Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Tækifæri fjölmiðla

24.11.2008

elias_jon_gudjonsson2

"Íslenski draumurinn" var aldrei neitt annað en draumur. Flestum Íslendingum er það nú ljóst. Það blasir nú  við að stefna þeirra stjórnmálamanna sem hér hafa stjórnað undanfarin 17 ár var hol að innan og er nú hrunin eins og spilaborg.  Blekking í fallegum umbúðum. En hverjum er um að kenna? Fólkinu, sem kaus sömu valdhafana yfir sig aftur og aftur?

Fólkinu í landinu verður ekki kennt um það sem miður fór. Mistök þess voru í því fólgin að láta blekkjast til þess að treysta nýfrjálshyggjunni fyrir velferð sinni og lái þeim hver sem er. Það var villt um fyrir fólki þar til að öllu var kippt undan fótum þess og það er enn gert. En hvernig í ósköpunum var hægt að villa um fyrir almenningi svona lengi?  Var eftirlit fjölmiðlanna, fjórða valdsins, sem almenningur á að geta reitt sig á að sé óháð og gagnrýnið það ekki?.

Á meðan ríkisstjórnin telur "ekki tímabært" að hefja rannsókn á því hvernig "þetta gat allt gerst" vill almenningur hefjast handa núna. Því allir sem ekki eru blindir sjá að að rannsókn þolir ekki bið.  Almenningur er löngu farinn að taka saman lista yfir hina grunuðu. Í síðastliðinni viku bættust fjölmiðlar á þann lista.

Á fjölmennum borgarafundi á skemmtistaðnum NASA við Austurvöll fyrir viku síðan kom fram hörð gagnrýni á frammistöðu fjölmiðla í aðdraganda hrunsins. Sumir vildu meina að öll stéttin hafi brugðist. En það er ekki er sanngjarnt að benda á hvern einn og einasta fjölmiðlamann. Sannleikurinn er ekki svo einfaldur. Hér á landi eru margir framúrskarandi fréttamenn sem hafa það eina markmið að færa fólkinu réttar og nauðsynlegar upplýsingar, stundum óþægilegar, og hafa lagt mikið á sig við það. Það voru því ekki endilega blaðamennirnir sjálfir sem brugðust heldur aðstæðurnar sem þeir starfa við,  undir eigendum og stjórnendum fjölmiðla.

Margoft hefur verið bent á tengsl yfirmanna helstu fjölmiðla landsins við Sjálfstæðisflokkinn, gegnum árin. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú setið 17 ár samfellt í ríkisstjórn. Allan þann tíma hefur menntamálaráðherra, sem jafnframt er æðsti yfirmaður Ríkisútvarpsins, komið úr hans röðum. Á þeim tíma hafa ráðningar á fólki tengdu Sjálfstæðisflokknum inn á fréttastofum RÚV verið óþægilega áberandi. En það er ekki bara Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur haft klærnar í fjölmiðlum landsins. Auðmennirnir hafa líka tryggt sig. Jón Ásgeir Jóhannesson var stærsti eigandi 365 og Björgólfsfeðgar voru stærstu eigendur Árvakurs. Stjórnarformaður Árvakurs er fyrrverandi framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands og núverandi formaður Samtaka atvinnulífsins. Forstjóri 365 er fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og aðstoðamaður ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Síðast nú um helgina hafa blossað upp umræður um meinta misnotkun eigenda á fjölmiðlum sínum.

Það var óþægilegt þegar ég ræddi við rússneska blaðamanninn og samviskufangann Grigory Pasko um stöðu fjölmiðla í heimalandi hans að ég skuli fundið einhverja samsvörun á milli ástandsins þar og hér. Auðvitað var skoðanakúgunin aldrei á sama stigi hér og hún er þar, en hún var til staðar. Það sem er sambærilegt er að einn ákveðinn stjórnmálaflokkur og nokkrir auðmenn hafa haft tangarhald á íslenskum fjölmiðlum á undanförnum árum. Í slíku ástandi er ekki von á gagnrýnni umfjöllun um valdhafa. Eina gagnrýnin sem var leyfð var hluti af valdabaráttu milli þeirra hópa sem réðu yfir fjölmiðlunum.

Þar er ekki við einstaka fjölmiðlamenn að sakast, þeir eru mannlegir og vilja halda vinnunni sinni eins og aðrir, þó að margir megi vissulega líta í eigin barm. Fjölmiðlafólk var kúgað og það er erfitt að skamma það fyrir það. Það versta var að fæstir áttuðu sig á því að kúgunin væri til staðar. Þeir sem gerðu það máttu búast við því að það hefði áhrif á starfsframa þeirra. Normið var að fylgja valdhöfum, þeir sem gerðu það ekki voru litnir hornauga. Fjölmiðlafólk gerði sömu mistök og flest allar stéttir samfélagsins. Það skorti samstöðu. Samstöðu til þess að standa vörð um fagið og koma í veg fyrir kúgun valdastéttanna. Samstaða er eina vopnið gegn kúgandi yfirvöldum, en það er erfitt að mynda samstöðu gegn jafnt sterku afli og við var etja og því mannlegt að hver hugsaði um sig.

Nú eru blekkingarnar  afhjúpaðar. Ríkistjórnin og Sjálfstæðisflokkurinn hefur þverrandi áhrif í samfélaginu og það sama á við um auðmennina. Það er því engin ástæða fyrir fjölmiðlafólk að halda áfram að beygja sig fyrir þeim. Nú er tíminn fyrir það til þess að rísa upp og sýna hvað í því býr. Það skiptir engu máli þótt atvinnuöryggi fjölmiðlafólks sé í sögulegu lágmarki. Fjölmiðlafólk einfaldlega skuldar fólkinu í landinu að það rífi sig úr þeim fjötrum sem það hefur verið í.

Elías Jón Guðjónsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Elías Jón Guðjónsson

Þetta vefsvæði byggir á Eplica