Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Við fáum ekki besta borgarstjórann

30.5.2010 15:25

jakobina

Oddur Helgi sigurvegari L listans á Akureyri vill tryggja bænum besta bæjarstjórann og ætlar að aulýsa stöðu bæjarstjóra. Hann vill að bæjarstjórinn sé ráðinn á faglegum forsendum. Sigurvegari kosninga til borgarstjórnar í Reykjavík, Jón Gnarr, ætlar hins vegar að fara hina hefðbundnu leið sjálftöku í stjórnmálum og skipa sjálfan sig sem borgarstjóra.

Honum finnst það eðlilegt og telur ekki ástæðu til þess að spyrja hvort einhver sé hæfari í þá stöðu. L listinn á Akureyri lofar að auglýsa öll störf hjá bænum. Akkíelesar hæll hinna hefðbundnu stjórnmálaflokka er að enginn þeirra þorir að taka af skarið og viðhafa fagleg vinnubrögð. Þeir treysta á hina hefðbundnu leið með bitlingagjöfum og mútuþægni til þess að viðhalda völdum flokksins.

Fjórflokkurinn hefur frá upphafi misnotað stjórnsýsluna. Skipað hefur verið í stöður í stjórnsýslu á forsendum flokksins. Hæfum einstaklingum er hafnað en einstaklingar sem hafa staðið sig vel við smölun úr íþróttahreyfingum eða hafa áhrif í fjölmiðlum hafa verið skipaðir í stöður og ekki spurt um hæfni þeirra til þess að gegna viðkomandi stöðum.

Þetta fyrsta skref Jóns Gnarr vekur ekki vonir í brjósti mér um betri Reykjavík. Margir telja sig eiga skilið góðar stöður, góð störf og góð eftirlaun á vafasömum forsendum. Afleiðingin er skrípaleikur og vond stjórnsýsla

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Stjórnsýslufræðingur

Senda grein

Athugasemdir (1)

  1. VG félagi skrifar:


    Við fáum það sem við eigum skilið.

    Líka pistlana þína.

    1.6.2010, kl. 19:09 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Aðsendar greinar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica