Engin bylting
Tónlistarrýni 3.5 / 5
Kings of Leon – Only by the Night
Kings of Leon skipa: Caleb Followill, Nathan Followill, Jared Followill og Matthew Followill
Netsíða: kingsofleon.com
Hljómsveitin Kings of Leon spratt fram á sjónarsviðið árið 2003 með plötunni Youth and Young Manhood. Þarna var á ferðinni nýtt band með ferskan hljóm. Þeir voru ekki eins og allar hinar indígrúpparnar sem tröllriðu markaðnum á þessum tíma, "The" grúppurnar svokölluðu, heldur var tónlistin þeirra einhvers konar hvíthyskis-sveitalubba-bílskúrsrokk sem var engu að síður mjög grípandi og jafnvel eilítið dansvænt. Það mætti segja að þeir hafi verið suðurríkjaútgáfa af The Strokes. Síðan þá hefur stjarna þeirra farið hækkandi með hverri plötunni en það er fyrst núna sem þeir eru farnir að nálgast það að kallast stórstjörnur. Ég hef verið aðdáandi síðan ég heyrði fyrst í þeim um 2004 en svo virðist sem ansi margir í kringum mig séu að uppgötva þá fyrst núna. Það er frábært að fólk sé loksins að taka við sér og fatta hversu góðir þeir eru. Ég er samt enn á þeirri skoðun að frumburðurinn sé toppurinn á ferli þeirra, líkt og með margar aðrar hljómsveitir. En það er ekki þar með sagt að nýja platan sé léleg, langt í frá. Kings of Leon hafa þroskast og þróað hljóm sinn í gegnum árin og nýja platan er þroskað verk sem batnar með hverri hlustun. Síðasta platan, Because of the Times, tók skrefið út úr bílskúrnum og yfir á stóra sviðið og Only by the Night fer enn lengra í þá átt. Ungæðishátturinn og hráleikinn sem einkenndi fyrstu plötuna, og að einhverju leyti aðra plötuna líka, er að mestu horfin. Strákarnir eru orðnir eldri og þroskaðri, enda voru þeir aðeins stráklingar í kringum tvítugt þegar fyrsta platan kom út.
Only by the Night er mjög melankólísk og tregafull plata og Kóngarnir eru orðnir pródúseraðri en áður. Tónlistin hefur ekki breyst það mikið í eðli sínu, þeir viðhalda ennþá sínum hljómi, en þeir eru þó ekki að hjakka í sama farinu eins og vill vera. Stuðið sem einkenndi fyrstu plötuna er næstum alveg horfið og melankólía er það sem einkennir þessa plötu eins og heyrist strax í fyrsta laginu, "Closer", sem byrjar á tregafullum rafrænum nótum. Þetta er plata um þrá og eftirsjá. Depurð og ákveðin nostalgía jafnvel er einkennandi gegnum plötuna en hún er líka full af grípandi laglínum, eins og t.d. í laginu "Sex on Fire" sem nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir, og heildarhljómurinn er kraftmikill. Það sem helst má finna að plötunni er að hún er kannski svolítið einsleit, lögin eru ekki sérlega fjölbreytt og það er ekki verið að gera neitt nýtt hérna. Lögin virka vel á meðan maður hlustar á þau og fá mann til að raula með en þau eru þó flest ekkert rosalega eftirminnileg. Það vantar aðeins upp á þetta "magic touch" sem gerir plötur að meistarverkum.
Kings of Leon eru farnir að jaðra við það að vera svokallað "Anthem Rock" band á borð við U2, The Killers og Muse. Nema bara meira töff. Eitt sem hefur þó ekki breyst er rödd söngvarans Caleb Followill, þessi sérstaka rödd er ekki að allra smekk en mjög einkennandi fyrir hljóm Kings of Leon. Hljómsveitin væri bara alls ekki sú sama með öðrum söngvara. Það sem einkennir góða söngvara að mínu mati er ekki endilega að þeir séu með fullkomna rödd, þeir mega jafnvel verið eilítið falskir, heldur er það karakterinn og tilfinningin sem þeir leggja í sönginn, og rödd Followill hefur mikinn karakter og sérstöðu og það er mikil tilfinning á bak við sönginn. Hann virkilega meinar það sem hann er að syngja. En hann hefur líka öfluga hljómsveit á bak við sig, tónfræðilega séð er ekkert byltingarkennt við tónlist Kings of Leon, en þeir spila á hljóðfærin sín af öryggi og gleði. Þetta er tónlist sem einkennist af grípandi melódíum, mikilli innlifun og krafti.
Bestu lögin: Sex on Fire, Manhattan, I Want You
Atli Sigurjónsson
Fyrri plötur King of Leon:
- Youth and Young Manhood- 4 / 5
Frábært byrjendaverk, góð blanda af trega og gleði sem fær mann til að dilla bossanum og laglínurnar límast í heilanum. California Waiting er eitt af lögum áratugarins. - Aha Shake Heartbreak- 3,5 / 5
Fínasta önnur plata sem þjáist ekki af hinu fræga "sophomore slump". Engin snilld en fátt sem finna má að. - Because of the Times - 3 / 5
Kings of Leon hafa fært sig úr bílskúrnum og þroskast eilítið. Líklega sísta platan þeirra, ekki eins grípandi og hinar, en engu að síður fínasti gripur.
