Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

NEI: skv. 194. gr. hgl.

10.12.2008 8:04

drifa_snaedal

Samkvæmisleikur dagsins er að velta því fyrir sér hvað þarf til þannig að Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttadómari líti á ofbeldi gegn konum sem refsiverða háttsemi. Konungur sératkvæðanna í hæstarétti gerir það ekki endasleppt í dómi sem féll fyrir viku yfir Hótel Sögu nauðgaranum. Í sex kafla sératkvæði leitar Jón Steinar allra leiða til að réttlæta sýknu yfir manni sem elti ókunna konu niður á salerni hótelsins og nauðgaði henni eins og líkamlegir og andlegir áverkar hennar vitna um.

Hártoganirnar í sératkvæðinu er verðugt verkefni fyrir orðræðugreinanda enda brýtur Jón Steinar blað í dómasögu með útúrsnúningi og þrætum við héraðsdóminn sem til allrar lukku dæmdu manninn sekan. Hvað þýða til dæmis þessar setningar:

...Af þessu sést að í forsendum hins áfrýjaða dóms er ekki leyst úr því álitaefni sem einkum er umdeilt í málinu, það er að segja hvort ákærða hafi mátt vera ljóst þegar hann leitaði kynmaka við kæranda að hún væri þeim andvíg.

...Vilji eða óvilji kæranda og ákærða til kynmaka áður en til samskipta kom inni á salerninu getur að mínu áliti ekki ráðið mati á hugrænni afstöðu ákærða til hins ætlaða brots.

...að rétturinn hafi ekki talið það ráða úrslitum við mat á hugrænni afstöðu ákærða, hvort kærandi hafi látið ætlaða afstöðu sína til kynmaka koma fram eftir að samskipti ákærða og hennar inni á salerninu hófust.

Hjálp, getur einhver sagt hvað manninum gengur til? Hvernig lætur kærandi ætlaða afstöðu sína til kynmaka koma fram svo ráði úrslitum um hugræna afstöðu ákærða? Finnst Jóni Steinari það fullkomlega eðlileg hegðun að maður fari inn á salerni til konu sem hann þekki ekki neitt og hafi við hana „kynmök“ og ef hún aðhefst ekkert þá er það bara allt í lagi. Þess skal getið að algengustu viðbrögð kvenna við nauðgun er að gera ekkert til að hafa betri möguleika á að lifa nauðgunina af – þær einfaldlega frjósa og gefa ekki frá sér hljóð. Hvað átti konan að gera? Hún hefði vissulega getað hrópað af öllum lífs og sálar kröftum, hún hefði getað veitt líkamlega mótspyrnu fyrr en hún gerði (það var ekki nóg að reyna að komast undan), eða hefði Jón Steinar ekki verið sannfærður um að nauðgun hefði átt sér stað nema konan hafi sagt í heyranda hljóði: NEI, samkvæmt 194. grein almennra hegningarlaga vil ég þetta ekki!

Drífa Snædal


Senda grein


Drífa Snædal

Þetta vefsvæði byggir á Eplica