Vefrit um pólitík og mannlíf
3. september 2010

Þeir sem selja landið

Það eru ennþá til menn sem vilja selja auðlindirnar

3.7.2009 12:24

ingibjorg-e-bjornsdottir

Til þess að erlend stórfyrirtæki nái tangarhaldi á auðlindum sjálfstæðs lýðræðisríkis e.t.v. með hjálp Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þarf samvinnu við valdastétt viðkomandi lands. Valdastéttin þarf að vera tilbúin til að selja landið og svíkja þjóð sína og fá fyrir í staðinn  hlut í ágóðanum sem af sölunni skapast. Þannig var t.d. Boris Jeltsín í Rússlandi meira en tilbúinn til þess að selja auðlindir Rússa í hendur erlendum stórfyrirtækjum og reyndar líka í hendur innlendra vina og vandamanna. Í staðinn hagnaðist hann persónulega og fjölskylda hans um milljarða. Án góðrar samvinnu Borisar Jeltsín við Vesturveldin og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hefði einkavæðing Rússlands aldrei getað átt sér stað á þann hátt sem varð, en talið er að um 10% Rússa hafi týnt lífi sínu m.a. vegna þessa einkavæðingaferlis.

Bæjarstjóri reddar sér með álveri

Á sama hátt er ljóst að Ísland væri ekki í þeirri stöðu sem það er í dag, nema vegna þess að það hefur verið valdastétt hér á landi, bæði innan viðskiptalífsins og stjórnmálanna sem hefur verið tilbúin til þess að svíkja land sitt og selja það í hendur erlendum auðhringjum. Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn voru þeir flokkar sem börðust harðast fyrir því að Alcoa og Rio Tinto fengju hagstæðan aðgang að íslenskum auðlindum. Spurningin hlýtur að vakna hvað umræddir flokkar hafi fengið í staðinn?  Og núna er Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, að reyna að pranga út Hitaveitu Suðurnesja til erlendra aðila, að því virðist helst í því skyni að fá inn erlent fjármagn til þess að hægt sé að byggja hið vonlausa álver í Helguvík. Fjárhagsstaða Reykjanesbæjar er víst einnig svo hroðaleg að líkja mætti við Kaupþing í Lúxembúrg (Litlu hryllingsbúðina), enda ætlar fyrrnefndur bæjarstjóri að „redda sér“ með álverinu alveg án tillits til þess hvort að téð álver er hagkvæmt fyrir þjóðarbúið eður ei. Enda hefur hagur almennings og þjóðarbúsins ætíð verið aukaatriði hjá þeim sem tilbúnir eru til að selja allt fyrir peninga.

Eru þeir ekki að fatta?

Það sem vekur hjá mér vissar áhyggjur, er að ennþá, núna eftir hrun, eru greinilega menn og öfl í þjóðfélaginu sem vilja selja auðlindir Íslands í hendur erlendra aðila. Árni Sigfússon er alls ekki einn í þessum leik. Menn kalla þetta „að fá erlent fjármagn inn í landið“, og Björgólfur Thor lýsir því yfir að hans aðalverkefni núna sé að reyna að fá erlenda fjárfesta til að koma með peninga til Íslands. Ekki skal gert lítið úr þeim gjaldeyrisskorti sem ríkir hér þessa stundina en þessi þróun vekur með mér ugg. Eru þessir menn ekki búnir að fatta? Skilja þeir ekki að almenningur og þjóðin vill ekki glata auðlindum sínum í hendur erlendra stórfyrirtækja? Þessi efnahagskreppa og vitleysa hófst öll með kvótakerfinu og síðan kom gríðarlegt innflæði fjármagns með Kárahnjúkavirkjun og bólan stækkaði og stækkaði. Heldur valdastéttin virkilega að hún komist upp með að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Treystum á okkur sjálf

Ég bind vissar vonir við þá staðreynd að nú sitja Vinstri græn í ríkisstjórn. Ef sjálfstæðismenn og framsóknarmenn sætu við völd, væri brunaútsalan á auðlindum Íslands nú þegar í fullum gangi. En ég bind vissar vonir við að VG muni ná að spyrna við fótum. Reyndar er staðan sú að þingmenn og ráðherrar VG verða að vera afskaplega vakandi gagnvart hugsanlegu framsali eigna og auðlinda í hendur erlendra aðila. Staða Íslands er viðkvæm og erfitt að treysta Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum. Ég bind hins vegar vissar vonir við að gott samstarf okkar Íslendinga við hin Norðurlöndin muni að einhverju leyti verja okkur gegn ásælni hins erlenda auðmagns. Ég treysti á Svía, Dani, Finna og Norðmenn að láta ekki „Englandskonung eignast íslandsmið“.  En þegar á botninn er hvolft verðum við almenningur á Íslandi að treysta á okkur sjálf – við sjálf verðum að koma í veg fyrir að hin spillta valdastétt svíki landið.

Ingibjörg Elsa Björnsdóttir


Senda grein

Athugasemdir (7)

  1. Margrét skrifar:

    Góður pistill og þarft að minna á að AGS er meira mein en nokkuð annað nú á landi.

    3.7.2009, kl. 13:44 | #

  2. Auðun Gíslason skrifar:

    Góður pistill! Já það er ekki nóg með að það sé verið að selja ofanaf hluta þjóðinnar. Nú á líka að selja undan þjóðinni!

    3.7.2009, kl. 16:38 | #

  3. J.Þ.A. skrifar:

    Þeir alþingismenn sem greiða atkvæði með icesave nauðungarsamningnum sem liggur nú fyrir alþingi, verða skráðir "landráðamenn", og sótt að þeim eftir því. Þeir verða kallaðir "Quislingar Íslands." Sennilega verða þeir að flýja land.
    Alla vega finnst mér að fólk ætti að vinna að því.
    Og að endingu: "Hvað eigum við aðgera með að ganga í ESB. þegar framkoma ríkjanna í því bandalagi hefur nú ekki verið svo hliðholl okkur.
    Er einhver svo blindur að eiga von á því að það lagist?

    5.7.2009, kl. 7:58 | #

  4. S.Á. skrifar:

    Ágæt grein. Ekki gleyma því samt, að Samspillingin er bullandi meðvirk í útrásinni jafnt sem innrásinni. Ég bendi líka á, að Árni Sigfússon veitti byggingaleyfi fyrir 2.000 nýjum íbúðum á nokkrum árum bólunnar. Á sama tíma lá ljóst fyrir, sem hann vissi manna best, að herinn væri á förum og mikið af húsnæði myndi losna á Vellinum. Hvers vegna var allt þetta húsnæði þá byggt í Innri-Njarðvík? Getur einhver svarað því? Ef allt laust íbúðarhúsnæði í Reykjanesbæ ætti að nýtast, þyrfti íbúafjöldinn þar að liðlega tvöfaldast frá því sem hann var árið 2006!

    9.7.2009, kl. 11:47 | #

  5. S.Á. skrifar:

    Ágæt grein. Ekki gleyma því samt, að Samspillingin er bullandi meðvirk í útrásinni jafnt sem innrásinni. Ég bendi líka á, að Árni Sigfússon veitti byggingaleyfi fyrir 2.000 nýjum íbúðum á nokkrum árum bólunnar. Á sama tíma lá ljóst fyrir, sem hann vissi manna best, að herinn væri á förum og mikið af húsnæði myndi losna á Vellinum. Hvers vegna var allt þetta húsnæði þá byggt í Innri-Njarðvík? Getur einhver svarað því? Ef allt laust íbúðarhúsnæði í Reykjanesbæ ætti að nýtast, þyrfti íbúafjöldinn þar að liðlega tvöfaldast frá því sem hann var árið 2006!

    9.7.2009, kl. 12:03 | #

  6. magnús steinar skrifar:

    Flott grein. AGS eru glæpasamtök og verða aldrei annað,liðið í samspillingunni eru svona álíka.

    11.7.2009, kl. 22:00 | #

  7. starsandstripesco skrifar:

    cyclophosphamide echeck :(( prolonged mandol use 65502 fda approved libivirumab zkwl injecting alanosine :-D

    6.2.2010, kl. 11:19 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Ingibjörg Elsa Björnsdóttir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica