Sóley Tómasdóttir
Allir með strætó!
Í borgarstjórn í dag var eftirfarandi tillaga lögð fram af borgarfulltrúum Vinstri grænna:
Borgarstjórn samþykkir að leita eftir samstarfi við Strætó bs um fræðslu fyrir eldri börn í frístundaheimilum borgarinnar. Sérstakur starfsmaður verði fenginn til að fara á milli frístundaheimila með vikunámskeið, þar sem börnin ferðast um í strætó, fá kynningu á helstu strætóleiðum, skiptistöðvum og leiðarkerfinu, hverfum borgarinnar og því sem þau hafa upp á að bjóða.
Strætó fyrir almenning
Strætó er fyrirtæki sem við eigum að vera stolt af. Auðvitað má bæta þjónustu þess á alla kanta, með aukinni tíðni, betra leiðarkerfi, rafrænum greiðslum, rauntímaupplýsingum, upphituðum strætóskýlum og alls konar fleiri hlutum – en í grunninn er þjónustan samt góð, mikilvæg og vel nothæf. Á sama tíma og við lagfærum þá núansa sem til staðar eru, er mikilvægt að vinna markvisst að fjölgun farþega með þeim ráðum sem tiltæk eru hverju sinni.
Eigi að fjölga farþegum í strætó er hugarfarsbreyting nauðsynleg. Strætó er ekki bara fyrir hina – strætó er almennings. Strætó er valkostur sem er í boði fyrir okkur öll – og ef við meinum eitthvað með því þegar við segjumst vilja draga úr svifryki og útblæstri bifreiða, þá eigum við að sjálfsögðu að notfæra okkur þá bíla sem aka allar helstu leiðir í borginni og standa okkur til boða stærstan hluta sólarhringsins. Við þurfum öll að átta okkur á kostum strætó.
Ég vildi óska að til væri töfralausn til að ná fram hugarfarsbreytingum. Þá gætum við kippt í liðinn alls kyns málum, s.s. jafnrétti kynjanna, verndun náttúrunnar, upprætt ofbeldi og vanrækslu í garð barna og fleira og fleira. En töfralausnin er því miður ekki til.
Börn og strætó
Þegar kallað er eftir hugarfarsbreytingum hefur reynst árangursríkast að beina sjónum sínum að börnum og þar með komandi kynslóðum. Börn eru fordómalausari en við fullorðna fólkið og ekki hrædd við nýjungar. Þau eru fljót að tileinka sér nýja hugsun og ný vinnubrögð. Auk þess verða þau fullorðin einn góðan veðurdag og búa þá að þeirri reynslu, þekkingu og færni sem uppeldið skilaði.
Þess vegna skiptir máli – ef við viljum fjölga farþegum í strætó um leið og við bætum þjónustuna – að börn læri á strætó og kynnist honum með jákvæðum hætti. Það er nefnilega þannig að mjög mörg – ef ekki velflest börn á þeim aldri sem hér um ræðir – fara aðeins í strætó í skipulögðum ferðum skóla eða annarra aðila utan heimilis. Í þessum skipulögðu ferðum fá börnin litla sem enga fræðslu um strætó, eða þjálfun í að nýta þjónustuna. Ferðin er skipulögð af fullorðnum og börnin fylgja. Fá börn nota strætó að jafnaði í eigin ferðum – og enn færri á ferðum með fjölskyldunni.
Námskeiðin ganga út á að veita eldri börnum í frístundaheimilum þjálfun í að fara ferða sinna sjálf í strætó. Þau verða miðuð við hverfi barnanna hverju sinni, kenndar verða einföldustu leiðir til íþróttafélaga, skáta, dans-, mynd- og tónlistarskóla eða á þá staði sem börnin eiga erfitt með að komast fótgangandi frá því frístundaheimili sem um ræðir hverju sinni. Þau kynnast helstu skiptistöðvum í nágrenninu, læra undirstöðuatriði í kortalestri og fá að kynnast borginni frá ágætu sjónarhorni út um glugga vagnanna.
Frístundaheimilin og strætó
Námskeið sem þessi eiga að vera í boði á vegum frístundaheimila en ekki skóla eða annarra aðila. Hlutverk frístundaheimilanna er að efla og styrkja og hvetja börnin til að njóta og nýta frítíma sinn. Starfsfólk frístundaheimilanna þekkir áhugamál barnanna og er því vel í stakk búið til að kynna helstu leiðir að þeim svæðum eða stöðum sem iðkun þeirra fer fram.
Námskeiðin munu auka sjálfstraust og getu barnanna til að skipuleggja og nýta frítíma sinn betur. Á sama tíma má gera ráð fyrir að ef börnin komast upp á lag með að nota strætó á þessum aldri, þá verði þau virkari notendur og noti strætó lengur. Aukin strætónotkun barnanna mun svo án efa létta á foreldrum sem verja allt of löngum tíma í að aka börnum sínum milli frístundatilboða. Þannig munu námskeiðin draga úr útblæstri bifreiða, svifryksmengun og sliti á götum.
Tillögunni var vel tekið á fundi borgarstjórnar, þar sem henni var vísað til meðferðar íþrótta- og tómstundasviðs og umhverfis- og samgöngusviðs.
Sóley Tómasdóttir
borgarfulltrúi Vinstri grænna


Skrifa athugasemd