Vefrit um pólitík og mannlíf
12. mars 2010

Gagnrýnin stjórnvöld óskast

24.11.2008 23:00

armann_jakobsson

Núverandi ríkisstjórn Íslands virðist ekki skilja hvers vegna meirihluti þjóðarinnar vill að hún víki. Þess vegna er rétt að orða það svo skorinort að jafnvel þeir tornæmustu skilji: Kjósendur vilja að ríkisstjórnin víki vegna þess að hún var ekki gagnrýnin þegar þess þurfti. Hún svaf á verðinum. Hún var fangi þeirrar ranghugmyndar að besti vinur viðskiptalífsins sé sá sem leyfir allt og gerir engar kröfur.

Seinustu sex árin hefur ríkt hér andrúmsloft gagnrýnisleysis sem minnir einna helst á það æði sem grípur fólk í óháðum trúarsöfnuðum skömmu áður en það talar tungum. Skýrasta birtingarmynd þess æðis var áróðurinn fyrir kosningarnar 2007 um að þeir sem leyfðu sér að gagnrýna bankana vildu "flæma þá úr landi" - en það var einn versti glæpur sem hægt var að saka nokkurn stjórnmálamann um því að þeir sem þannig töluðu létu sem bankarnir væru bakhjarl þjóðarinnar. Núna hefur komið á daginn að það var öfugt.

Aðalsökudólgarnir eru margir. Bankarnir og eigendur þeirra eru þar fremst í flokki. Ríkisstjórn Íslands og eftirlitsaðilar síðan (Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið). En ekki má heldur gleyma Samtökum atvinnulífsins. Verkalýðshreyfingin er ekki saklaus heldur. Já, og forseti Íslands er í hópnum. Þjóðin sjálf ber svo sína ábyrgð með andvaraleysinu.

Stjórnarandstaðan var ekki saklaus heldur. Ég heyrði frambjóðendur bæði Samfylkingarinnar og hinnar andpólitísku Íslandshreyfingarinnar stæra sig sérstaklega af því að vera ekki fjandsamlegir bankakerfinu eins og Vinstrigræn. Eini flokkurinn sem getur með góðri samvisku sagst hafa varað við er einmitt VG. En jafnvel sá flokkur er ekki alveg saklaus, hann hefði getað gagnrýnt bankana ennþá harðar þó að það hefði komið niður á fylginu.

Það merkir þó alls ekki að lausnin sé sú að fá "hæfa sérfræðinga" utanþingsstjórn eða nýja stjórnmálaflokka. Ekki varð vart við bankagagnrýni nýjasta stjórnmálaflokksins fyrir seinustu kosningar og "hæfu sérfræðingarnir" sem voru gagnrýnir á þensluna og útrásina eru svo fáir að það er ekki hægt að manna heila ríkisstjórn með þeim.

Fólk sem segist vera "á móti öllum stjórnmálaflokkum" er þar með að gefa Sjálfstæðisflokknum syndaaflausn fyrir drjúgum hluta sinnar ábyrgðar. Og fólk sem vill fá "ópólitískt fólk" til að stjórna virðist hafa gleymt því að sá sem segist vera ópólitískur er nánast alltaf sammála ríkjandi viðhorfum meira og minna. Slíkt ópólitískt fólk var alls ekki gagnrýnið á bankana áður en þeir hrundu.

Lausnin getur því aðeins verið sú að þeir sem þó voru gagnrýnastir á helstefnuna sem hér ríkti seinustu árin taki að sér að setjast við stjórnvölinn eftir næstu kosningar. Það kallar á skýrar tillögur um hvað beri að gera. Nú vill svo til að VG á slíkar tillögur og ófáar ræður hef ég heyrt Steingrím J. Sigfússon tala um "lítil og meðalstór fyrirtæki" sem aflvaka framtíðarinnar og nefnt þar m.a. Marel og Össur. Hvernig væri að kynna þessa stefnu betur og finna henni gott heiti sem allir skilja?

En VG mun þurfa að taka saman höndum við aðra við að stýra landinu. Þess vegna er mikilvægt að koma því skýrt á framfæri að það er ekki þessi flokkur sem stendur í vegi fyrir að ný samsteypustjórn verði mynduð með þeim flokkum sem eru hvað líklegastir til að geta losað sig úr thatchersísku hugmyndafjötrunum sem þeir hafa meira og minna allir verið í. Þetta blasir raunar við flestum skynsömum mönnum en þetta þarf að setja svo skýrt fram að jafnvel laghentasta spunakerling geti ekki snúið því á haus.

Höfum eitt í huga: Við stæðum ekki svona illa núna ef stjórnvöld hefðu verið gagnrýnni á auðhyggjuna. Þeir sem voru gagnrýnastir geta því ekki setið hjá heldur verða að lýsa sig tilbúna til að taka forystu í þeirri uppbyggingu sem er framundan. En hún mun ekki snúast eingöngu um heilbrigðara atvinnulíf og sterkari stöðu smærri iðnaðar, þjónustu, landbúnaðar og sjávarútvegs, heldur einnig um það hvernig koma megi í veg fyrir þá mannlegu harmleiki sem eru nú í vændum hjá fjölda íslenskra fjölskyldna. Það er spurningin sem næsta rikisstjórn þarf fyrst og fremst að eiga svör við, en sú sem nú situr á engin.

Ármann Jakobsson


Senda grein

Athugasemdir (3)

  1. Davíð (ekki Oddson) skrifar:

    Er þörf á að rifja þetta upp í ræðu og riti - kosningaslaginn og hvernig menn töluðu

    25.11.2008, kl. 13:46 | #

  2. Eva Hauksdóttir skrifar:

    Fyrsta verkefni nýrrar ríkisstjórnar hlýtur að verða það að breyta stjórnkerfinu þannig að völd safnist ekki á örfáar hendur og hægt sé að komast upp með endalaust leynimakk. Það er alveg sama hvaða flokkur er við stjórn, á meðan það spillingarsukk sem hér hefur viðgengist er aðgengilegur kostur, er alltaf hætta á valdníðslu og vinagreiðapólitík.

    1.12.2008, kl. 2:50 | #

  3. Elisabeth skrifar:

    Kjósendurnir Bandaríkjanna hefur hins vegur ákveðið að veita einum flokkum allt vald. Þannig geta eitthvað breyst.

    5.12.2008, kl. 15:39 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Ármann Jakobsson

Þetta vefsvæði byggir á Eplica