Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Hver er þjóðin?

9.12.2008 12:39

elias_jon_gudjonsson2

„Þið eruð ekki þjóðin,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um gesti borgarafundar í Háskólabíó fyrir hálfum mánuði síðan þegar hún var spurð hvenær hún og aðrir ráðherrar ráðherrar ríkisstjórnarinnar ætluðu átta sig á því að þjóðin vildi þau ekki. „Fjarstæðukennt rugl“ kallaði Geir H. Haarde svo spurningu eins gestanna. Þau vilja hvorug kjósa, enda í „miðjum björgunaraðgerðum“ eins og þau kalla það.

Síðan þá hafa birst skoðanakannanir sem gefa til kynna að tveir þriðju þjóðarinnar vilja ekki ríkisstjórn Ingibjargar og Geirs.  Þá benda skoðanakannanir einnig til þess að tveir þriðju hlutar þjóðarinnar vilji kosningar fyrr en síðar. Þriðja könnunin bendir svo til þess gestir borgarafundarins í Háskólabíó voru fulltrúar rúmlega helmings þjóðarinnar.

Í tvo mánuði hefur fólk safnast þúsundum saman á kröfufundum undir ýmsum formerkjum. Fjölmargar kröfur hafa verið settar fram. En aðeins ein krafa hefur verið sett fram á þeim öllum. Það er krafan um kosningar.

Hverjir eru þá þjóðin? Eru það ekki þeir sem krefjast kosninga? Þeir eru það að minnsta kosti samkvæmt skoðanakönnunum. Og á meðan við við fáum ekki að kjósa þá höfum við ekki betra tæki til þess að svara þessari spurningu.

Ríkisstjórnin segist vera í björgunaraðgerðum og á meðan á þeim standi megi ekki kjósa. En hverjum er hún að bjarga? Ekki treystir þjóðin henni til þess að bjarga sér. Hverjum er hún þá að bjarga? Sjálfri sér? Er ekki kominn tími til þess að þau Ingibjörg og Geir íhugi hvaða rugl sé fjarstæðukenndast og spyrji sig aftur hver er þjóðin. Skildu þau, að því loknu, áfram áfram treysta sjálfum sér betur en fólkinu eða munu þau boða til kosninga?

Senda grein

Athugasemdir (2)

  1. Sigurður skrifar:

    Við þurfum engar kosningar.

    Fólk mun bara kjósa íhaldið aftur, eins og alltaf. Það er fjarstæðukennt rugl að leyfa sér að trúa öðru.

    9.12.2008, kl. 14:36 | #

  2. Lilja skrifar:

    Það er vandlifað fyrir ráðamenn þegar þeir lenda í sal með röngu úrtaki af þjóðinni. Hvað er rétta úrtakið sem þeim hentar? Sá litli þriðjungur af þjóðinni sem enn vill sjá þau við völd? Eða hirð Ingibjargar Sólrúnar sem hún tekur með sér hvert sem hún fer?

    Ég fæ gubbuna þegar talað er um björgunarleiðangurinn. Þau eru að gera illt verra með hverri vikunni og það er verið að sökkva okkur enn dýpra næstu áratugi. Þetta fólk er engan veginn starfi sínu vaxið enda innmúrað í spillinguna. Allt þetta gerðist á þeirra vakt og nú eru þau að klúðra málum dag frá degi. Ránfuglinn burt.

    9.12.2008, kl. 15:53 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Elías Jón Guðjónsson

Þetta vefsvæði byggir á Eplica