Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Jómfrúarræða á Alþingi

Ræða á Alþingi í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra

18.5.2009 22:36 Ræður - Ásmundur Einar Daðason

asmundur-einar-dadason

Hæstvirtur forseti. Góðir landsmenn.

Við íslensku þjóðinni blasir stórt og umfangsmikið verkefni sem er er endurreisn íslensks efnahagslífs. Hið nýja Ísland þarf að byggja á öðrum grunni og með aukinn jöfnuð að leiðarljósi. Þegar tekið verður á þeim erfiðleikum sem framundan eru þarf að leggja sérstaka áhersla á að hlífa Félags-, Velferðar- og menntakerfinu.

Þegar rætt er um jöfnuð þá er einnig mikilvægt að hafa í huga að stór hluti fólks og heilu byggðarlögin tók aldrei þátt í þessu svokallaða góðæri sem talað hefur verið um. Mörg þessara svæða hafa mátt þola fólksfækkun og neikvæðan hagvöxt svo árum skiptir. Þetta eru einkum samfélög þar sem atvinnulíf er sérhæft t.d. öflug landbúnaðar- og sjávarútvegshéruð. Þarna er um að ræða atvinnugreinar sem eru gjaldeyrisskapandi og eiga mikla vaxtarmöguleika ef rétt er á málum haldið.

Landbúnaður og sjávarútvegur eru grunnatvinnugreinar margra byggðalaga og ný ríkisstjórn setur fram öfluga framtíðarsýn hvað þetta varðar.  Þegar kemur að landbúnaði þá er það vilji núverandi ríkisstjórnar að standa vörð um innlendan landbúnað, tryggja fæðu- og matvælaöryggi þjóðarinnar og jafnframt að standa vörð um störf í matvælaiðnaði. Í sjávarútvegi má nefna endurskoðun á fiskveiðistjórnarkerfinu þar sem áhersla verður lögð á að tryggja atvinnuöryggi og réttindi einstakra byggðalaga. Auk þessa má nefna aðgerðir til eflingar á ferðaþjónustu og innlendri framleiðslu um land allt.

Innan skamms verður lögð fyrir Alþingi þingsályktunartillaga er varðar umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Það er sameiginlegur skilningur stjórnarflokkanna að við afgreiðslu á þessari tillögu muni hver og einn alþingismaður fylgja eigin sannfæringu. Á næstu árum þurfa Íslendingar að takast á við mjög stórt og umfangsmikið verkefni. Þetta gerir kröfu til þess að þjóðin standi þétt saman og að þjóðarsátt náist um þau verkefni sem framundan eru. Það er miður ef nægilegur þingstyrkur er fyrir máli sem felur í sér kostnað, vinnu og sundrung í íslensku samfélagi á sama tíma og heimili og fyrirtæki landsins þarfnast allra þeirra krafta sem við eigum.  Mín skoðun er sú að hag Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins og að nú sé ekki rétti tíminn til að takast á um þessi mál. Þessari skoðun mun ég fylgja bæði innan og utan veggja alþingis. Sjálfstæðið er sívirk auðlind og það er sjálfstæði Íslendinga ásamt jöfnuði, krafti og samstöðu sem mun byggja upp hið nýja Ísland.

Góðir Íslendingar. Sem nýr og jafnframt sem yngsti þingmaður alþingis þá vil ég að endingu segja að ég hlakka til að takast á við þetta krefjandi verkefni. Ég mun starfa af fullum heilindum og leggja mig allan fram í þágu íslensks samfélags.

Ásmundur Einar Daðason
höfundur er alþingismaður Vinstri grænna

Senda grein


Ræður

Þetta vefsvæði byggir á Eplica