Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Vinstristjórnin stefnir að einkavæðingu bankanna

Fjármálastofnanir eru ein af grunnstoðum samfélagsins

24.6.2009 17:39 Aðsent - Einar Ólafsson

einar-olafsson

3. desember 1999 var tekið til umræðu á Alþingi stjórnarfrumvarp um sölu á 15% hlut í Landsbankanum og Búnaðarbankanum. Í ræðu um frumvarpið sagði formaður hinnar nýstofnuðu Vinstrihreyfingar – græns framboðs, Steingrímur J. Sigfússon, meðal annars:

„Kenningar eru settar fram án þess að þær þurfi að rökstyðja, því meiri einkavæðing því betra. Alltaf er talið af hinu góða að koma hlutunum úr eigu ríkisins án tillits til aðstæðna eða hver á í hlut. Þannig er þetta mál rekið. Enginn greinarmunur er gerður á fyrirtæki í samkeppni, prentsmiðju eða ferðaskrifstofu, sem ríkið seldi hér á árum áður og var að mörgu leyti eðlilegur hlutur, eða hvort komið er að undirstöðufjármálastofnunum þjóðarinnar, fjarskiptastofnunum eða jafnvel stofnunum í mennta- og heilbrigðiskerfinu. Þetta er kredda, ofstæki ættað úr smiðju Margrétar Thatcher og hennar líkra“ (leturbreyting mín).

Einkavæðingarstefna vinstristjórnarinnar

Rúmum 9 árum seinna, 1. apríl 2009, var Steingrímur J. Sigfússon enn formaður Vinstrihreyfingarininar – græns framboðs, en jafnframt var hann þá orðinn fjármálaráðherra. Þá voru hinir einkavæddu bankar hrundir og rústirnar í komnar í hendur ríkisins. Þá er sagt í vefmiðlinum Visir.is að þá um morguninn hafi hann í svari við fyrirspurn sjálfstæðismanna á fundi í fjárlaganefnd sagt „engin áform um einkavæðingu bankanna.“  Dregur þó kannski aðeins úr, því haft er eftir honum orðrétt: „Og alls ekki með sama hætti og árið 2002. Sú hörmungarsaga verður ekki endurtekin.“

22. júní 2009 mælti hann svo sem fjármálaráðherra fyrir frumvarpi til laga um Bankasýslu ríkisins. Á vefmiðlinum Mbl.is 23. júní er haft eftir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra „að ríkið eigi ekki að eiga bankana deginum lengur en nauðsynlegt sé vegna endurskipulagningar þeirra“ og stefnt sé „að því að búið verði að einkavæða bankana aftur“ þegar Bankasýsla ríkisins verði lögð niður eftir fimm ár. Svo virðist enda vera samkvæmt frumvarpi fjármálráðherra.

Í 4. grein frumvarpsins, lið i, segir um fyrirhuguð verkefni Bankasýslu ríkisins: „Að gera tillögur til fjármálaráðherra um hvort og hvenær tilteknir eignarhlutir í fjármálafyrirtækjum verða boðnir til sölu á almennum markaði...“ og í lið j „Að undirbúa og vinna tillögur um sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum.“

Samkvæmt 9. grein er gert ráð fyrir að stofnunin hafi „lokið störfum eigi síðar en fimm árum frá því að hún er sett á fót og verður hún þá lögð niður,“ og í athugasemd með þessari grein er sagt: „Ekki er ætlunin að þetta fyrirkomulag verði til frambúðar heldur ráðgert að ríkið losi um eignarhald sitt á fjármálafyrirtækjum þegar tækifæri gefst og að eignarráð og eftirlit með eignarhlutum í fjármálafyrirtækjum sem hugsanlega verða áfram á hendi ríkisins eftir þessi tímamörk verði með hefðbundnum hætti.“ Sem sagt: hugsanlega verða einhverjir eignarhlutar skildir eftir.

Þessi stefna, að einkavæða bankana, hugsanlega að einhverjum eignarhlutum undanskildum, er áréttað víðar í athugasemdum við frumvarpið.

Hlutverk og eðli fjármálastofnana

Munurinn á afstöðu Samfylkingarinnar og Vinstri grænna til einkavæðingar bankanna var sá að síðarnefndi flokkurinn var á móti einkavæðingunni en sá fyrrnefndi einungis á móti aðferðinni við einkavæðinguna. Væntanlega á nú að standa einhvern veginn öðruvísi að einkavæðingunni og verður nú æ minna sem greinir þessa tvo flokka að. 

En hefði ekki verið tækifæri nú til að greina og ræða hlutverk og eðli fjármálastofnana og síðan út frá því að móta stefnu um hvernig eignarhaldi og rekstri er best fyrirkomið?

Mín meining er að fjármálastofnanir séu ein af grunnstoðum samfélagsins, eins og við sjáum best af því að endurreisn fjármálakerfisins er forgangsatriði hjá stjórnvöldum. Fjármálastofnanir sinna mikilvægri grunnþjónustu í samfélaginu. Þær veita athafnalífi almennings og fyrirtækja ákveðna grunnþjónustu og þær taka fé þeirra til geymslu og veita þeim lán. Slíkar stofnanir eiga ekki að hafa að markmiði hámarksarð einstaklinga (hluthafa) heldur á að reka þær á félagslegum grundvelli með hagsmuni samfélagsins og einstakra viðskiptavina að leiðarljósi.

Bankarnir sýsla með peninga, geyma þá, lána, flytja. Mikilvægt markmið fyrirtækja í einkaeigu, einkum og sér í lagi stórfyrirtækja sem er í eigu hluthafa, sem eingöngu eiga hlut í fyrirtækinu vegna gróðavonar, en ekki til dæmis vegna áhuga á bankastarfsemi, er að hámarka hagnað. Þótt sú viðleitni skapi kannski ákveðinn kraft, þá hefur hún líka sínar neikvæðu hliðar, ekki síst hjá fjármálastofnunum þar sem fjármálabrask er nærtæk leið til hagnaðar. Slíkur hagnaður er í raun ekki annað en gripdeildir í það fjármagn sem bankarnir hafa aðgang að umfram aðra.

Af þessum sökum er mikilvægt að bankarnir séu reknir á félagslegum grunni þar sem almannahagsmunir eru í fyrirrúmi. Vissulega er hægt að setja einkareknum bönkum ýmsar skorður með regluverki en tilhneigingin verður eigi að síður að setja hagsmuni hluthafanna í fyrirrúm – og liðka svo regluverkið þeim í hag.

VG hefur aldrei samþykkt að einkavæða bankana

Hefði ekki verið nær að gera ráð fyrir því í frumvarpinu að þessi Bankasýsla starfaði meðan verið væri að vinna að framtíðarskipan bankamála og taka sér tíma í það. Ef niðurstaðan yrði, eftir slíka skoðun, að rétt væri að einkavæða bankana, þá væri það á grundvelli mótaðrar stefnu sem tæki mið af framtíðarhagsmunum samfélagsins. En ég er hræddur um að margir kjósendur núverandi stjórnarflokka hafi ekki ætlast til að það yrði eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar að lögfesta 5 ára áætlun um einkavæðingu bankanna.

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, sem lögð var fyrir flokksráðsfund VG 10. maí, er hvergi getið um að fyrirhugað sé að einkavæða bankanna þó ýjað sé að þeim möguleika að einkaaðilar komið að einhverju leyti að rekstri banka: „Jafnframt mun ríkisstjórnin marka skýra eigendastefnu þar sem fram komi framtíðaráherslur ríkisins sem eiganda bankanna og hvernig henni verður framfylgt. Markmið þess er að styrkja faglegan, gagnsæjan og traustan grunn undir aðkomu hins opinbera að atvinnulífinu. Meðal annars verði kveðið á um hvernig eignarhaldi bankanna verður hagað, hugsanlegri eignaraðild erlendra kröfuhafa og sýn á dreift eignarhald á bönkunum til framtíðar.“

Í ályktun landsfundar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs 20.-22. mars 2009 var ekki sagt beint að allir bankar skyldu vera í almannaeigu en lagt til að „ríkisbönkunum verði fækkað með sameiningu og verði hluti bankakerfisins í eigu ríkisins til að tryggja hagsmuni almennings“ og ennfremur að „bankarnir móti sér samfélagslega ábyrga stefnu.“

Mér finnst ekki ólíklegt að einhverjir einhverjir flokksmenn vildu fá að ræða það áður en formaður flokkins leggur fram frumvarp um einkavæðingu bankana. Við skulum vona að þetta frumvarp verði ekki samþykkt fyrir boðaðan flokksráðsfund 28.-29. ágúst.

Sjá einnig grein mína Bankar í þágu samfélags í Smugunni 29. maí

Senda grein


Aðsendar greinar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica