Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Guðmundur Páll Ólafsson í Þjóðmenningarhúsi 1. desember 2008

Lífsins pólitík - Ræða flutt á stofnfundi Auðlindindarinnar

gudmundur-pall-jonsson-frett

gudmundur-pall-jonssonEnn eigum við drauma og vonir og þrár.

Náttúrusjóðurinn Auðlind snýst um drauma og vonir og … um pólitík lífsins; vegna þess að umhyggja fyrir náttúruauðæfum varðar hag okkar allra, hag landsins, hag barna okkar og niðja landsins. Þannig er náttúrusjóður framlag eða leiðsögn um ákveðna hagstjórn á höfuðstóli sem er hinn raunverulegi banki allra landsmanna og stendur föstum fótum á stórkostlegum þjóðararfi í vörslu okkar – en ávallt í eigu komandi kynslóða. Og þótt lítið sé um lausafé um þessar mundir þá mun það margfaldast í okkar höndum vegna þess að það verður notað til að styrkja höfuðstólinn enn frekar og þjóðin mun deila vöxtunum.

Þetta er til eftirbreytni.

Í Hrunadansi og skipbroti undangenginna vikna er eðlilegt að tala um pólitík á fullveldisdegi við stofnun náttúrusjóðs. Náttúruvernd á rætur í lýðræði og réttlæti fyrir alla, hún er hagsmunagæsla fyrir allt sem er lifandi; hún er velferðarmál og grundvallast á þekkingu og varkárni. Nátttúruvernd snýst einfaldlega um hollar umferðarreglur á vegakerfi mannsins.

En þótt Auðlind varði pólitík er hún hafin yfir flokkadrætti; laus við hægri og vinstri rétt eins og út og suður. Hún er heldur ekki náttúruverndarsamtök, þrýstihópur eða baráttusamtök – og samt er hún hljóðlátt ígildi alls þessa með því leggja þeim lið sem vilja standa vörð um vef lífsins, lífsgæði mannsins, fegurð og fjölbreytni villtrar náttúru – vatn og vatnafar - sjálfan drifkraft lífsins. Auðlind er sjóður lifandi náttúru og framtíðarinnar.

Víkjum aftur að hagfræði.

Á Jörðinni eru tvö efnahagskerfi. Annað er smíði mannsins og gengur undir ýmsum nöfnum. Hér á landi hrundi það fyrir nokkru, fársjúkt. Hitt er hagkerfi Jarðar sem tilvera alls lífs byggir á. Það er nokkuð laskað og lasið vegna afleitrar meðferðar mannsins en hrun þess myndi afgreiða tilvist hans sem tegundar. Þótt íslenskum stjórnmálamönnum verði kannski ekki hampað fyrir snilli í hagstjórn er þekking þeirra á efnahagskerfi náttúrunnar samt enn bágbornari. Fæstir þeirra vita að Jörðin sjálf rekur sitt hagkerfi og það hefur gengið ljómandi vel í milljarða ára. Og þar er samvinna grunntónn en ekki samkeppni.

Hér á landi höfum við farið illa að ráði okkar. Í hamagangi höfum við sólundað þjóðararfi í miklum mæli en eitt af markmiðum Auðlindar í bráð og lengd er að efla vitund og virðingu fyrir þjóðararfinum og þar með að efla þjóðarheill.

Sú ögurstund er upp runnin, bæði í íslensku samfélagi og á Jörðunni allri, að mannkyn verður að ákveða hvert það vill stefna. Um alla Jörð hafa vonir glæðst með kjöri afburðamanns í embætti forseta Bandaríkjanna. Margt mun breytast til hins betra og þjóðir heims munu leita sjálfbærra lausna í æ ríkara mæli. Hér í Hrunadansinum bjóða patentlausnarar enn upp á gamlar úrlausnir og átök – í samfélagi sem iðar af góðum, sjálfbærum hugmyndum. Við skulum vona að nú sé runnin upp stund endurskoðunar. Krafa dagsins er að vandað sé til verka og að stofnanir sem vernda eiga auðlindir og náttúruauðæfi til langs tíma verði endurvaktar og mótaðar. Hljómar það ekki undarlega að fyrir stærsta banka landsins sem heldur utan um þjóðararfinn skuli hvorki vera bankaráð né virkt eftirlit?

Lífið krefst vandaðra vinnubragða. Fólk vill öryggi og lífsgæði og veit að sígandi lukka er börnum best. Draumar okkar og vonir snúast um samfélag sem byggir á jákvæðum gildum, á sjálfbærni, vandvirkni og þekkingu en líka heiðarleika og jafnræði, hófsemi og lýðræði. Á þann hátt öðlumst við sjálfstraust á ný og virðingu meðal þjóða. Áþekk leiðarljós er að finna í Stefnuskrá Jarðar (Earth Charter) en hún er stefnumarkandi yfirlýsing um grunngildi fyrir mannkyn – og undarlegt sem það er hefur hún ekki verið þýdd á íslensku (er samt til á grænlensku). Þar segir í lokaorðum: Látum okkar verða minnst fyrir að hafa vaknað til vitundar um virðingu fyrir öllu lífi, fyrir að finna öruggar leiðir til sjálfbærrar þróunar; flýta baráttunni fyrir réttlæti og friði og fyrir að lofsyngja lífið.

Okkur dreymir um betra Ísland, öflugt, fjölbreytt og frjótt mannlíf í stað þess sundurtætta og háværa sem við höfum uppskorið. Stígum svo næsta skref: Látum okkar verða minnst fyrir að gera draum að veruleika og höfum Stefnuskrá Jarðar að leiðarljósi – að lofsyngja og vernda lífið.

Náttúrusjóðurinn Auðlind er gjöf til landsmanna til þess að efla þessa vitundarvakningu, nýsköpun, atvinnu í dreifbýli og sjálfbærni sem Auðlind getur gefið af sér fái hún stuðning ykkar og meðbyr.

Framundan eru tvö áhersluverkefni Auðlindar sem nefnast Votlönd og Assa. Þau eru fyrstu skref Auðlindar til að hindra heimshlýnun, vernda vistkerfi, búsvæði tegunda og líffræðilega fjölbreytni.

Við eigum enn drauma …

Í nýju Íslandi með háleit markmið setjum við lífið og unaðsemdir náttúrunnar í öndvegi. Markmiðið á að vera að vernda niðja landsins með því að vernda lífsgæði þeirra og þjóðararf og þar er Náttúrusjóðurinn Auðlind farvegur til að láta verk tala.

Og höfum hugfast að Ísland er ekki séríslenskt sólkerfi

Tilvist okkar og allra manna er háð villtri náttúru og fjölbreytileika lífheims á einni Jörðu þar sem mannkyn er ein fjölskylda með sameiginleg örlög.

Guðmundur Páll Ólafsson

Tenglar

 

Senda grein


Ræður

Þetta vefsvæði byggir á Eplica