Sóley Tómasdóttir
Réttlátari Reykjavík
Því hefur lengi verið haldið fram að á sveitarstjórnarstiginu séu kjörnir fulltrúar yfirleitt sammála, enda sé verið að fjalla um svo sjálfsagða grunnþjónustu að fátt skilji áherslur stjórnmálaflokkanna að. Það má vera að kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum séu oftar sammála en kjörnir fulltrúar á Alþingi, ég hef ekki kannað það sérstaklega, en það skiptir engu að síður gríðarlega miklu máli hvaða flokkar eru í meirihluta. Og líklega skiptir það enn meira máli nú þegar þröngt er í búi.
Starfs sveitarstjórnarfólks felst að mestu leyti í forgangsröðun. Hvaða verkefni eiga að njóta forgangs og hver geta beðið? Hvert á þjónustustigið að vera, við hvað eiga gjaldskrárnar að miða og hvaða hópar skipta mestu máli? Ákvarðanir af þessum toga eru í eðli sínu pólítískar og þá skiptir gríðarlegu máli hvort nálgunin er frá hægri eða vinstri.
Í dag ríkir hægrisinnaður meirihluti í borginni. Meirihluti sem kýs að hækka leikskólagjöld og skera niður grunnþjónustu frekar en að fullnýta útsvar og deila byrðum frjálshyggjuáranna með sanngjörnum hætti. Þessi hægrisinnaði meirihluti hefur það enn á stefnuskrá sinni að virkja á Bitrusvæðinu í þágu álframleiðenda, hann telur eðlilegt að skoða einkavæðingu á Droplaugarstöðum, hann hefur ekki hækkað fjárhagsaðstoð í samræmi við kaupmátt, hann býður upp á heimgreiðslur í stað leikskóla og hann hefur látið málaflokk mannréttinda sitja á hakanum allt kjörtímabilið.
Þessi afmörkuðu verkefni eru til marks um hugmyndafræði núverandi meirihluta. Hugmyndafræði sem gengur út á lága skatta en innheimtu fyrir grunnþjónustu, ágenga nýtingu náttúrunnar í þágu auðvaldsins, einkarekstur í stað sameiginlegrar ábyrgðar og einstaklingshyggu í stað félagshyggju.
Eftir allt sem á undan er gengið í íslensku samfélagi, og Reykjavíkurborg einni og sér, hljóta þessar áherslur að vera á undanhaldi. Það er deginum ljósara að hér þarf að forgangsraða í þágu grunnþjónustu og fólksins í borginni, með sanngjörnum sköttum og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Fyrst og síðast verður þó sá meirihluti sem tekur við að afloknum kosningum að hafa kjark og dug til að axla pólítíska ábyrgð og taka á þeim verkefnum við blasa. Þau koma fyrst og fremst til með að snúast um að fjármagna nauðsynlega grunnþjónustu og tryggja að hún verði í boði fyrir alla borgarbúa, óháð stétt, stöðu, kyni eða efnahag. Þess vegna mun ég leggja mitt af mörkum til að hér verði myndaður vinstrimeirihluti í upphafi sumars.
Athugasemdir (1)
-
S.Á. skrifar:
Sóley: Ætlarðu að beita þér fyrir því, að í gangbrautaljósunum verði kallinum skipt út fyrir konu? Hvað myndi slík aðgerð kosta?


Skrifa athugasemd