Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Rangárþing eystra

14.5.2010 12:20 Guðmundur Ólafsson, Ingibjörg Erlingsdóttir og Gyða Björgvinsdóttir

rangarthing

Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur vakið heimsathygli enda hefur það raskað flugsamgöngum í Evrópu dag eftir dag. Náttúran minnir á sig og mennirnir finna fyrir smæð sinni í hvert sinn sem þeir líta til jökulsins. Eyfellingar hafa þurft að þola það allra versta í tengslum við hamfarirnar og óvissan um framvinduna er alger. Undir slíkri og alvarlegri óvissu verða mörg málefni á borði sveitastjórnar hjóm eitt í samanburði við afleiðingar eldgossins. Samfélagið hefur sýnt styrk sinn og samhjálp og samhugur einkennir stemninguna í sveitarfélaginu. Góðir íbúafundir hafa verið haldnir til upplýsingar um allar sveitir og hafa félagsheimilin sannað samfélagslegt mikilvægi sitt fyrir alla íbúa við þessar aðstæður. Sterkir innviðir samfélagsins hafa þannig gert okkur kleift að takast á við það ástand sem nú ríkir.

 

Um framboð VG og óháðra

Vinstri græn og óháð bjóða nú fram í fyrsta skipti. Um er að ræða framboð sem byggir öðru fremur á sjónarmiðum félagshyggju og jafnaðar, sjónarmiðum lýðræðis og valddreifingar og sjónarmiðum um sjálfbærni. Allt kapp var lagt á lýðræðisleg vinnubrögð við uppbyggingu framboðsins. Auglýst var eftir framboðum og við erum ákaflega stolt af því að hafa kosið um efstu sæti listans. Með því höfum við sýnt að allt er hægt í þeim efnum ef viljinn er fyrir hendi. Það var okkar fyrsti sigur að koma á nýju framboði í sveitarfélaginu. Slíkt er aldrei sjálfgefið en við nutum mikillar hvatningar og velvildar íbúa við það verkefni og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Betur sjá augu en auga

Við teljum að þeim mun fleiri sjónarmið sem koma fram þeim mun líklegra verði að niðurstaða við úrlausn álitaefna verði sem ákjósanlegust. Við viljum að rödd okkar heyrist við sveitastjórnarborðið. Við teljum það hvorki samfélaginu né einu stjórnmálaafli hollt að sitja við völd með hreinan meirihluta í sveitastjórn. Við viljum að horft verði til langrar framtíðar við ákvarðanatökur og að sjálfbærni verði í fyrirrúmi á öllum sviðum allt frá fjármálum sveitarfélagsins til umhverfis- og skipulagsmála.  Við viljum taka samfélagslega ábyrgð og vinna ötullega að málefnum sveitarfélagsins með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi.

 

Guðmundur Ólafsson, 1. sæti á lista VG og óháðra

Ingibjörg Erlingsdóttir, 2 sæti

Gyða Björgvinsdóttir, 3. sæti

 

Senda grein

Athugasemdir (1)

  1. Kristín Halldórsdóttir skrifar:

    Til hamingju með framboðið og gangi ykkur vel!

    15.5.2010, kl. 20:00 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Aðsendar greinar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica