Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Opna umræðu, leynimakkið burt!

30.4.2010 16:25 Ágúst Valves Jóhannesson

agustvalves

Undanfarin ár hefur foringjaræðið á Íslandi aukist til muna. Við munum hvernig það var þegar þeir Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson létu Ísland á lista yfir þjóðir sem styddu stríðið í Írak. Í búsáhaldabyltingunni svokölluðu var það heiðarleiki og opin umræða sem var tvennt af því sem fólk vildi helst sjá á Íslandi í framtíðinni. Í þingkosningunum fyrir ári síðan lofuðu stjórnarflokkarnir tveir, Vg og Samfylking því að stjórnsýslan yrði opnuð og gegnsæ. Úr því hefur ekkert orðið. Í byrjun sumarsins 2009 undirritaði fjármálaráðherra hinn svokallaða Icesave samning þegjandi og hljóðalaust, engum sýndi hann samninginn og ætlaði aldrei að gera, þetta hefur sennilega verið fyrsta skrefið í opinni stjórnsýslu? Nýjasta dæmið er þegar forsætisráðherra, fjármálaráðherra, viðskiptaráðherra og seðlabankastjórinn Már Guðmundsson undirrita áframhaldandi samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.  Og enn er stjórnsýslan við sama heygarðshornið, lokuð og ólýðræðisleg. Kjörnir og ókjörnir embættismenn eru enn að taka ákvarðanir, stórar, umdeildar ákvarðanir sem varða alla alþýðu Íslands.

 

Hvað gefur opin stjórnsýsla Íslandi?

Í hverri skoðanakönnunni á fætur annarri hefur komið í ljós að traust almennings á Alþingi er í lágmarki. Fólk treystir því ekki að fulltrúar þjóðarinnar séu að vinna í sína þágu heldur í þágu síns sjálfs þá helst eða einhverra hagsmunatengdra aðila. Að þjóðin treysti Alþingi er algjört lykilatriði til að friður geti náðst til að byggja hér upp eftir hrun kapítalismans. Núverandi ríkisstjórn virðist ætla að hanga í sama gamla hjólfari fjórflokksins, leyndin og þöggunin á upplýsingar til almennings er alltaf til staðar, ekkert má segja. Forystumenn stjórnarflokkanna sögðu að vinstri stjórn hefði verið kosin, Ísland yrði gert að félagshyggjulandi þar sem norræn velferð ætti að vera í fyrirrúmi. Gott og vel, íslenska ríkið er nærri gjaldþrota, en vörnin á velferðina, vörnin á þá sem minna hafa á að vera til staðar. Forgangsröðin á að vera þannig að fólkið sé í fyrirrúmi, ekki fjármálakerfið eða annað slíkt. Það er velferð, velferð fyrir alla. Opin stjórnsýsla gefur fólkinu vald til að segja sína skoðun á forgangsröðuninni í ríkisbússkapnum og það var það sem fólk kaus! Það væri líka ákveðinn léttir á stjórnkerfinu ef almenningur fengi að vita hvað væri í gangi í samfélaginu, að ekkert væri falið.

 

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stærsta bákn Íslands

Vinstrihreyfingin grænt framboð var eini flokkurinn af þeim fjóru stóru sem gat vel við unað eftir hrunið. Þar hafði ríkt skynsemi á árum áður, flokksmenn og forystan vildu að ábyrgðar væri gætt í búskap ríkisins, bankarnir mættu ekki verða of stórir svo eitthvað sé nefnt. Það er því furðulegt að formaður Vg, Steingrímur Sigfússon telji Íslandi það farsælast að skuldsetja sig út úr vandanum, skuldbinda sig lánadrottnum sem hafa haft það sem tómstund má segja að gereyðileggja velferðarkerfi víða um heim. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur hvar sem hann hefur farið skilið eftir sig sviðna jörð, jörð sem áður hafði jafnvel verið þolanlegt velferðarkerfi, menntakerfi þar sem allir kunnu að lesa og skrifa, samgöngukerfi sem ekki fól í sér borgunarskyldu vildi fólkið fara út úr borgum eða bæjum, hreint og ómengað vatn fyrir alla og auðlindir í eigu samfélagsins. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur náð að rústa þessu öllu í mörgum löndum eins og Argentínu og Ekvador. Enda er AGS lögregla fjármagnsins, verjandi þeirra sem eiga peninga og vita lögfróðir menn það vel að verjendur gæta hagsmuna skjólstæðinga sinna út á ystu æsar þó svo það kosti jafnvel fólk lífið. Greinarhöfundur sat opinn fund á vegum Vinstri grænna þar sem fjármálaráðherra var gestur, greinarhöfundur spurði ráðherrann eftirfarandi spurningar; “Ertu enn á þeirri skoðun að AGS sé eins slæmur kostur fyrir Ísland og þú sagðir fyrir ári?” Svar hans var á þá leið að AGS hefði lært með árunum og áttaði sig á því í dag að hann væri staddur í norrænu velferðarríki þar sem lýðræði ríkti og opin stjórnsýsla. Þessi orð ráðherrans brýtur algjörlega allar þær gjörðir sem núverandi ríkisstjórn hefur framkvæmt, stjórnsýslan er lokuð og læst.

 

Uppgjör einstaklinga innan Vg við fortíðina mikilvæg

Að lokum vil ég koma að því hvað er mikilvægast  til þess að Vg nái á ný þeim trúverðugleika sem flokkurinn hafði. Fyrst og fremst þarf flokkurinn að slíta allt samband við Svavar Gestsson sem var formaður Icesave nefndarinnar sem kom með hinn umdeilda samning heim, Svavar sem misst hefur allt það traust sem hann hafði hefur undanfarið gagnrýnt forsetaembættið og hversu duglegt það var að mæra útrásina, Svavar var sendiherra í Danmörku á helstu útrásarárunum og fór hann lofsamlegum orðum í dönskum fjölmiðlum um útrás bankanna og varði hana svo um munaði. Steingrímur J. Sigfússon þarf að stíga úr formannsstól Vg þar sem hann hefur snúist gegn stefnu flokksins og myndi ekki þykja trúverðugur í stjórnarandstöðu. Árni Þór Sigurðsson þingmaður þarf að segja starfi sínu lausu þar sem hann seldi bréf sín í SPRON á undarlega góðum tíma, seldi hann þau á tugi milljóna. Verði þetta ekki að veruleika má segja að tíð vinstri afla á Íslandi sé liðin, í bili að minnsta kosti.

 

Ágúst Valves Jóhannesson, matreiðslunemi og fyrrum flokksmaður Vinstri grænna.

 

 

 

Senda grein

Athugasemdir (3)

  1. Jón Jón Jónsson skrifar:

    Mjög góð grein hjá þér Ágúst.

    Vg Steingríms J. er skækja AGS.

    Vg Steingríms J. er skækja Alþóðafjár Glæpa Samtakanna.
    Vg Steigríms J. sullumbullu varalitar sig með rauðum, en er sem volgt, hvítt smjör í höndum alþjóða-kapítalismans. Steingrímur J. með gömlu kaldastríðsflökin (Svavar og Kreml-liðlið) upp á dekki og nokkra spillta dúdda eins og Árna Þór, sem hafa aldrei haft neinar hugsjónir, aðrar en að hlú að eigin kjötkötlum ævikvöldsins, eins og blóð-sugur á kostnað barna framtíðarinnar.

    Heyrst hefur til þeirra að æfa og samstilla lygavaðalinn og spunann, já, spunann og smjörklípurnar. Þeirra andlegu meistarar eru örugglega Davíð og Hannes opg Villi Egils og Frikki Soph. og Gylfi Arnbjörns og slatti í hinum ýmsu valdastofnunum ríkis-valdsins, sem í græðgi sinni vilja ekki missa neina spón úr aski sínu...frekar bæta í hvað einráðan ríkis-kapítalismann varðar.

    Vg er í andarslitrunum. Væri hér her, hefði Vg Steingríms J. beitt honum gegn almenningi, enda er maðurinn ekki af þeim kalíber að berjast fyrir neinn nema sig og sína klíku.

    Skítt með þá sem börðu búsáhöld og langaði til að sjá hvernig væri innanstokks inni í Fílabeinsturni fávitanna á þingi.

    Það fólk gerði vel, en hugur þess daprast, að sjá hvílíkt lítilmenni Steingrímur J. er og öll hans valda- og fégráðuga nómenklatúra klíka er.
    Þeir njóta þess að senda greinda og góða anarkista ungmenni í djeilið.

    Tveir þursar leiða sitt hvort tossabandalgið......sem fyrr.....sem fyrr.

    Er Ísland lýðræði? Kosið á fjögurra áranna frestinum, svo allar stefnuskrár sviknar...og beitt forringja-ræði (sbr. Stalín, Franco, Berlusconi)...Er Ísland lýðræði? Hvað ætlar liðið að druslast á 17. júní? Verður það trúða-, tossa- eða undirfatasýning skækjanna fyrir AGS. Þvílíkir vesalingar, gungur og druslur sem þetta lið er...og með Jóhönnu fríkið , Össur og Co. með í hækju-sýningunni. Verður Mr. Franek ekki örugglega á svæðinu, Steingrímur og þau öll verða örugglega öll í keng fyrir framan Mr. Franek. Boðin og búin. Kannski Mr. Flanagan mæti líka...noh...noh...það verður þá væntanlega blysför kaldastríðsflakanna til að hylla meistarann.

    Já, satt segirðu Ágúst, það þarf uppgjör í Vg, pólitíska hreinsun skósveina alþjóða kapítalismans og blóð-sugu græðgispúkanna.

    1.5.2010, kl. 2:39 | #

  2. Guðmundur Jónsson skrifar:

    VG úr ríkisstjórn! STRAX!

    2.5.2010, kl. 14:28 | #

  3. Sigurður Jónsson skrifar:

    Ekki getur höfundur verið stoltur af þessari grein. Ekkert nema yfiborðskenndir frasar og blaður en engin greining eða tilraun til þess að sýna að hann hafi kynnt sér málin. Ekkert til málanna að leggja.

    Félagar í VG hljóta að vera glaðir yfir því að þessi hafi gengið úr skaftinu.

    2.5.2010, kl. 14:34 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Aðsendar greinar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica