Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Andrés Ingi Jónsson

Kæru Bitru-Ölfusingar

Bitruvirkjun út af borðinu

5.10.2009 Andrés Ingi Jónsson

andres-ingi-jonsson

Kæra skipulagsnefnd Ölfuss,
 
Ég er Ölfusingur. Ég ólst upp á Hjarðarbóli, í skjóli Ingólfsfjalls, með útsýni yfir Forirnar, Ölfusárós og Kögunarhól. Mér þykir vænt um sveitina mína, þó nú séu liðin nokkur ár síðan ég bjó þar.
 
Ég gekk í grunnskóla í Hveragerði, því grunnskólinn í Þorlákshöfn var allt of langt í burtu til að raunhæft væri að sækja hann. Í Hveragerði eignaðist ég vini og fór að þykja vænt um bæinn. Hvergerðingar og Ölfusingar eru svo miklir nágrannar að hagsmunir sveitarfélaganna ættu alltaf að liggja saman.
 
Mig tekur sárt að fylgjast með umræðunni í kringum Bitruvirkjun. Ekki bara vegna þess að mér sýnast áformin vera skipulags- og umhverfisleg fásinna, heldur vegna þess að þau sýna skort á mannasiðum. Hvergerðingar tóku mig og fjöldann allan af Ölfusingum í faðminn – hleyptu okkur í grunnskólann, gáfu okkur aðstöðu til að kjósa í sveitarstjórnarkosningum. Ég vil ekki að Ölfusingar launi vinskapinn með því að troða gufuaflsvirkjun í bakgarð Hveragerðis, þvert ofan í vilja Hvergerðinga.
 
Ég fer fram á hugmyndum um Bitruvirkjun verði ýtt út af borðinu, því ég vil ekki að Ölfusingar verði þekktir fyrir valdníðslu og dónaskap í garð nágranna sinna.
 
Með bestu kveðju og von um að mannasiðir ráði för,
 
Andrés Ingi Jónsson


Ofangreindar athugasemdir hafa verið sendar Sveitarfélaginu Ölfusi.

 

Senda grein

Athugasemdir (2)

  1. VoloBiaffaf skrifar:

    <a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1662174/>central nervous system and inderal</a> , inderal current status medically

    7.6.2010, kl. 1:24 | #

  2. kictEntaica skrifar:

    <a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669214/>inderal side effect</a> , canada inderal buy
    <a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669727/>generic inderal la</a> , inderal increased cardiac perfusion
    <a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669891/>thimus glan inderal</a> , problem using frova and inderal together

    7.6.2010, kl. 21:21 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls skoðavetvangur. Allir geta sína skoðun á því efni sem birtist á Smugunni. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica