Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Mogginn ekki hrifinn af tjáningarfrelsi?

23.6.2010 10:11 Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

jakobina

Hreyfingin hefur haft forgöngu um flutning þingsályktunartillögu sem kveður á um að ríkisstjórninni verði falið að leita leiða til að styrkja tjáningarfrelsi, málfrelsi, upplýsingamiðlun og útgáfufrelsi, auk þess sem verndun heimildarmanna og afhjúpenda verði tryggð.

Núverandi kerfi sem styrkir ríkjandi valdhafa er í raun atlaga að tjáningarfrelsi. Flokkarnir fá styrki samkvæmt hlutdeild sinni á Alþingi. Þetta veldur stöðnun og tregðu til breytinga. Lýðræðisþenkjandi þingmenn ættu að gera atlögu að þessu kerfi.

Fjölmiðlarnir eru í eigu útrásarvíkinga og kvótafursta. Þessi staðreynd fær litla athygli í fjölmiðlum. Enda hafa eigendurnir ekki hag af því að vekja athygli á þessu fremur en að sitjandi þingmenn hafa hag að því að berjast gegn lýðræðishamlandi styrkjakerfi. Það er því pattstaða í samfélagi sem sem styður forheimskun og þröngsýni.

Ég fékk tölvupóst úr herbúðum Davíðs Oddsonar í gær. Þar á bæ virðast menn óttast að ég misnoti tjáningarfrelsi mitt á Moggablogginu. Skilaboðin sem ég fékk voru eftirfarandi: „Morgunblaðið áskilur sér rétt til að loka fyrir fréttatengingar notenda sem tengja særandi eða óviðurkvæmilegar bloggfærslur við fréttir eða færslur sem koma fréttinni ekkert við.“ Nú hefur það gerst býsna oft að þú tengir fréttir við færslur sem koma fréttinni auðsjáanlega ekkert við eins og til að mynda „Já og Seðlabankinn er víst á hausnum líka en það þykja ekki fréttir á Mogganum!“ tengt við frétt af Skaftárhlaupi.

Hugrenningar mínar í tengslum við Skaftárhlaup virðast ekki vera Mogganum að skapi, en ég vakti athygli á frétt í Viðskiptablaðinu þar sem segir að Seðlabankinn sé í raun á hausnum. Í fréttinni segir frá því að lán sem Davíð Oddson veitti föllnu bönkunum gangi eins og heit kartafla á milli Ríkissjóðs og Seðlabankans. Það vekur auðvitað furðu mína að Moggin skuli ekki slá þessari frétt upp á forsíðu en fréttaleysi Moggans hvað varðar stöðu Seðlabankans var náttúrulega kveikjan að bloggfærslunni.

Það er því góð spurning hvernig á að tengja bloggfærslur við ekki-frétt. Hvernig á að tengja bloggfærslur við þöggun. Hvernig á aumur bloggari að vita hvað er tabú hjá Mogganum eða hvað Moggin túlkar sem særandi eða óviðurkvæmilegt.


Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Stjórnsýslufræðingur

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Aðsendar greinar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica