Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Árni Þór og allir hinir

25.4.2010 20:04 Kristján Hreinsson

kristjan

Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður, fulltrúi vinstrimanna og bókstaflega einn af þeim sem hve mestrar hylli njóta hjá flokkseigendafélagi VG, er einn af þeim sem seldu bréf á nákvæmlega réttasta augnablikinu. Og þetta gerði okkar ágæti vinstrimaður, líklega með öreiga allra þjóða sér við hlið. Hann hagnaðist um helling og svo situr hann bara áfram sem fulltrúi vinstrimanna á Alþingi Íslendinga.

 

Árni Þór hafði á þessum tíma aðgang að upplýsingum sem flestum viðskiptavinum banka og sparisjóða var ekki leyft að skoða. Hann seldi stofnfjárbréf með miklum hagnaði. En VG krafðist þess á sínum tíma að slík bréf mættu menn ekki braska með. Stjórnmálamenn fengu aðgang að þessum bréfum og alltaf var ráð fyrir því gert að þeir mættu selja en þá einungis á verði sem miðaðist við það að menn fengju útlagðan kostnað auk verðbóta. Já, VG vildi aldrei að menn bröskuðu með þessi bréf. En Árni Þór Sigurðsson virðist hafinn yfir siðareglur vinstrimanna.

Þessi maður er ekkert annað en framsóknarmaður í felulitum vinstrimanns. Hann stökk fram einsog lifandi haugsuga þegar hann sá gróðavon í sukkinu í kringum sparisjóðina. Hann braut reglur sem félagar hans börðust fyrir.

Hrunið er veruleiki og skýrslan góða upplýsir margt. Þó er það á hreinu að menn munu reyna að fela þá slóð sem sýnt getur hvernig vissir einstaklingar fengu forgang og seldu á „rétta“ augnablikinu, á meðan öðrum hlotnaðist sá vafasami heiður að horfa á peningana sína verða hruni að bráð.

Reyndar er engu líkara en það séu samantekin ráð hjá þeim sem hér öllu stýra, að gæta þess grandgæfilega að mútuþegum verði hlíft við öllum skakkaföllum. Við sem horfumst í augu við þessa staðreynd verðum að krefjast þess að allir þingmenn, sem létu glepjast og gerðust boðberar spillingarinnar, segi af sér. Við verðum að krefjast þess að rannsakað verið til hlítar hvernig útvaldir einstaklingar fengu að selja bréf sín á „heppilegasta“ augnablikinu.

 Árni Þór Sigurðsson er einn af þeim mönnum sem ættu ekki að hika við að skammast sín. Hann á að segja af sér þingmennsku.

 Það væri eiginlega við hæfi að fólk neyddi formann VG til að tjá sig um þetta mál. Hér er nefnilega um það að ræða. að sá flokkurinn sem hvítþvegnasta skjöldinn segist hafa, eyði öllum vafa – gangi keikur fram og sýni Árna Þór að heiðarleikinn er beittasta vopn þeirra sem standa vörð um hagsmuni heildarinnar.

Kannski er réttast að nota hér fleyg orð manns sem þekktur er fyrir margt annað en heiðarlegustu vinnubrögð veraldarsögunnar: „SVONA GERIR MAÐUR EKKI“.

Senda grein

Athugasemdir (20)

  1. S.Á. skrifar:

    Ég veit ekki í hvaða sparisjóði Árni átti stofnfjárbréf. En hafi það verið í SPRON lái ég honum ekki að losa sig við þau strax, ef hann gat fengið fyrir þau það fáránlega yfiverð, sem einhverjir snillingar settu á SPRON, þegar sparisjóðnum var fleytt á markaði. Rannsaka þarf verðmatið á SPRON sem sakamál. Hvernig gat nokkrum manni dottið í huga að meta verðmæti hans hátt í hundrað milljarða króna? Þetta verðmat sló mig strax sem út úr kú. Svo hefur örugglega verið um fleiri.

    26.4.2010, kl. 1:10 | #

  2. Haraldur Ingi Þorleifsson skrifar:

    @ S.Á: Árni átti vissulega í SPRON. Ég er alveg sammála þér um allt sem þú segir að öðru leyti en þegar kemur að þætti Árna.

    Spurningin er ekki endilega hvort hann hafi átt að selja eða ekki á þessum tímapunkti. Málið snýst um það að stofnfjárbréfakerfi sparisjóðanna var aldrei ætlað að verða að mögulegri gróðaleið. Enda var það þannig að leitað var til mektarfólks í samfélaginu og það beðið um að taka þátt í að byggja sjóðina upp. Framlag þeirra var í raun hugsað sem samfélagslegt framlag.

    Það gerist síðan að ákveðinn hópur sér þarna leik á borði og ákveður að þetta fé þurfi nauðsynleg hirði. Hirði sem geti hirt allt féð. Það byrjað því ákveðið brask með þessi bréf enda alveg ljóst að ef það væri hægt að breyta þeim í hlutabréf þá væru þau mun meira virði en þessu samfélagslegu stofnbréf.

    Síðan gerist það að fjölmargir þeirra, sem höfðu í krafti stöðu sinnar í stjórnmálum verið boðin stofnbréf, ákveða að selja þessi bréf með miklum hagnaði. Þar er siðferðisbresturinn orðinn að veruleika hjá þessu fólki og því miður var Árni Þór einn þeirra.

    Ef, eins og Árni segir sjálfur, þetta hefur verið gert af prinsipp ástæðum. Til að mótmæla braskvæðingu þessara bréfa. Þá voru honum margar leiðir færar. Hann hefði getað selt bréfin, tekið af þeim sitt upphaflega framlag auk verðbóta, og síðan gefið söluhagnaðinn til einhverra verðugra félagasamtaka. Það hefði verið prinsipp leiðin.

    Það er hinsvegar ekkert prinsipp fólgið í því að stela peningum sem sannanlega þér voru aldrei ætlaðir.

    26.4.2010, kl. 5:51 | #

  3. Kristján Hreinsson skrifar:

    S.Á. Það sem ég er að ræða um er að maðurinn féll í þá gryfju sem þú virðist vilja elta hann í. VG barðist fyrir því að menn bröskuðu ekki með þessi bréf. Árni Þór sveik málstað sem bandamenn hans vildu standa vörð um. Þetta er ekki spurningin um að skilja vel að menn hafi viljað losna við bréf. Þetta er spurningin um að halda tryggð við loforð.
    VG getur ekki krafist þess að fólk í öðrum flokkum geri hreint fyrir sínum dyrum ef flokkseigendafélagið vill á sama tíma slá skjaldborg um óheilindi Árna Þórs Sigurðssonar.
    Þetta er kjarni málsins.

    26.4.2010, kl. 9:20 | #

  4. Pétur Örn Björnsson skrifar:

    @Kristján Hreinsson

    Ég er hjartanlega sammála þessum orðum þínum:

    \"VG getur ekki krafist þess að fólk í öðrum flokkum geri hreint fyrir sínum dyrum ef flokkseigendafélagið vill á sama tíma slá skjaldborg um óheilindi....
    Þetta er kjarni málsins.\"

    Já, þetta er kjarni málsins - alls þess sem máli skiptir.

    26.4.2010, kl. 14:55 | #

  5. Þórhallur Ólafsson skrifar:

    Ónefnd persóna sendir Smungunni pistil um einn þingmann Vinstri grænna og fer hörðum orðum um hann. Með pistlinum er mynd af manni með hatt. Síðan blogga fjórir aðrir í framhaldinu og eru sumir innilega sammála hattaranum. Ég hefi tekið eftir því, að í ýmsum bloggfærslum hér á Smugunni eru stundum allt að því hatursfullar árásir á Vinstri græna. Ég efast stórlega um, að margir þeir, sem hér senda álit, séu fylgjandi nefndum flokki. Greinarhöfundur endar með því að vitna í uppáhaldfrasa Foringjans : Svona gerum við ekki : epplið fellur ekki fjarri eikinni.


    26.4.2010, kl. 16:02 | #

  6. Beggi skrifar:

    Ef þetta er rétt hjá þér Kristján sem ég efast ekki um, er þarna um óeðlilega eignamyndun að ræða og ber að meðhöndla sem slíka. Þarna verða allir að sitja við sama borð, Árni, Össur og fleiri og í þessu tilviki taka sér Ingibjörgu Sólrúnu til fyrirmyndar.

    26.4.2010, kl. 18:04 | #

  7. Ágúst Valves Jóhannesson skrifar:

    Flott grein, spillingin lifir greinilega í öllum flokkum. Árni Þór á, siðferðisins vegna(sé þá eitthvað) að segja af sér þingmennsku tafarlaust!

    Mér er alveg sama að fólk græði, það má græða milljarð ofan á milljarða en tapi einhver á því þá segi ég stopp. Í dag þarf ríkið að lána og endurfjármagna sparisjóðina og SPRON er einn af þeim. Hvað gerist? Það bitnar á velferðarkerfinu. Í dag þarf að skera niður á landsspítalanum upp á 5 milljarða. Hvernig væri ef Árni Þór léti arðinn renna til þess starfs?

    26.4.2010, kl. 19:07 | #

  8. guðmundur jónsson skrifar:

    Af hverju má Árni Þór ekki græða á stofnfjáreign sinni. Ég sé ekki að hann hafi nokkurn svikið, áherslur hans í stjórnmálum hafa alltaf verið hægra megin við miðju. Frjálst markaðskerfi hefur verið hans draumaland.

    26.4.2010, kl. 20:48 | #

  9. tryggvi skrifar:

    Orið vel þreytt þetta ofríki flokkseigenda klíkunnar hans Steingríms. Við þurfum nýjan formann í VG. Burt með þetta lið í kringum Steingrím.

    26.4.2010, kl. 21:15 | #

  10. Bjarni Jóhannsson skrifar:

    Það er mikilvægt að VG láti ekki bara pólitíska andstæðinga sína um að verjast rannsóknarskýrslunni. Það er um að gera að finna eitthvað sem fulltrúar VG þurfa að svara fyrir. Ekki láta neitt kjurt liggja. Og ef það finnst ekki þá er best að búa það bara til því ekki má VG eftir liggja.

    Reyndar er ekki fjallað um Árna Þór í skýrslunni en það má alveg finna eitthvað sem tengist öðrum þingmönnum, t.d. dæmis þeim sem sátu í stjórnum lífeyrissjóða. Ætlar nafnlausi greinasmiðurinn með hattinn að athuga það?

    27.4.2010, kl. 8:22 | #

  11. S.Á. skrifar:

    Ég bið forláts. Vissi ekki að Sparisjóðirnir hefðu verið mektarmannaklúbbur. Hins vegar virðist eitt hafa farið framhjá þeim sem blogga hér í nafni vandlætingar: Það var búið að ákveða að breyta þessu mektarmannakerfi yfir í hlutafélagsform. Hvaða afstöðu sem menn hafa til þess gjörnings, stend ég við það, að þeir sem ekki seldu strax, hafa ekki skilið, hvílíkur 2007 gjörningur verðmatið á SPRON var ÞEGAR SPARISJÓÐNUM VAR FLEYTT Á MARKAÐI, ÞVÍ ÞAÐ VAR SVO SANNARLEGA GERT. Glæpurinn fólst í því að gera SPRON að hlutafélagi, ekki að selja stofnfjárbréf sín, þegar það var orðinn hlutur.
    Ég tek fram, að ég er ekki í stuðningsmannaklúbbi Steingríms J, ef menn kynnu að vilja fara hér í dilkadrátt. Mér hefur þótt Árni alltof fylgispakur Steingrími, þegar sá síðarnefndi hefur viljað ana útí ógöngur, hvað sem tautar eða raular.

    27.4.2010, kl. 8:49 | #

  12. Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar:

    Komið þið sæl
    Mér finnst þessi pistill gott innlegg í umræðuna. Árna er líkt við framsóknarmann og þá langar mig að velta því aðeins upp hvað er VG. Flokkur sem er í samstarfi við AGS, sækir um aðild að ESB, er búinn að skora á útrásarvíkingana að koma með fé sitt sem þeir hafa rænt og fjárfesta aftur á Íslandi, ætla að byggja álver í Helguvík og kannski á Húsavík, ætlar ekki að ríkisvæða bankana aftur né breyta fjármálakerfinu, ætlar að leyfa starfsemi einkasjúkrahúsa og hefur ekki mikið að hnýta í óvopnaðar herflugvélar svo framarlega sem þær verða löglega skráðar í Íslandi.
    Er þetta vinstri flokkur? Ég segi þetta hægri krataflokk og því er það svolítið kómíst ef greining Kristjáns er rétt að Árni sé framsóknarmaður og VG er hægri krataflokkur þá er þetta ansi mögnuð blanda.
    En ef Árni væri samkvæmur sjálfum sér myndi hann gefa gróða sinn á þessari sölu til líknarmála.

    27.4.2010, kl. 10:31 | #

  13. Guðmundur Jónsson skrifar:

    Hver er þessi Guðbergur Egill Eyjólfsson? Er hann grínari?

    Það er engu líkara en að hann telji sig búa í landi þar sem VG hefur alræðisvald yfir því hvernig vindar blása um alla haga og grundir. Nei, við búum í lýðræðissamfélagi þar sem lýðræðið fær sem betur fer enn að ráða, a.m.k. á fjögurra ára fresti og sérstök tilefni þökk sé forseta vorum.

    Hverjar voru lýðræðislegar niðurstöður síðustu Alþingiskosninga?

    VG fékk 21,68% fylgi á landsvísu og 14 þingmenn.
    Samfylkingin fékk 29,79% fylgi og 20 þingmenn.
    Sjálfstæðisflokkurinn fékk 23,70% fylgi og 16 þingmenn.
    Framsóknarflokkurinn fékk 14,8% fylgi og 9 þingmenn.
    Borgarahreyfingin fékk 7,22% og 4 þingmenn.

    78, 32% kjósenda kusu ekki VG. 59 af 63 þingmönnum er ekki frá VG.

    Vegna þess að við búum við lýðræði en ekki alræði eins flokks þá ræður VG ekki öllu um hvort jörðin snýst réttsælis eða rangsælis.

    En Guðbergur Egill er væntanlega bara grínari að reyna að draga fram fáránleika umræðunnar. Vel gert hjá þér.

    27.4.2010, kl. 12:08 | #

  14. Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar:

    Sæll Guðmundur
    Ég er ábyggilega svo lítill grínari stundum en ekki hvað þessi málefni varðar.
    Ég er bóndi og nemandi við Háskólann á Akureyri og var formaður Vg á Akureyri þangað til ég sagði af mér nú seinni part vetrar vegna fyr nefndra atriða og ólýðræðislegra vinnubragða innan VG. Ég veit hvernig þetta virkar.
    Varðandi úrslit síðustu kosninga þá felast svikin við lýðræðið í því að VG gaf sig út fyrir allt aðra stefnu en hreyfingin hefur svo iðkað í ríkistjórninni. Hefur alls ekki fylkt eftir þeim góða anda og stefnu sem flokkurinn stóð fyrir í stjórnarandstöðu. Heldur virkilega einhver að vg í stjórnarandstöðu myndi mæla með samstarfi við AGS, aðildarumsókn að ESB, einkavæðingu bankanna ofl. ofl...... Ég var gabbaður til að kjósa VG.
    Fyrir mér er allur trúverðuleiki farinn gagnvart VG. VG var stofnað sem verkfæri vinstri manna til þess að koma vinnstri stefnunni á framfæri og fylgja henni svo eftir. Sú hefur ekki orðið raunin og verkfærið því gagnslaust til þess sem því var ætlað að gera og því verður einfaldlega að taka sér annað verkfæri í hönd og vona að það reynist betur.

    27.4.2010, kl. 13:45 | #

  15. Jakob Þór Haraldsson skrifar:

    Tek undir orð þín, sérstaklega finnst mér sannleikurinn koma fram er þú segir m.a.: \"Þessi maður er ekkert annað en framsóknarmaður í felulitum vinstrimanns.\" Frábærlega vel orðað - kannski þarna sé kominn fram Björn Ingi þeirra VG...lol...lol..????

    kv. Heilbrigð skynsemi (www.fun.blog.is)

    27.4.2010, kl. 14:09 | #

  16. Guðmundur Jónsson skrifar:

    Já Guðbergur Egill, mikið væri nú gott ef VG væri enn í stjórnarandstöðu. Þá værum við laus við ESB vitleysu, AGS, álverin og allt þetta.

    27.4.2010, kl. 15:45 | #

  17. Ólafur Sveinsson skrifar:

    Hvenær seldi Árni Þór???

    27.4.2010, kl. 18:12 | #

  18. Haraldur Ingi Þorleifsson skrifar:

    @Þórhallur Ólafsson

    Ég hef alltaf kosið VG síðan hann varð til. Bara svo það sé á hreinu þá styð ég hann ennþá til góðra verka og ég styð þessa ríkisstjórn. Upp að vissu marki þó og ég áskil mér rétt til að gagnrýna það sem mér finnst vera gagnrýnivert. Vinur er sá sem til vamms segir. Gagnrýnisleysið í þjóðfélaginu er held ég það sem varð okkur að falli. Flokksaginn náði að þagga niður eðlilega umræðu sem á að vera innan stjórnmálaflokka.

    ----

    @Bjarni Jóhannsson

    Það er reyndar enginn nafnlaus greinasmiður. Hún er birt með nafni og mynd.

    Hvað viðkemur öðrum þingmönnum, t.d. þeim sem sátu í stjórnum lífeyrissjóða þá sé ég ekki að neinn sé heilagur. Það má alveg ræða þau mál líka og ég hvet þig til að koma með upplýsingar og málefnalega gagnrýni um þá sem þú telur að eigi heima á þeim lista. Það væri þá hægt að taka afstöðu til þeirra.

    En ég sé ekki að ef einhver annar hefur mögulega brotið af sér að þá komi það Árna Þór og því máli sem er hér til umræðu eitthvað við.

    ----

    @S.Á

    Ég er eins og áður segir fullkomlega sammála þér í því að það að SPRON hafi verið einkavætt með þeim hætti sem það var gert var mikill glæpur. Þar var ég svo sannarlega sammála þingflokki VG sem barðist mjög hart gegn þeim gjörningi.

    En það breytir því ekki að Árni Þór seldi sín bréf með mjög miklum hagnaði ásamt fjölmörgum öðrum og tók þar með þátt í glæpnum.

    Hann hefði vel getað selt bréfin og gefið ágóðan eða jafnvel bara gefið bréfin ef honum fannst þetta brjóta gegn sínu siðferði. Það gerði hann hinsvegar ekki, hann seldi bara bréfin og hirti hagnað upp á að ég held 15 milljónir.

    ----

    @Guðmundur Jónsson

    Þú bendir réttilega á að VG er ekki með alræðisvald hér á landi. En á móti kemur að hann er annar af tveimur flokkum sem sitja í ríkisstjórn landsins. Flokkurinn ber því ábyrgð á því sem þessi ríkisstjórn gerir, eða gerir ekki.

    27.4.2010, kl. 19:08 | #

  19. Guðmundur Jónsson skrifar:

    Já Haraldur VG er einmitt annar af tveimur flokkum sem sitja í ríkisstjórn. Þú ert skarpari en grínarinn Guðbergur.

    27.4.2010, kl. 22:30 | #

  20. langbest skrifar:

    Ég vil uppreisn gagnvart VG því þessi flokkur er að leiða þjóðina í torfkofa aftur.

    28.4.2010, kl. 0:07 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Aðsendar greinar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica