Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Svei þér, Jón Trausti

18.12.2008 19:06

freyr_rognvaldsson

Þau vandræði sem að Reynir Traustason er búinn að koma sjálfum sér og DV í valda mér engri þórðargleði. Síður en svo. Öllu heldur verð ég dapur yfir því að boðberi sannleikans, sem að Reynir hefur gefið sig út fyrir að vera, skuli þegar allt kemur til alls ekki vera meiri maður en raun ber vitni. Í allri hans framgöngu gagnvart fyrrum undirmanni hans Jóni Bjarka Magnússyni hefur birst, grímulaust, að Reynir er boðberi síns eigin sannleika. Sannleika sem að kemur honum vel og þeim sem að geta haft áhrif á það sem að kemur Reyni vel. Sannleikur Reynis reyndist vera lygi. Yfir því gleðst ég ekki.


Hins vegar fauk í mig þegar að ég las leiðara Jóns Trausta, sonar Reynis í DV í dag, fimmtudaginn 18. desember. Þar fer Jón Trausti mikinn um illa meðferð auðmanna á fjölmiðlum á síðustu misserum. Ég get sannarlega tekið undir með Jóni Trausta um þá að afskipti auðmanna og auðvalds af fjölmiðlum eru ósvinna sem ekki á að líða. Það gerði Reynir hins vegar þegar hann kom í veg fyrir birtingu fréttar um hvað Sigurjón Árnason væri að sýsla, eftir að haft var í hótunum um að DV yrði knésett ef að fréttin birtist.

Hinar litlu sakir

Það fellur hins vegar ansi harkalega á glanspappírinn hann Jón Trausta, þegar litið er á seinni hluta leiðarans sem hann skrifar. Þar barmar Jón Trausti sér yfir því að hann hafi verið gerður tortryggilegur í ýmsum fjölmiðlum fyrir litlar sakir. Hverjar voru þær sakir? Skoðum brot úr leiðara Jóns Trausta:

Ákveðinn hópur fólks stundar hatursáróður gagnvart blaðinu í ræðu og riti. […] Þannig var undirritaður gerður tortryggilegur í Morgunblaðinu og Kastljósinu vegna þess að gömul útgáfa af leiðara var birt á DV.is í fyrradag.

Undirritaður hafði uppfært leiðarann kvöldið áður í umbrotskerfi fyrir prentun, með þeim hætti að gagnrýni á brot fyrrverandi blaðamanns DV var tekin út, og almennum útskýringum á gildum eðlilegrar blaðamennsku bætt við. Leiðari sem fór til prentunar í blaðinu var því réttur. Eldri útgáfa var hins vegar tekin af ritstjórnarkerfi og birt fyrir mistök á vefnum morguninn eftir. Það var síðan leiðrétt, en Morgunblaðið og 20 bloggarar þess kusu að hunsa þær skýringar og halda áfram rógsherferð. Þetta geta umbrotsmenn DV staðfest, sem og starfsmaður DV.is og fréttastjóri á vakt.

Einmitt, Jón Trausti skilur ekkert í því að mönnum finnist athugavert að hann úthúði blaðamanninum Jóni Bjarka Magnússyni fyrir að hafa viljað birta „óstaðfestan söguburð úr einkasamtölum en ekki sannleika“ eins og JónTrausti orðaði það í þeirri útgáfu leiðarans sem hann var ekki búinn að uppfæra, eins og hann orðar það svo pent. Það er erfitt þegar lygavefurinn brestur undan fótum manns.

Lítilmótleg rógsherferð

Reynir Traustason og Jón Trausti eyddu heilum degi í að rægja Jón Bjarka, gera hann tortryggilegan. Til þess notuðu þeir lítilmótlegar aðferðir. Í yfirlýsingu þeirra feðga sem að send var út mánudaginn 15. desember síðastliðinn segir meðal annars:

Jón Bjarki hefur ekkert fyrir sér hvað það varðar að hótanir hafi átt sér stað. Hann staðhæfir að stórir aðilar hafi haft í hótunum við DV. Það er algjörlega óstaðfest ásökun og lýsir vel þeirri herferð sem hann hefur nú lagt upp í. Hann réðst gegn eigin blaði með tilhæfulausum ásökunum sem bera vott um afleita blaðamennsku. Hann hafði í hótunum við ritstjóra til að fá að birta óstaðfestar ásakanir sínar eða fara fram með þær sjálfur að öðrum kosti.

Þetta ekkert, sem Jón Bjarki hafði fyrir sér, voru orð Reynis sjálfs sem opinberuðust landsmönnum í upptöku sem spiluð var í Kastljósi þetta sama kvöld. Já, svei því að einhver skuli voga sér að vekja athygli á því að Jón Trausti skuli hafa breytt leiðara sínum eftir að lygin var afhjúpuð. Svei því, að einhver skuli voga sér að halda því fram að hann hefði ekki gert það ef engin hefði verið upptakan af samtali Jóns Bjarka og Reynis. Svei því, að einhver skuli hafa orð á því að þeir feðgar hafi ekki séð ástæðu til að biðja Jón Bjarka afsökunar á því að hafa blygðunarlaust logið upp á hann og rægt hann í heilan dag.

Nei, Jón Trausti, svei þér.

Freyr Rögnvaldsson

Senda grein


Freyr Rögnvaldsson

Þetta vefsvæði byggir á Eplica