Stöndum vörð um velferð barna!
„Borgarstjórn samþykkir að árið 2010 verði tileinkað velferð barna í Reykjavík.“ Það er gríðarlega mikilvægt að kjörnir fulltrúar í borgarstjórn Reykjavíkur muni að þeir samþykktu allir þessa tillögu frá borgarfulltrúum Vinstri grænna þann 5. janúar síðastliðinn.
En það er ekki nóg að samþykkja tillögur. Þetta eru ekki bara orðin tóm skrifuð á blað og gleymd. Á bakvið samþykkt af þessu tagi felst ákveðið viðhorf. Það viðhorf allra borgarfulltrúa í Reykjavík að ekki sé hægt að gefa afslátt af velferð barna. Þess vegna er brýnt að tillögunni sé fylgt eftir í allri ákvarðanatöku innan borgarinnar.
Nú þegar hefur þessi ákvörðun haft jákvæðar afleiðingar fyrir börnin í borginni. Til dæmis með þremur nýjum stöðugildum til að sinna fleiri tilkynningum til Barnaverndar Reykjavíkur. En betur má ef duga skal. Dæmin sýna að velferð barna fer hrakandi í þeim samfélögum þar sem efnahagslegt ástand er slæmt. Atvinnuleysi og fjárhagsáhyggjur bitna ekki bara á foreldrum, þau bitna á heilum fjölskyldum ekki síst börnum.
Börn þurfa meiri stuðning innan leik- og grunnskóla en ekki minni. Sérkennsla og ýmis úrræði þarf að efla, ekki leggja niður. Efla þarf frístundastarf með börnum, ekki draga úr því. Það má ekki líðast að börn geti ekki stundað tómstundir vegna fátæktar, það getur aukið félagslega einangrun og félagslegan vanda þeirra. Gjaldfrjálsar og næringarríkar máltíðir í grunnskólum auka einnig velferð barna. Það á ekkert barn að þurfa að leita til hjálparsamtaka með foreldrum sínum. Það á ekki að líðast í siðmenntuðu samfélagi að börn standi í röð fyrir ölmusu.
Ekki er hægt að tala um að standa vörð um velferð barna á sama tíma og skorið er enn meira niður í leik- og grunnskólum borgarinnar að ógleymdum frístundaheimilunum og félagsmiðstöðvunum . Velferð barna í Reykjavík kostar pening, pening sem borgin hefur ekki efni á að spara. Við getum ekki gefið afslátt af velferð barna.

Skrifa athugasemd