Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Atli og lögreglan

Björn Bjarnason um vopnaburð lögreglu

28.1.2009 10:52 Aðsent - Björn Bjarnason

bjorn-bjarnason

bjorn-bjarnasonAtli Gíslason, þingmaður vinstri/grænna, hefur löngum látið eins og hann sé sérstakur málsvari lögreglunnar. Nú segir hannn hér á þessari vefsíðu, Smugunni, að ég eigi að biðja hann afsökunar vegna afstöðu hans og annarra þingmanna vinstri grænna til lögreglunnar, þegar ráðist var á þinghúsið 20. janúar.

Hinn 13. mars 2008 vildi Atli „bíða með að vopna lögreglu þar til hún verður fyrir skotárás,“ svo að vitnað sé í fréttir Stöðvar 2. Vakti þessi afstaða Atla reiði lögreglumanna. Þessi fréttaútskrift lýsir afstöðu Atla:

Stöð 2 fréttir 03. 03. 08.

Atli Gíslason, þingmaður Vinstri-grænna, vill bíða með að vopna lögreglu þar til hún verður fyrir skotárás. Þetta sagði hann í samtali við Bítið á Bylgjunni þar sem sýknudómur yfir tveimum Litháum frá í gær var til umræðu. Lögreglufélag Reykjavíkur segir dóminn hneyksli.

Þrír menn voru ákærðir fyrir árás á lögreglumann í miðbænum í janúar síðastliðnum og í gær var einn þeirra sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur en hinir tveir voru sýknaðir þar sem ekki þótti sannað að þeir hefðu staðið fyrir árásinni. Í yfirlýsingu frá Lögreglufélagi Reykjavíkur segir að sýknudómurinn sé hneyksli og að dómarinn í málinu eigi að skammast sín. Atli Gíslason, þingmaður Vinstri-grænna, var ásamt Pétri Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, gestur Bítisins á Bylgjunni í morgun þar sem sýknudómurinn var til umræðu. Snerist umræðan að mestu um það hvort öryggi lögreglumanna í borginni væri nægjanlegt og hvort rétt væri fyrir lögreglu að vera betur vopnum búin en hún er nú. Atli sagðist vilja bíða í lengstu lög með að vopnbúa lögreglu.

Heimir Karlsson: Eigum við að bíða eftir því Atli að lögreglumaður lendi í alvarlegu slysi af því að við viljum ekki taka af skarið?

Atli Gíslason, þingmaður Vinstri-grænna: Þeir náttúrulega eru að lenda í slysum en ég er að tala um skotvopn fyrst og fremst ...

Heimir: Já eigum við að bíða eftir því að lögreglumaður verði skotinn áður en að við tökum upp skotvopn?

Atli Gíslason: Svei mér þá ég held ég geti svarað þessu játandi, ég bara vil ekki efla vopnabúnað, ég held að ofbeldi kalli á ofbeldi ...

Heimir: Þannig að þú vilt bíða eftir því að lögreglumaður verði skotinn áður en að við ...?

Atli Gíslason: Ef þú orðar það þannig skilurðu ...

Heimir: Ég get ekki orðað það ...

Atli Gíslason: Nei, auðvitað vil ég ekki að lögreglumaður verði skotinn, það finnst mér alveg ....

Heimir: Ég veit þú vilt það ekki, en eigum við að bíða þangað til ...?

Atli Gíslason: Við eigum að bíða lengur, mér finnst ekki vera komin nógu sterk rök.

Ég leyfi mér að fullyrða, að þessi afstaða Atla til lögreglunnar endurspeglar ekki mikið traust í hennar garð eða vilja til að huga að öryggi hennar, fyrr en eftir að því hefur verið ógnað.

Ég þarf ekki að óska eftir neinni rannsókn á hug Atla Gíslasonar í garð lögreglunnar og ráðstafana til að tryggja öryggi lögrgelumanna sem best. Orð hans sjálfs um það efni liggja þegar fyrir og hafa sætt gagnrýni lögreglumanna, hvort sem hann hefur gengið á þeirra fund eða þeir á hans fund. Fundahöld í allsherjarnefnd alþingis breyta engu í þessu efni. Þau eru aðeins til marks um tilraunir Atla til að klóra í bakkann.

Senda grein


Aðsendar greinar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica