Við búum í snargeggjuðu þjóðfélagi
Tvö helstu dagblöð landsins fjölluðu þann 12. júní um örlög heimilanna. Reyndar hefur Morgunblaðið verið duglegt við að skýra þá stöðu sem skuldug heimili eru í og hvernig komandi vetur mun verða. Í stuttu máli munu þessi heimili verða gerð upp og þau sem geta ekki staðið í skilum sett út á guð og gaddinn. Allir hugsandi menn hljóta að skilja að ekki er um að ræða þá vinstri stefnu sem núverandi stjórnarflokkar kenna sig við. Slíkum ráðstöfunum gagnvart almenningi er að minnsta kosti hvergi lýst í stefnuskrám viðkomandi flokka. Ef einhver læsi viljayfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og einnig skýrslu sjóðsins frá því í apríl sl. þá verður það mjög augljóst að um er að ræða stefnu AGS.
Hvernig fjalla stærstu dagblöð landsins um þessa stöðu? Morgunblaðið notar tækifærið og kennir ríkisstjórninni um en nefnir AGS mest lítið. Skýrt dæmi er í blaðinu þann 12. júní þegar sagt er frá tjaldborg sem reist var á Austurvelli til að mótmæla úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart heimilum í vanda. Eiginkona mín tók þátt í því og tekur Morgunblaðið viðtal við hana, þar sem hún notar megnið af tímanum til að ræða ábyrgð AGS á stöðu heimilanna. Eitthvað minnist hún á Jóhönnu og er það eingöngu notað á síðum blaðsins, en öllu um AGS sleppt. Ástæðan er sú að það þjónar ekki tilgangi blaðsins sem er að skíta út núverandi ríkisstjórn.
Ekki er forsíða Fréttablaðsins skárri. Þar er kynning á viðtali í blaðinu við forstöðukonu Ráðgjastofu heimilanna. Það sem Fréttablaðinu finnst mikilvægast að nefna er að staðan sé mjög slæm fyrir heimilin en þau koma svo seint til Ráðgjaþjónustunnar, þannig að þetta sé í raun heimilunum að kenna. Síðan toppa þeir frásögnina með því að nauðsynlegt sé að gera eins og Finnar og hafa ókeypis skólamáltíðir svo börnin deyi ekki úr hungri. Alls ekki AGS, þeir eru ekki nefndir á nafn því það þjónar ekki tilgangi blaðsins, sem er að koma okkur inn í Evrópusambandið.
Á meðan íslensk stjórnmál eru í hefðbundnum sandkassaleik hlær AGS og kemur öllum sínum áformum á koppinn án nokkurrar mótstöðu. Við erum sem þjóð algjörlega snargeggjuð því við höfum enga innsýn í vandamál okkar.
Gunnar Skúli Ármannsson
Athugasemdir (2)
-
Auðun Gíslason skrifar:
Fjölmiðlar fengu í raun falleinkunn í Skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis! Þeir brugðust þá og gera enn! Þeim er stjórnað af óhæfum rítstjórum!
Afdrif Vatnalaganna eru skv. forskrift AGS, sama er að segja um Magma málið!
Samfylkingarkratar margir trúa því að AGS sé alþjóðleg hjálparstofnun og undrast gagnrýni á sjóðinn! Það er von að almennt trúi flestir að hér sé allt á góðri leið! -
Sigmundur skrifar:
Takk fyrir hreinskilnina Gunnar Skúli. Fleiri mættu lýsa reynslu sinni af samskiptum \"fréttastofa\" og almennings.


Skrifa athugasemd