
Aleiga hans eru íslenskir peningar sem hann hefur unnið fyrir sér - en á þeim forsendum að hann er án ríkisfangs fékk hann ekki að skipta þeim í nothæfa mynt. - Ragna sjálf synjaði ósk Birgittu Jónsdóttur um að hann fengi að hafa símann sinn með sér og að hann fengi þann 15 daga frest eftir að vera tilkynnt um brottvísun sem ný skýrsla dómsmálráðuneytisins segir að beri að veita.
- Enginn veit nú afdrif hans.
- ALlar ákvarðanir Rögnu hér eru pólitískar ákvarðanir. - Engin lög eða reglur banna Rögnu að veita honum eða þessum mönnum hæli, eða skylda hana til að senda hann eða þá úr landi - en Ragna gerir það samt, engin lög eða reglur banna Rögnu að leyfa honum að hafa með sér símann - en Ragna gerir það samt, engin lög eða reglur banna Rögnu að veita honum/ þeim 15 daga málsmeðferðarfrest eins og nefnd dómsmálaráðuneytisins mælir með - en Ragna gerir það samt, enginn bannar Rögnu að sjá til þess að hann/þeir geti skipt krónunum sínum í nothæfan pening en Ragna gerir það samt, enginn skyldar Rögnu til að nota heimild Dyflinarsamningsins um endursendingu til fyrsta Shengenlands en Ragna gerir það samt.
- Allt eru þetta pólitískar geðþóttákvarðanir sem Ragna ber ábyrgð á sem sést svo sorglega þegar þær eru færðar uppá raunverulega persónu, þennan 19 ára unga Íraka sem lenti á vergangi þegar fjölskylda hans aðstoðaði innrásarlið okkar og leitað var hefnda fyrir það í heimalandi hans. - Ekkert bannar okkur að veita honum hæli eða skyldar okkur til að senda hann til baka - en við gerum það samt afþví ráðherra telur sig mega það og geta það.
Ef það er ámælisvert að ónáða Rögnu á þeim einu stöðu sem til hennar næst og að öskra á Rögnu þegar hún ætlar að tala um mannréttindi, þá nær skalinn ekki yfir þann glæp að henda fólki í ruslið eins og Ragna ÁKVEÐUR af geðþótta sínum að gera. -
Sóley Tómasdóttir skrifar:
Ekki lofar ákvörðunin góðu hjá nýju mannréttindaráðuneyti. Takk fyrir frábæra grein Sigga. Baráttukveðjur!
-
Edvard Kristinn Guðjónsson skrifar:
Góð grein og skilmerkileg Sigríður,
setur hlutina heldur betur í samhengi fyrir ofdekraðan Íslending eins og mig sem þarf ekki að flýja stríðsátök eða vísan dauða.
Viðurkenni þó að hafa í fyrstu hugsað sem svo: "Flott. Flytjum þennan flóttalýð til síns heima því hér er hvorki pláss né fjármunir fyrir aðra en innfædda Íslendinga. Hér ríkir kreppa."
En svo kynni ég mér málið betur. Les greinar sem þínar. Velti hlutunum fyrir mér og lít í spegil. Horfi í augu ofalins atvinnuleysingja sem mætti missa þó nokkur kíló. Ég þarf ekki að kvarta með þak yfir höfuðið og nægt uppihald.
Auðvitað eru aðgerðir dómsmálaráðherra pólítískar. Hún telur sig vera að ganga erinda meirihluta þjóðarinnar sem óttast holskeflu flóttamanna til landsins ef smæsta rifa sé skilin eftir opin. Svona hefur þetta verið svo árum skiptir; jafnt í góðæri sem og kreppu: No Vacancy! Og ráðherra getur ekki snúið við dæminu því að embættismennirnir ráða í raun. -
Elli skrifar:
Frábær grein, ótrúlega áhrifarík og um leið efnislega full - af svörum og nýjum spurningum!
-
accutane1010 skrifar:
WASHINGTON - (accutane buy) http://www.petitionspot.com/profile/5383899/Jason_bert adf asd asd a aio po das.
<a href\=http://motionographer.com/forum/comments.php?DiscussionID\=496><u>http://motionographer.com/forum/comments.php?DiscussionID\=496</u></a>
In a broad endorsement http://my.opera.com/buyjonny/about/ of federal power, the Supreme Court on Monday ruled that http://my.opera.com/buyjonny/blog/2010/05/14/buy-jonny-online Congress has the authorityunder
the Constitution to allow the continued confinement of some sex offenders after they have completed their ...
https://www.google.com/profiles/Progekt41 http://knol.google.com/k/jason-kollins/yamaha-yzf125r-review/3c01v8fj3zclt/1#
-
VoloBiaffaf skrifar:
<a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1662174/>inderal dosage polygraph</a> , lisinopril inderal in kidney disease
-
kictEntaica skrifar:
<a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669214/>inderal weight loss</a> , erowid inderal la
<a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669727/>inderal intravenous</a> , inderal exercise
<a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669891/>performance anxiety dance inderal</a> , januvia and inderal -
Evinna-web skrifar:
What do you mean?
-
BactchucH skrifar:
Hey What\'s up guys
How\'s it going first post -
stequeunlalse skrifar:
Hey so I was reading about male enhancement pills and other shit, found this pretty awesome blog here:
<a href\=http://classydude24.wordpress.com/>Male Enhancement</a>
What do you think of this stuff?


Skrifa athugasemd