Halda fókus núna!
Ræða flutt á Austurvelli 24. janúar 2009
GÓÐIR ÍSLENDINGAR:
Þetta er gott og gamaldags ávarp, sem allri þjóðinni er heimilt að nota.
Færir líka hugann aftur í tímann til þeirra manna- og kvenna- sem börðust fyrir sjálfstæði þjóðarinnar á fyrri öldum. Og höfðu betur.
Hvað skyldi ÞEIM þykja um ástandið, sem búið er að koma íslensku þjóðinni í núna ?
Hvernig búið er að stúta fjöregginu ?
Sennilega myndu forfeður okkar -og mæður- fá lítinn botn í ruglið og svikamylluna. Ekkert frekar en við gerum núna !
Hvaða heilvita maður á líka að skilja fyrirbæri á borð við Þú kaupir í mér, ég í þér, hlutabréf hér og hlutabréf þar, tugmilljarðar fara á flakk. En enginn hagnast!
Sjeikinn af Langtbortistan er hins vegar rosalega góður gæi, sem var sjálfsagt að gera greiða. Það er svo svo önnur spurning hvort hann er yfirleitt til... Ef á að fara að vera með einhverja stæla út af svona smámunum þá bara fokka ég upp fermingarveislum grislinganna ykkar á einkaþyrlunni minni. Sem ég hafði mikið fyrir að læra að fljúga sjálf... Meta það takk. Svo er ég líka rosalega mikil fjölskyldumanneskja – og þyki afar skemmtileg í partíum.
Nenni svo ekki að ræða þetta meir. Þarf að skreppa í sjöhundruð fermetra pimphásið mitt á Manhattan, snekkjuna, eða sveitahöllina í Suður Englandi. Nú eða bara í nokkra daga á ráðstefnu, á ykkar vegum, með hálfa milljón í dagpeninga...
Er ykkur ekki annars sama þó að þið borgið reikninginn ?
Hvernig spyr ég ? Auðvitað er ykkur sama... Eigiði ekki flest foreldra, afa eða ömmur á elliheimilum, sem er hægt að hækka mánaðargjaldið fyrir um ca. 150.000 þúsund kall ? Er svo ekki einhver langveikur í fjölskyldunni, sem er kominn tími til að endurgreiði Tryggingastofnun framfæslulífeyrinn ? Eða krakka, sem er alveg kominn tími til að hætti þessu íþróttastandi ? Heitur matur í hádeginu í skólanum ? Halló ! Eru engin takmörk fyrir því hvað á að dekra þetta lið ?
Já, það er sko nóg til af pening í þessu þjóðfélagi. Bara málið að vita hvar á að bera niður.
Björgunaraðgerðir til handa heimilunum? Jú, það er víst rífandi gangur í þeim. Hefur bara gleymst að kynna þær í kerfinu, þannig að þar reka allir sig enn á veggi.
Það er hins vegar að koma æ skýrar í ljós að það var rífandi gangur í björgunaraðgerðum í fjármálaheiminum, síðustu vikur og daga fyrir hrun. Gríðarlegar fjárhæðir voru ryksugaðar til aðila, sem vissu vel hvað vofði yfir.
Ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu rýkur til og selur bréfin sín í Landsbankanum, eftir að hafa setið fund með fjármálaráðherrum 'islands og Bretlands, 2. september ! Algjör tilviljun? Sæti þessi maður enn í öðrum löndum ? Varla, frekar en svo ótalmargir aðrir. Annars þýðir víst lítið að bera okkur saman við önnur lönd, því „við erum þeim svo miklu fremri“, eins og segir í einni af þessum frábæru skýrslum um íslenska fjármálaundrið.
---------
Af því að einhver verður að játa eitthvað á sig, játa ég hér með að ég skildi aldrei alveg þetta góðæri. Það gerðu reyndar heldur ekki erlendir kollegar mínir, sem komu hingað í fyrra til að kynna sér „undrið“ af eigin raun -og það var hálfvandræðalegt að geta ekki útskýrt það fyrir þeim af nokkru viti.
-Heldur ekki heimsfrægir hagfræðingar -en það var nú bara skortur á „endurmenntun“!
Þurfa ekki aðrir frekar á endurmenntun að halda núna ?
---------
Nefndin, sem á að rannsaka hrunið, er svo búin að senda frá sér heila fréttatilkynningu ! Rífandi gangur þar líka...
Það er því ekki að ástæðulausu, sem þær raddir heyrast, að nú eigi fólk að hætta þessu pexi hér á Austurvelli -og annarsstaðar- og fara bara heim að leggja sig !
Ég segi; Oft var þörf að halda vöku sinni En nú er nauðsyn !
Og alþjóðlega rannsóknarnefnd strax !
---------
En fátt er svo með öllu illt... Eitt af því góða við ástandið er orðræðan, sem hefur sprottið upp, allar þessar flottu raddir, sem ýmist eru að heyrast fyrst nú -eða var ekki hlustað á áður.
Ég er sem íslendingur, stolt af öllu því góða og greinda fólki, sem hefur látið í sér heyra og komið með raunhæfar tillögur um veginn framávið...
Orðræðan í landinu hefur tekið þvílíkt heljarstökk fram á við að þess verður minnst um aldur og ævi.
Það er ekkert skrýtið að heimsbyggðin fylgist af áhuga með ástandinu hér. Enda fórum við á hausinn með meiri stæl en nokkur önnur OECD þjóð og þó víðar væri leitað. Eiginlega ættum við að fara að selja aðgang að okkur sem rannsóknarefni. félagsfræðinga, sálfræðinga, mannfræðinga -að ógleymdum hagfræðingunum.
Yfirgnæfandi meirihluti allra mótmæla- og samstöðuaðgerða hefur líka farið fram af virðingu hugviti -og jafnvel húmor (þvílík snilldarhugmynd var það til dæmis að spila fótbolta inni í Landsbankanum) -þó að fæstum sé hlátur í hug yfir ástandi, sem nú þegar er að leiða sorg og erfiðleika yfir stóran hluta þjóðarinnar.
Held að aðrir muni fjalla nánar um samskipti lögreglu og almennings hér, en langar þó að benda á það hverra hagur það kann hugsanlega að vera að reiðin beinist gegn lögreglunni, frekar en þeim sem bera raunverulega ábyrgð á ástandinu ?
---------
Stjórnmálamenn eru fæstir nein illmenni. Ekki frekar en þverskurður samfélagsins er það. Hins vegar eru þeir flestir góðærisdengsar og -dúllur, allsendis ófær um að takast á við þau tröllauknu vandamál sem við stöndum andspænis. Þjóðin kaus þetta fólk yfir sig í hinu ímyndaða góðæri.
Þetta eru ekki beint krísuleiðtogar.
Winston Churchill sálugi er reyndar ekki beint endurborinn í Gordon Brown... En það er nú önnur saga.
Langar þó að setja fram þá frómu ósk að við látum ekki hjaðningavígin, sem kunna að vera framundan innan stjórnmálaflokkanna, dreifa um of athyglinni frá því sem skiptir okkur meira máli en það hvort þessi eða hinn prílar upp fyrir annann á framboðslista.
Heldur ekki upphrópanir um „illan mótmælendaskríl“. Ég sé hann ekki hér, eða annars staðar.
Halda fókus núna!
Ríkisstjórnin (og reyndar nokkrar á undan henni) hefur alið spillingaröfl sem nöðrur við brjóst sér. Nöðrur bíta alltaf, fyrr eða síðar. Það er í þeirra eðli. Og sjaldan launar kálfur ofeldi. Þetta fámenna þjóðfélag hafði heldur aldrei efni á að halda uppi auðmannastétt og ofvöxnu bankakerfi.
Það situr heldur engin stjórn; ríkis, Seðlabanka eða Fjármálaeftirlits, lengi í skjóli lögregluvalds.
Góðir Íslendingar: Við eigum að geta borið höfuðið hátt.
En ekki vegna fáránlegra gervigilda, sem nú eru vonandi aflögð -um alla eilífð.
ræðan var flutt á Austurvelli 24. janúar 2009
