Vefrit um pólitík og mannlíf
3. september 2010

Grænir frostpinnar og bláir

Tíminn vinnur ekki með Samfylkingunni

10.12.2008 16:06

valgerdur_halldorsdottir

Mig hefur lengi dreymt um öfluga velferðarstjórn jafnaðarmanna, Samfylkingar og Vinstri grænna, sem hefði önnur markmið að leiðarljósi en að selja allt og menga.  Ég varð því fyrir vonbrigðum þegar ríkisstjórnin var mynduð í kjölfar síðustu kosninga.  Þegar kreppan skall á efaðist ég ekki hið minnsta í fyrstu um mikilvægi þess að kjósa strax, tími jafnaðarmanna var kominn. Það kom hinsvegar á mig mikið hik þegar ég hugsaði málið til enda – hvernig gæti það gerst?

Ljóst er að ekki er hægt að byggja upp öflugt velferðarkerfi með Sjálfstæðisflokknum af ýmsum ástæðum, þó það séu ágætis jafnaðarmenn þar innan um og vinna mætti í því að reyna fjölga þeim.  Honum er hinsvegar ekki treystandi.  Hann virðist alvarlega þjakaður af „Stokkhólmsheilkenninu”  í gíslingu Seðlabankastjóra sem “hótar” þátttöku í pólitík verði hann látin fara. Og hvað? Er það vandamál Samfylkingarinnar þó Sjálfstæðisflokkurinn klofni? Kannski, mögulegt  er að hægri kratar sæki í Evrópusinnaða Sjálfstæðismenn sem ég þó efast um.

En tíminn vinnur ekki með Samfylkingunni þessa dagana. Hvernig getur hún réttlætt fyrir sér eða öðrum að  seðlabankastjóri  sitji í “skjóli okkar”  í bankanum eins og Björgvin Sigurðsson viðskiptaráðherra orðar það? Sama hvað hver segir,  á meðan þetta ríkisstjórnarsamstarf er við líði,  bera báðir flokkarnir ábyrgð á stöðunni. En hvað stoppar Samfylkinguna? Sjálfsagt margt s.s. að ekki megi skipta um klár í miðrii á, eða skipstjórinn fari af strandstað eða eitthvað annað sem ég skil ekki þar sem ég þekki hvorki til skipbrota né hestamennsku. En hvað um það, forysta Vg ber líka ábyrgð á því hvernig staðan er. Skilaboð af aukaflokksráðsfundi þeirra á Grand hóteli um daginn voru skýr;  aðild að Evrópusambandinu kemur ekki til greina. Hvaða samstarfsflokkur er þá fýsilegastur fyrir Samfylkinguna, þessi með seðlabankastjóra innanborðs eða sá sem er á móti aðild að ES?  

Hætta er á að við fórnum  möguleikanum  á öflugu velferðarkerfi nú þegar mest á reynir, sökum gamalla kreddna og ósveigjanleika séum við ekki tilbúin til að endurskoða fyrri afstöðu okkar.  Það er hinsvegar alltaf von og hana fann ég m.a.  í   grein Jóns Hjartarsonar bæjarfulltrú Vg í Árborg á Smugunni í vikunni, þar sem hann hvetur sitt fólk til þátttöku í ES umræðunni og segir m.a. “Ábyrgð Vg er mikil, þegar stórir hlutir gerast verða menn að hafa þrek til að stíga stór skref”. Er það hverju orði sannara – sama í hvaða flokki menn standa.

Valgerður Halldórsdóttir

Senda grein

Athugasemdir (5)

  1. Sverrir Kr. skrifar:

    Sæl Valgerður.
    Þú segir: "Mig hefur lengi dreymt um öfluga velferðarstjórn jafnaðarmanna, Samfylkingar og Vinstri grænna". Þeir eru sjálfsagt margir sem deila þeim draumi með þér, en til þess að svo megi verða þarf þingkosningar og það sem fyrst. Meðan Ingibjörg Sólrún hafnar þeim möguleika í óþökk meirihluta stuðningsfólks Samfylkingarinnar, er lítil von til að draumurinn rætist.
    Þú segir einnig: "...forysta Vg ber líka ábyrgð á því hvernig staðan er. Skilaboð af aukaflokksráðsfundi þeirra á Grand hóteli um daginn voru skýr; aðild að Evrópusambandinu kemur ekki til greina." Þetta er misskilningur hjá þér og ég legg til að þú kynnir þér betur hvað rætt var á þeim fundi og einnig hvað Steingrímur J. hefur verið að segja í fjölmiðlum síðan.
    Stefna VG er óbreytt að því leyti, að Íslendingar séu betur komnir utan en innan ESB, gallarnir séu meiri en kostirnir. Hinsvegar leggja VG áherslu á að lýðræðið verði virkjað til fulls í þessu mikilvæga máli. Eftir að fram hafi farið hugsanlegar könnunarviðræður við ESB, verði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort gengið skuli til formlegra samninga. . Verði það samþykkt skuli fara fram vönduð og ítarleg kynning á niðurstöðu slíkra samningsviðræðna og þjóðin greiði síðan atkvæði á ný og nú um aðildarsamninginn.
    Sverrir Kr.

    10.12.2008, kl. 23:00 | #

  2. Jón G. Jónsson skrifar:

    Skilaboð flokksráðfundarins voru mjög óskýr fyrir flokksmenn og því ekki skrítið að aðrir hafi miskilið þau.

    Þegar búið er að greiða úr þessu öllu þá voru þau þessi:
    1. Ákvörðun um mál sem hafa miklar afleiðingar í för með sér fyrir þjóðina skal tekin með þjóðaratkvæðagreiðslu. Undir þetta fellur Evrópusambandsaðild. Undir þetta hefði einnig fallið lántaka frá ASG, innganga í NATO, ESB-samningurinn, Kárahnjúkavirkjun, stuðingur við Íraksstríðið og fleira.

    2. Stefna Vinstri grænna er óbreytt enda er bara hægt að breyta henni á landsfundi. Flokkurinn er á móti aðild Íslands eða ESB.

    Niðurstaða: Vinstri græn vilja að ákvörðun um aðild að ESB verði tekin með þjóðaratkvæðagreiðslu. Þó flokkurinn sé á móti aðild þá útilokar það ekki aðild, nema meirihluti þjóðarinnar hafi sömu afstöðu og flokkurinn.

    11.12.2008, kl. 9:25 | #

  3. Margrét Jónsdóttir skrifar:

    Grænir frostpinnar og bláir, vísa trúlega til frosinnar afstöðu VG og Sjálfstæðisflokks í Evrópumálum. En hvað um frostpinnana í ríkisstjórn? þola þeir alkul í valdastólum? eða roðnuðu þeir af skömm yfir fjárlagatillögum nýja Íslands?

    11.12.2008, kl. 12:36 | #

  4. Þröstur Ólafsson skrifar:

    Hver segir að sveigjanleikinn þurfi að vera í aðra áttina. Hvað með að láta málin að fara í eðlilegt umræðuferli og taka svo afstöðu. Flýtimerðferð i þessum efnum er ekki af hinu góða. Mér virðist sveigjanleikinn ekkert vera meiri samfylkingar megin.

    11.12.2008, kl. 14:23 | #

  5. Ólafur skrifar:

    Valgerður, ég deili með þér draumi um velferðarstjórn VG og Samfylkingar.

    Þú virðist hins vegar illa að þér í stefnu VG og ættir að kynna þér málin betur áður en þú ferð að fella dóma. VG er flokkur sem berst fyrir lýðræði. Grundvallarstefnumótun VG fer fram á lýðræðislegan hátt; landsfundur mótar stefnuna. Stjórn VG hefur ekki umboð flokksmanna til að kúvenda stefnu í Evrópumálum nema slíkt sé samþykkt á landsfundi.

    Auk þess þarftu að gera þér grein fyrir því að VG er flokkur hugsjóna. VG myndi aldrei selja hugsjónir sínar fyrir völd og taka allt í einu að berjast fyrir ESB til að komast með Samfylkingu í ríkisstjórn.

    VG vill setja Evrópumálin í lýðræðislegan farveg og láta þjóðina skera uppúr um aðild að ESB eftir að upplýst umræða hefur farið fram í þjóðfélaginu. Verði það niðurstaða Íslendinga að ganga í ESB þarf sú ákvörðun að vera tekin eftir vel upplýsta umræðu og með langtímahagsmuni þjóðarinnar í huga. Samfylkingin vill einfaldlega stökkva inn.

    VG og Samfylkingin ættu að mynda ríkisstjórn eftir næstu kosningar um velferð í landinu. Misjöfn afstaða til aðildar að ESB ætti ekki að koma í veg fyrir samstarf VG og Samfylkingar, enda á það að vera þjóðarinnar að skera úr um aðild að ESB, ekki ríkisstjórnar Íslands.

    11.12.2008, kl. 15:47 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Valgerður Halldórsdóttir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica