Vefrit um pólitík og mannlíf
3. september 2010

Fegurð Fjallabræðra

30.11.2009 15:04 Tónlist

fjallabraedur-hopur

Þvílíkt upphaf á aðventu.

Í gær hóf hinn alvöru vetur innreið sína í borgina og það gerðu Fjallabræður líka. Útgáfutónleikar þeirra fóru fram fyrir fullu húsi í Háskólabíói.

Hughrif er fyrsta orðið sem kemur upp í hugann.

Fjallabræður eru ákaflega fagrir. Og þá er ég ekki að tala bara um líkamlegt atgervi - sem er reyndar ekkert slor - heldur hafa þeir svo fallega nærveru, orku og útgeislun að hvaða freðýsa sem er bráðnar með blik í auga. Fjallabræður eru af öllum stærðum og gerðum, allskonar menn á öllum aldri. En það er ástríðan og einlæg gleðin sem sameinar þá.

fjallabraedur-halldorGlettni kórstjórans Halldórs Gunnars var yndisleg. Það var honum að þakka hversu mikil nálægð myndaðist milli kórsins og hljómveitarinnar og gestanna. Fáranlega skemmtilegur gaur með sérstaklega heillandi sviðsframkomu – eins og þeir allir reyndar, bæði í kór og hljómsveit.

Unnur Birna Björnsdóttir var eina konan á sviðinu og mundaði fiðluna af mikilli snilli. En áhorfendur þurftu að gleyma þeim hugmyndum sem þeir höfðu um fiðluleikara því Unnur kúvendi þeim öllum. Þvílík rokkpía. Hún dansaði um sviðið, veigraði sér ekki við að henda sér niður á hnén og samspilið milli hennar og bræðranna var magnað. Hún var eins og límið sem öllu hélt saman.fjallabraedur-unnur

Fjallabræður sungu eitt jólalag - Hó - sem er hressilegasta jólalag fyrr og síðar. Það mun örugglega hljóma á mörgum heimilum á aðventunni. Gott ef jólahreingerningin á bara ekki eftir að vera skemmtileg aldrei þessu vant – með Fjallabræður á fullum styrk.

Þegar Magnús Þór Sigmundsson steig á svið ætlaði allt vitlaust að verða. Magnús tók ástfóstri við Fjallabræður við fyrstu sýn fyrir nokkru og skal engan undra. Hann líkti þeim við náttúruafl sem er kannski hin eina rétta lýsing. Orkan sem leystist úr læðingi þegar þeir sungu Freyju var stórfengleg. Vestfirska blóðið hefur augljóslega að geyma þannig kraft að varla er hægt að skýra hana með mannlegum mætti.

Það er eiginlega ekki hægt að gera upp á milli laganna sem sungin voru, öll voru þau dásamleg og snertu öll við einhverri taug áhorfenda.

Þegar Ísland er land þitt var sungið var þó ánægjuleg tilbreyting að fá sæluhroll af hrifningu í stað þess að fá kjánahroll af þjóðrembu eins og fram að þessu hefur verið tilfellið hjá undirritaðri. Í rauninni mikill sigur hjá Fjallabræðrum að geta flutt lagið á þann hátt að þeir sem á hlusta fíli sig ekki eins og örgustu þjóðernissinna.

Fólk gekk úr salnum með bros á vör; „feelgood“ stemmningin í algleymingi. Ég fer að láta þessari lýsingarorðasúpu lokið en það er eitt sem ég vil koma á framfæri:

Upplifunin af tónleikunum slík að það væri synd og skömm að sýna þá ekki sem víðast. Því legg ég til að í stað gospeltónleika Fíladelfíu verði tónleikar Fjallabræðra sýndir í Ríkissjónvarpinu um jólin. Boðskapur þeirra er fagur og hreinn. Þeir eiga þessvegna mikið betur við á jólum en tónleikarnir á vegum Fíladelfíusafnaðarins. Þar kraumar undirniðri mismunun sem á ekki að gera hátt undir höfði með því að sýna tónleika á vegum safnaðarins í sjónvarpi allra landsmanna.

Fjallabræður í stað Fíladelfíu. Hamingja í stað helgislepju.

Katrín Rut Bessadóttir


Myndir: Jóhann Ágúst

Senda grein

Athugasemdir (3)

  1. hahNokKayaddy skrifar:

    Hello all. And Bye.
    <a href=http://www.humblevoice.com/genericcialistadalafil>generic cialis tadalafil</a>

    20.3.2010, kl. 8:19 | #

  2. VoloBiaffaf skrifar:

    &lt;a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1662174/&gt;about inderal&lt;/a&gt; , buy inderal online

    7.6.2010, kl. 1:40 | #

  3. kictEntaica skrifar:

    &lt;a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669214/&gt;inderal dosage information&lt;/a&gt; , what kind of drug is inderal
    &lt;a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669727/&gt;inderal and weight gain&lt;/a&gt; , inderal 80mg
    &lt;a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669891/&gt;inderal red face&lt;/a&gt; , inderal med

    7.6.2010, kl. 21:28 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica