Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Hver ræður hvar við krossum við?

11.5.2010 20:22 Gunnar Skúli Ármannsson

gunnar

Ég tel mig upplifa mjög óvenjulega tíma í lífi mínu en sjálfsagt hefur mannkynssagan upplifað þetta marg oft áður. Ef eina spurningin sem eftir stendur í lok borgarstjórnarkosninganna í Reykjavík er hvort Hanna Birna eða Dagur verður Borgarstjóri hefur sagan endurtekið sig. Þá hefur ekkert óvenjulegt gerst á Íslandi.

Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafa hlotið hörmulega útreið í Rannsóknarskýrslunni og víðar. Þess vegna ættu kjósendur að hverfa frá þeim og hugleiða aðra valkosti. Til þess að það gerist þarf fólk að kynna sér önnur framboð. Fjölmiðlar verða því að sinna þessum þætti vel. Fjölmiðlar virðast gera þá kröfu til fólks að það geri eitthvað sem er fréttnæmt annars fær það ekki umfjöllun. Framsóknarflokkurinn fór í sjósund, Dagur varð næstum fyrir bíl og Jón Gnarr mætti. Þegar venjulegt fólk stendur upp frá sinni vinnu, umturnar lífi sínu, setur heimili sitt á bið og fer í framboð vegna þess að það hefur framtíðarsýn um betri heim þá er það ekki fréttnæmt.

Þessi fyrring gagnast þeim sem eru á móti gagnrýnni hugsun. Ekki er hægt að segja að almenningur, fjölmiðlar eða auglýsendur sjái sér neinn sérstakan hag í því. Aftur á móti gæti gagnrýn hugsun kollvarpað núverandi valdhöfum. Þannig hefur það ætíð verið að þeir sem valdið hafa reyna allt til að halda í völdin.  Það sem ég er að reyna að koma orðum að er að umræðunni er stjórnað og henni haldið innan viss ramma sem móðgar ekki einhver hönnuð viðmiðunarmörk samfélagsins.

Með hliðsjón af því sem hefur komið fram að undanförnu þá ættu fjölmiðlar ekki að ræða neitt sérstaklega við hrunflokkanna. Jón Gnarr er að grínast og því ætti hann að fá pólitíska umfjöllun ef ekkert annað er á seiði. Hin framboðin sem hafa nokkuð hreint sakavottorð og hafa sínar hugsjónir komast ekki að. Á einhvern undraverðan hátt hefur tekist að telja þjóðinni trú um að stjórnmál hafi engin tengsl við afkomu eða tilveruna yfir höfuð. Fjölmiðlarnir virðast hafa fallið fyrir þessari uppgjöf.

Þegar pólitísk umræða hefur verið aftengd málefnalegri umræðu og tengd við sölumennsku þá er eingöngu einn óvissufaktor eftir í pólitík, þ.e. peningar. Því munu þeir sem hafa aðgang að fjármunum stjórna niðurstöðum kosninganna. Það er endurtekningin á mannkynssögunni en ég gerðist svo djarfur að vona að á Íslandi myndi vakna áhugi á gagnrýnni hugsun sem leiddi til breytinga. Ef bara er spurning um Hönnu eða Dag að loknum kosningum er kominn tími á kalt endurmat, fósturjarðarást er þá bara tilfinngarugl.

 

Senda grein

Athugasemdir (2)

  1. Jakobína skrifar:

    Takk fyrir ágætan pistil Gunnar Skúli

    Stjórnmálin virðast nú krefjast þess að maður sé annað hvort fyndin eða spilltur. Fjölmiðlarnir hafa ekki áhuga á öðru. Þeir sem eru alvarlegir, einlægir og fullir vandlætingar yfir því hvernig samfélagið er að brotna niður vegna vanhæfni og annarlegra sjónarmiða sem virðast innbyggð í núverandi kerfi eru ekki áhugaverðir.

    Þeir sem vilja berjast fyrir betra samfélagi eru ekki áhugaverðir

    Þeir sem gagnrýna ríkjandi skipulag eru ekki áhugaverðir

    Þeir sem ekki svara kalli þeirra sem vantar stærri golfvöll eru ekki áhugaverðir

    Þetta er það dapurlega sem maður horfir upp á í fjölmiðlum í dag

    12.5.2010, kl. 1:44 | #

  2. Pétur Örn Björnsson skrifar:

    Hver ræður hvar við krossum við? Hvar göngum við um við?

    Margir eru krossar okkar að bera, meðan allt er krosstengt
    þó slitin séu krossböndin og við megum vart í Besta ganga
    Besta langa Besta ganga með stafi okkar, en það vitraðist
    með gleðilátum að fólk varð skyndilega fullfrískt, það gekk
    upprétt og það voru skemmtileg og bústin bolluský á himni.

    Eftir það var alltaf passleg rigning fyrir gróðurinn.
    Eftir það var alltaf passleg sól fyrir alla, þannig að enginn varð sólbrunninn, allir passlega gullbrúnir, enda passaði sá litur svo vel við smjörið sem draup af hverju strái og grasið sem alltaf var iðagrænt.
    Eftir það var veturinn svo mildur að elstu karlar og konur gátu dansað um götur eins og Jagger og Bowie.

    Eftir það mátti véfréttin ekki mæla. Munnur hennar teipaður í kross.
    Svo bregðast krosstré sem önnur og eyðimerkurgangan heldur áfram.

    14.5.2010, kl. 11:28 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Aðsendar greinar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica