Fleiri eldhúsdaga á Austurvelli
Aldrei hefur samlíking Davíðs Oddssonar á Alþingi við Gaggó Vest átt betur við en undanfarnar vikur. Á Alþingi hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins vaðið uppi eins vandræðaunglingar sem búnir eru að dúsa 18 ár í skammarkróknum. Þeirra eini tilgangur á þingi virðist vera að trufla störf þingsins og draga athyglina að aukaatriðum – sjálfum sér. Ekki er heldur traustvekjandi að horfa upp á aðra þingmenn taka þátt í þessum skrípaleik Sjálfstæðisflokksins.
Þegar ljóst varð að hér yrði minnihlutaríkisstjórn vöknuðu vonir um að Alþingi endurheimti völd og virðingu sem þingi ber. Sjálfstæðisflokkurinn sá um að eyða öllum slíkum vonum á fyrsta starfsdegi þingsins eftir stjórnarskiptin.
Þegar litið er yfir framlag Sjálfstæðisflokksins á þingi undanfarnar tvær vikur þá kemur það ekki á óvart að almenningur hafi misst alla trú á Alþingi, stjórnmálamönnum og stjórmálum yfir höfuð. Á fyrsta degi gerðu þingmenn flokksins upphlaup um að meirihluti þingsins vildi kjósa sér nýjan forseta, sem ekki væri Sjálfstæðismaður. Næsta degi eyddu þeir í óskiljanlegt þras um höfundarétt á lagafrumvörpum. Þriðji dagurinn fór í að tefja lagafrumvarp sem á að breyta yfirstjórn Seðlabanka Íslands úr biðstofu úreltra stjórnmálamanna eftir ofureftirlaunum í faglega stofnum. Og svona hefur þetta gengið dag frá degi.
Niðurlæging Sjálfstæðisflokksins á Alþingi náði vonandi hámarki gær þegar Geir H. Haarde, formaður flokksins, sakaði Jóhönnu Sigurðardóttir, forsætisráðherra, um að ljúga að þinginu. Síðan hefur komið í ljós að þær ásakanir voru úr lausu lofti gripnar – byggðar á því að að Geir misskildi tölvuskeyti. Geir hefur ekki beðiðst afsökunar á þessum ásökunum – ekki frekar en á öðrum mistökum sínum.
Ekki er útilokað að fólkið í landinu velti því nú fyrir sér hvötum þingmanna Sjáflstæðisflokksins. Ríkisstjórnin hefur minnihluta þingsins á bak við sig og því geta Sjálfstæðismenn haft úrslitaáhrif á þingstörfin. Hvernig þeir hafa farið með þessi áhrif segir sína sögu um flokkinn sem setti Ísland á hausinn og neitar allri ábyrgð á því sem gerðist.
Voru búsáhöldin lokuð of snemma inni í eldhússkápunum? Kannski þarf fleiri eldhúsdaga á Austurvelli?
Athugasemdir (7)
-
ragnheiður Gestsdóttir skrifar:
Pottarnir og sleifarnar eru ekki langt undan og þjóðin er ekki enn búin að gleyma taktinum.
-
kolbrún engilbertsdóttir skrifar:
Það má aldrei verða, að sjálfstæðisflokkurinn komist aftur til valda eftir næstu kosningar í vor,
Þeir tala um valda - missinn sem einhvernskonar svartadauða og að það verði bara plága sem komi til með að ríkja á Íslandi nái þeir ekki völdum aftur sem fyrst. -
Þórarinn S Andrésson skrifar:
Það er líka fyndið að sjá Sigurð Kára, nú er farið að heyrast aftur í honum.
En ég hef varla séð hann koma fyrir síðan ósköpin gengu af stað yfir okkur!!
en það má ekki gefast upp og það verður að halda áfram að halda þessu pakki frá Ríkisstjórnn enda er það margra ára vinna að koma á lífsviðurværi aftur .
kv Tóti -
Grétar Magnússon skrifar:
Nokkrir góðir punktar frá þér en það má í raun skipta út Sjálfstæðisflokknum fyrir Vinstri Græna í þessari upptalningu á "óskiljanlegu þrasi" og "tafir á lagafrumvarpi" þegar VG voru í stjórnarandstöðu. Menn eru fljótir að gleyma og því vert að minna á að æði oft töfðu Ögmundur Jónasson og aðrir ágætir þíngmenn afgreiðslu frumvarpa með málþófi og óskiljanlegu þrasi. Þér hefur væntanlega ekki þótt það ámælisvert við störf þingsins þá eða hvað ?
-
Soffía skrifar:
Ögmundur og félagar reyndu vissulega að tefja fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn einkavinavæddi Ísland til andskotans. Það var ekki ámælisvert, en gekk því miður ekki vel. Það var ekkert óskiljanlegt við þann málflutning sem reyndist eiga fullkomlega rétt á sér. Þras Sjálfstæðismanna núna snýst fyrst og fremst um að tefja fyrir framfaramálum og fyrir því sem almenningur hefur krafist. Tefja fyrir öllu sem gæti svipt þá frekar völdum og þvælast að öðru leyti fyrir með þrasi um að þeir hafi sjálfir skrifað alveg eins frumvörp.
-
Elías Jón Guðjónsson skrifar:
Grétar Magnússon:
Í flestum tilvikum, þó ekki öllum, byggðist gagnrýni Vinstri grænna í stjórnarandstöðu á málefna- og hugmyndafræðilegri stefnu flokksins.
Gagnrýni Sjálfstæðisflokksins byggist ekki á neinu slíku, nema stundum þegar þingmenn flokksins eru að hvetja Vinstri græn til að fylgja sinni róttæku lýðræðis- og vinstristefnu. Mér þætti það mjög eðlilegt ef Sjálfstæðisþingmenn myndu gagnrýna störf ríkisstjórnarinnar út frá sinni eigin stefnu, en þeir virðast ekki einu sinni hafa trú á henni sjálfir.
Þú getur fullvissað þig um það að ef þingmenn Vinstri grænna, eins og annarra flokka, hegðuðu sér á jafn fíflalegan hátt og þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa gert undanfarnar vikur þá myndi ég ekki sitja á mínum athugasemdum við það. Líklega myndi ég taka enn dýpra í árinni því ég geri meiri kröfur til þeirra. -
Skafti Steinólfsson skrifar:
Þeir kunna ekki að tapa greyin,búnir að vera á jötunni í 18 ár. Sjálfstæðisflokkurinn er alveg trylltur,búinn að tapa sér og þá gera menn oft mistök en þeir geta ekki tafið endalaust á alþingi. Nú er lag hjá þeim að taka til í eigin flokki og reka út frjálshyggjuguttana og gæslumenn stórkaupmanna.
Það eru nefnilega góðir menn í öllum flokkum,meira að segja í Sjálfstæðisflokknum.
Nú fer að koma í ljós fyrir hverja þeir eru að vinna....fólkið í landinu eða flokksgæðingana
Skafti


Skrifa athugasemd