Eurovision-dans við Perluna í kvöld
Ef þú hefur hug á að komast í sjónvarpið þegar Eurovision-keppnin verður sýnd núna í lok mánaðar þá geturðu mætt upp að Perlu klukkan níu í kvöld, mánudagskvöld. Þar verður tekinn upp sérstakur Eurovision-dans undir stjórn dansarans Birtu Björnsdóttur.
Fyrsti hálftíminn fer í að læra dansinn, sem síðan verður tekinn upp. Alls taka átta þjóðir þátt í gjörningnum og dansa þær allar við sama lagið, myndbrot frá löndunum átta verða svo klippt saman í eitt 8 mínútna myndband sem sýnt verður áður en símakosningin fer fram í úrslitum keppninnar.


Skrifa athugasemd