Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Efasemda-Danir og vampírubarrokk

Erlendar plötur sem þú mátt ekki missa af:  1. hluti

Tónlist

no-and-maybes

Þótt íslenskir fjölmiðlar standi sig almennt ágætlega í því að fjalla um erlenda tónlist er þeirri umfjöllun oftar en ekki stjórnað af markaðsöflum sem þvinga vilja upp á okkur fjöldaframleitt vinsældapopp og nýjustu afurðum nafntogaðra listamanna sem muna mega fífil sinn fegurri. Þetta gerir það að verkum að gífurlegur fjöldi listamanna nær aldrei eyrum fólk þrátt fyrir að skapa tónlist sem gjaldgeng væri á hverju heimili. Smugan sér það því sem hlutverk sitt og skyldu, sem sjálfstæður miðill, að kynna fyrir lesendum sínum frábæra tónlist utan alfaraleiðar.

NoAndTheMaybes- No AndThe Maybes

no-and-maybesFrændur vorir Danir afreka það annað slagið að geta af sér bæði áhugaverð og áheyrileg bönd. No And The Maybes tilheyra svo sannarlega þeim flokki en sveitin sú, sem gaf út sína fyrstu samnefndu plötu fyrr á árinu, spilar svokallað „chamber pop“ sem m.a. er bragðbætt er með tilvísunum í jafn ólíka listamenn og Gerry and the Pacemakers og Echo and the Bunnymen. Þeir Troels Tarp, Anders Wiedemann og Mikkel Bagge, þríeykið sem sveitina skipa, halda manni hugföngnum með frumlegum og grípandi tónsmíðum sínum og á öllu ljóst að hér afar eigulegur gripur á ferð.

Tenglar

Vampire Weekend - Vampire Weekend

wampire-weekendFrá Brooklyn kemur ein allra áhugaverðasta sveit síðustu ára sem, líkt og danskir kollegar þeirra sem minnst var á hér að ofan, gáfu út sína fyrstu samnefndu plötu á árinu og flytja einnig það sem kallað er „chamber pop“. Mesti munurinn á þessum sveitum tveimur er hinsvegar sá að Vampire Weekend stíga skrefinu lengra en No And The Maybes hvað útfærslu og flutning á þessari vanmetnu tónlistarstefnu varðar. Segja má að tónlist þeirra sé í raun líkari tónlistarstefnu sem kom fram á hippatímabilinu og kallast „Baroque Pop“ þar sem popp eða rokksveit er tryggilega studd af strengjasveit og jafnvel semballeikara. Vampire Weekend notfæra sér bæði til hins ýtrasta en blanda saman við klassíkina áhrifum úr afrískri dægurlagatónlist og 60‘s garage pönki með undraverðum árangri. Ofan á þetta bætist svo smitandi unggæðingsháttur hins týpíska háskólarokkbands og úr verður algerlega einstök plata og jafnvel plata ársins ef út í það er farið.

Tenglar


Egill Harðar

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica