Jónsvökulist
Á morgun hefst Jónsvaka, ný listahátíð sem verður haldin í fyrsta sinn í miðbæ Reykjavíkur og stendur alla helgina. Nafnið stendur þó á gömlum merg, en áður fyrr voru dagurinn fyrir Jónsmessu og Jónsmessunóttin sjálf nefnd einu nafni Jónsvaka.
Stefna aðstandenda Jónsvöku er að stefna saman ungum og efnilegum listamönnum úr helstu geirum listarinnar í hjarta Reykjavíkur og efla þannig þáttöku ungs fólks í listalífi landsins, gefa þeim kost á að koma listsköpun sinni á framfæri og lífga í leiðinni upp á sumarið í miðborginni.
Þá verður þriggja daga tónleikadagskrá á NASA þar sem fram koma Hjálmar, Hjaltalín, Ensími, Árstíðir, Seabear, Bloodgroup, Kimono, Ólafur Arnalds, Mammút, Agent Fresco, For a Minor Reflection, Sudden Weather Change, Rökkurró, Foreign Monkeys, Hudson Wayne, Sin Fang og Útidúr.
Öll dagskráin er frí – fyrir utan tónleikadagskrá á NASA, þar aðgangur að allri tónleikadagskránni (armband) er 2.900 krónur, en miðaverð við hurð á hvert kvöld er 1500 krónur. Opnunarhóf Jónsvöku verður í Hinu húsinu á morgun, fimmtudag, kl. 15.


Skrifa athugasemd