Trotskí og rotturnar
Þótt kettir séu sætir og gaman að kela við þá, voru þeir til skamms tíma fyrst og fremst vinnudýr og látnir halda nagdýrum í skefjum í hlöðum og kornbúrum. Þótt það megi móta eina skepnu mikið með atlæti, þá leitar náttúran út um síðir, eins og skáldið orti. Eðlishvatirnar verða hvorki lamdar né kelaðar burt úr rándýri. Sem betur fer.
Ég var um daginn á röltinu á Bergstaðastrætinu, ekki fjarri heimili mínu. Í Þingholtunum er sægur draugahúsa. Inn í eitt þeirra, Bergstaðastræti nr. 16, sá ég stökkva köttinn okkar, hinn fordekraða og afkynjaða Trotskí. Ég stóð um tíu metra frá honum og sá, skýrt og greinilega, að hann var með frekar lítið, dökkt flikki í kjaftinum og dinglandi lítinn hala niður úr hægra munnvikinu. Hann stakk sér inn um rifu á kjallaranum, væntanlega til þess að gæða sér á ferskri og safaríkri rottu. Á sinn sérstaka hátt var þetta fögur sjón, en um leið þörf og óþægileg áminning.
Draugahúsavæðing miðbæjarins er skandall. Fasteignabraskarar og verktakaauðvald hafa ráðið allt of miklu í skipulagsmálum hér í borg undanfarin ár, og verkið lofar formann skipulagsráðs: Ryðgandi bárujárnið og spónaplötur fyrir brotnum gluggum eru minnisvarði um þá borgarstjórn auðvaldsins sem nú situr, og hagsmunina sem hún starfar fyrir. Engu breytir þótt mannlausu húsin hafi verið máluð hvít; rottugangurinn er samur við sig þótt maður loki augunum fyrir honum. Að ég ekki tali um óþrifnað, slysagildrur fyrir óvita og sjónmengun.
Því verður varla á móti mælt að það sé æskilegt að þétta hina gisnu byggð Reykjavíkur. Góð byrjun væri að gera upp á annað hundrað húsa í miðbænum og gera þau hæf til búsetu fyrir menn, en ekki rottur. Hingað til hefur lögreglan stöðvað nokkrar tilraunir til þess, m.a. með kylfum og táragasi á Vatnsstígnum í fyrra.
Mig minnir að ég hafi lesið um það í einhverju blaði, að borgarstjóri hefði boðið borgarbúum að taka þátt í einhverju „hreinsunarátaki“. Ég varð ekki var við neitt slíkt í Þingholtunum, né reyndar nokkurs staðar annars staðar, nema ef vera skyldi að kötturinn Trotskí hafi verið að bregðast við hvatningu hennar með því að drepa rottuna sem áður var nefnd.
Það er svo sannarlega tímabært að leggjast í hreinsunarátak í borginni: Kjósendur í Reykjavík þurfa að hreinsa spillingaröflin út úr ráðhúsinu og uppræta rottuganginn.
Athugasemdir (2)
-
Halldóra skrifar:
Sammála - bý í Þingholtunum og styð sannarlega að tekið verði á þessu með eyðibýlin í miðbænum.
-
Bergljót Aðalsteinsdóttir skrifar:
Hjartanlega sammála! Það þarf að fleygja þessu spillta liði út úr Ráðhúsinu! Vonandi er fólk ekki búið að gleyma aðförinni sem gerð var að lýðræðinu þegar íhaldið lokkaði Ólaf til fylgis við sig og lét hann svo fjúka þegar hann gerðist óþægur! En hvað kostaði það borgarbúa að kaupa Ólaf til liðs við íhaldið??


Skrifa athugasemd