Eigi skal virkjað við Þjórsá!
Hugsjónir byltingarinnar verða að tala
Eftirfarandi frétt mátti lesa í Dagskránni – Fréttablaði Suðurlands þann 13.nóvember 2008:
Orkan úr Þjórsá verði nýtt heima í héraði
Á mánudaginn var boðað til fundar í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þar sem Þjórsársveitir, verkefni á vegum fjögurra sveitarfélaga, þ.e. Ásahrepps, Flóahrepps, Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps var kynnt. Tilgangur verkefnisins er m.a. að vinna að því að orkan fráfyrirhuguðum virkjunum á svæðinu verði nýtt til atvinnuuppbyggingar á Þjórsársvæðinu, þ.e. í sveitarfélögunum fjórum. Ætlunin er að bjóða atvinnutækifærum í orkufrekum iðnaði aðstöðu til uppbyggingar í Þjórsársveitum. „Við viljum að orkan úr Þjórsá verði notuð heima í héraði, svo einfalt er málið“, sagði Örn Þórðarson, sveitarstjóri Rangárþings ytra og forsvarsmaður framkvæmdanefndarinnar, sem skipuð er sveitarstjórum og oddvitum sveitarfélaganna. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar var með erindi á fundinum þar sem hann kynnti stöðuna á virkjunarmálum í neðri hluta Þjórsár. Hann lagði mikla áherslu á að virkjað yrði í þessari röð, fyrst Hvammsvirkjun, síðan Holtavirkjun og loks Urriðafossvirkjun en hann lagði mikla áherslu á Urriðafossvirkjun, hún yrði að vera með í öllu ferlinu því hún væri verðmætasta virkjunin af þessum þremur. MHH
Samkvæmt ofangreindri frétt hafa sveitarstjórnir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og í Flóahreppi þegar lýst því yfir að orka úr Þjórsárvirkjunum, verði hún einhvern tímann á verkfræðilega nýtanlegu formi, skuli nýtt í heimabyggð. Að sama skapi lýsti Össur Skarphéðinsson því yfir samkvæmt frétt á vísir.is þann 05. jan. 2009, að þótt hann hefði gefið grænt ljós á stuðning ríkisstjórnarinnar við 360 þúsund tonna álver í Helguvík, yrði ekki þörf á virkjunum í neðri hluta Þjórsár.
Nú virðist eitthvað annað vera uppi á teningnum. Vilhjálmur Egilsson, einn af aðal reglugerðarsmiðum bankahrunsins, talar um að ryðja þurfi öllum hindrunum úr vegi til þess að hægt verði að virkja við Þjórsá. Katrín Júlíusdóttir ræðir einnig um Þjórsárvirkjanir eins og þær séu sjálfsagður hlutur og reifar í fjölmiðlum að nota skuli orkuna úr þeim í Helguvík.
En virkjanir í neðri hluta Þjórsár eru langt í frá að vera sjálfsagður hlutur. Bæði Vilhjálmur og Katrín gleyma því að á Þjórsársvæðinu og langt uppeftir Þjórsárdal býr fólk sem á beina aðild að málinu, - eða á ég að segja landeigendur. Stór hluti íbúa, landeigenda og sumarhúsaeigenda við Þjórsá vill alls engar virkjanir í Þjórsá, hvorki til nýtingar í heimabyggð, né annarsstaðar. Þessi hópur fólks hefur sýnt ótrúlegt hugrekki og einurð gagnvart ótrúlegum hroka og yfirgangi Landsvirkjunar á svæðinu, og það er langt í frá að íbúar á svæðinu séu með einhvern uppgjafartón. Eigi skal virkjað við Þjórsá!
Látið hugsjónir byltingarinnar tala!
Staðreyndin er sú, eins og Össur Skarphéðinsson sagði réttilega í þetta skiptið, að Þjórsárvirkjanir koma álveri í Helguvík hreint ekkert við. Mér skilst að nánast sé búið að ganga frá öllum leyfum varðandi Helguvík, en að það strandi fyrst og fremst á verulegri tregðu á erlendu fjármagni og erlendum lánum sem enn frekar eiga að festa Landsvirkjun og íslenskan almenning í skuldasúpunni (því ekki skilar Helguvík arði til íslensks almennings – það er af og frá). Látum það vera. Ef Suðurnesjamenn vilja lifa og starfa í óheilnæmum mengunarskugga álversins í Helguvík þá er það í sjálfu sér þeirra mál. En orku fá þeir ekki frá Þjórsá.
Það mun fyrr rigna eldi og brennisteini innan VG og reyndar innan ríkisstjórnarinnar allrar og inni á Alþingi, áður en virkjanir í neðri hluta Þjórsár verða að veruleika. Andstaða íbúa við Þjórsá og sá stuðningur sem þeir hafa er mun víðtækari og almennari, en frjálshyggjupostular eins og Vilhjálmur Egilsson gera sér ljóst. Auk þess er rétt að benda á, að Samfylkingin hefur þegar fengið mörgum af sínum helstu stefnumálum innan þessarar ríkistjórnar framfylgt. Nú er kominn tími til að VG sæki sinn rétt inni í þessu ríkisstjórnarsamstarfi og krefjist þess að álver í Helguvík verði knúið áfram, ef knýja skal það yfirleitt, - ÁN ÞJÓRSÁRVIRKJANA. Samfylkingin skuldar VG núna a.m.k. jafnvirði allra virkjana í neðri hluta Þjórsár. Ef forysta VG ætlar að láta valta yfir sig í sambandi við Þjórsárvirkjanir og leyfa þær, er ljóst að hún verður einangraðri innan síns eigins stjórnmálaflokks en Kúba á dögum Kalda Stríðsins. Þá gæti það gerst sem forysta VG ætti að óttast meira en afleiðingar höfnunar Icesave-samningsins, - að þeirra eigin flokkur standi undir nafni og láti einfaldlega hugsjónir byltingarinnar tala.
