Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Stjórnmálamenn helbeittir að viðhalda óreiðunni

18.5.2010 13:16 Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

jakobina

Fasismi er fyrirkomulag þar sem valdið yfir ríkinu er afhent fjármálamönnum og viðskiptalífi. Þetta gerðist á Íslandi. Í stjórnartíð sjálfstæðismanna var útvöldum fengið óheyrilegt vald. Þetta merkilega fyrirkomulag felur í sér að fullt er af litlum skattheimtumönnum sem innheimta skatt og nota fjármagnið til einkanota.

  1. Sjávarauðlindirnar voru seldar í hendur fámenns hóps.
  2. Ríkisbankar voru seldir mönnum, sem höfðu hvorki þekkingu né siðferði til þess að reka banka, á smánarverði.
  3. Samráð hófust meðal stjórnmálamanna sem höfðu þegið mútur af óreiðumönnum um að sölsa orkuauðlindir undir óreiðumenn.
  4. Stjórnmálamenn komu mökum og börnum fyrir í bönkum og viðskiptalífi til þess að aðstoða fjáróreiðumenn.
  5. Ríkisstjórnir og Alþingi hafa hannað lagaumhverfi sem gerir glæpi löglega.
  6. Stjórnmálamenn hafa rænt tungumálinu og kalla t.d. mútur styrki og ráðaleysi sitt og umkomuleysi að hafa ekki ráðrúm.
  7. Hannað hefur verið fyrirkomulag í flokkunum sem tryggir að vanhæfir bitlingaþegar og hagsmunapotarar ná þar framgangi.
  8. Fjármála- og viðskiptalífi hafa verið afhentir lífeyrissjóðir launþega til þess að leika sér með í ævintýramennsku útrásarinnar.
  9. Finnur Ingólfsson fékk leyfi til skattheimtu í gegnum Orkuveituna (hver notandi greiðir honum um 10.000 kr. á ári).

Flokkarnir fjórir eru reknir eins og fyrirtæki, þar sem eiginleikar eins og dugnaður við peningaöflun og smölun eru taldir til mannkosta umfram annað. Stjórnmálin ganga fyrst og fremst út á sölumennsku og ímyndarsmíð. Það skiptir engu máli hvað er en öllu máli hvað menn halda að sé.

Stefna valdhafa birtist í atburðarrás. Við skulum því skoða hver stefna Vinstri grænna og Samfylkingarinnar er miðað við atburðarrásina frá því að flokkarnir tóku völd.

  • Heimila og styðja ber áfram að stjórnmálamenn þyggi mútur frá fyrirtækjum.
  • Rífa ber niður velferðarkerfið til þess að fjármagna bankanna.
  • Afskrifa ber skuldir óreiðufólks.
  • Heimilin skulu bera byrðarnar af glæpastarfsemi banka og vanhæfni stjórnmála- og embættismanna.
  • Safna skal skuldum á ríkið til þess að beila út áhættufjárfesta og fólk sem tók áhættu.
  • Hunsa vilja almennings og meirihluta þings í málefnum ESB.
  • Stuðla skal að sölu náttúruauðlinda til erlendra aðila.
  • Styðja ber Björgólf Thor í viðleitni hans til þess að græða á íslenskum náttúruauðlindum.
  • Forðast ber að efla lýðræði.
  • Forðast ber að taka tillit til mannréttinda.
  • Klíkuráðningar hjá hinu opinbera eru mikilvægari en að efla þekkingu og hæfni í stjórnsýslu.
  • Einkavæða banka eftir getu.
  • Ýta undir þöggun fjölmiðla í málefnum sem er óþægileg stjórnmálaflokkum.
  • Skammta stjórnmálaflokkum milljarð úr sameiginlegum sjóðum landsmanna.
  • Eyða allt að sjö milljörðum í ESB umsókn.
  • Senda þá sem ekki ná endum saman í biðraðir eftir ölmusu.
  • Viðhalda kerfi sem gerir vinnuveitendum kleift að stýra stjórnun lífeyrissjóða sem hafa skammtað útrásarvíkingum úr sjóðunum (tugi eða jafnvel hundruði milljarða).

Stjórnmálamenn gera lítið til þess að skapa betra samfélag. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er trúlega mjög ánægður með framgöngu Steingríms J Sigfússonar, sem í raun slær sjálfstæðsmönnum við í umkomuleysi sínu sem stjórnmálamaður.

 

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Stjórnsýslufræðingu og sérfræðingur í stefnumótun

 

Senda grein

Athugasemdir (1)

  1. Friðrik Haraldsson skrifar:

    Hverju orði sannara. Við þurfum svona áminningar reglulega og þær verða vonandi lóð á vogarskálarnar, þegar kemur að ruðningi þingsins.

    Burtu með óþjóðalýðinn!

    19.5.2010, kl. 21:21 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Aðsendar greinar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica