Niðurskurður menningar á Akureyri
Menningarlífið á Akureyri hefur blómstrað síðustu ár en nú eru blikur á lofti því tónleikastaðir og veitingastaðir eru eð leggja upp laupana og mikill niðurskurður til menningarmála á Akureyri stendur fyrir dyrum.
Það virðist sem svörtustu spár manna um að Menningarhúsið Hof sé að soga til sín allt fjármagn sem sé ætlað menningu í bænum séu að verða að veruleika, og óveðursskýin hrannast upp.
Veitingastaðnum Friðrik V. í Listagilinu hefur verið lokað og Friðrik Valur, einn eigandi staðarins, hefur gagnrýnt bæjaryfirvöld fyrir það hvernig staðið er að útboðsmálum fyrir veislur á vegum bæjarins. Einnig hefur hann gagnrýnt hvernig staðið sé að því að setja upp veitingastað í Menningarhúsinu Hofi í samkeppni við starfandi veitingamenn í bænum.
Tónleikastaðurinn landsfrægi Græni hatturinn er að hrökklast úr húsnæðinu í miðbænum vegna hækkunar á leigu en Haukur Tryggvason hefur á nokkrum árum byggt staðinn upp í það að vera einn vinsælasti tónleikastaður landsins.
50% niðurskurður á bæjarlistamanni
Starfslaun Bæjarlistamanna á Akureyri verða skorin niður um 50% og einungis einn listamaður fær laun í sex mánuði í stað tveggja eins og verið hefur mörg undanfarin ár. Áður höfðu launin verið til heils árs og veitt einum listamanni. Mánaðalaun bæjarlistamanns á Akureyri hafa auk þess ekki verið hækkuð að krónutölu í um áratug og nema enn 190.000 krónum sem verktakalaun. Til samanburðar má nefna að starfslaun listamanna nema þó 266.000 kr. á mánuði. Þau voru reyndar aukin á þessu ári mitt í niðskurðinum enda lítur ríkisstjórnin svo á að þetta sé atvinnuskapandi aðgerð og góð fjárfesting fyrir ríkið sem muni skila sér hratt út í þjóðfélagið aftur. En viðhorf bæjarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar á Akureyri eru önnur.

Joris Rademaker bæjarlistamaður Akureyrar 2007 sýnir nú í Listasafninu á Akureyri. / Mynd: Völundur Jónsson.
Ketilhúsið til sölu?
Það er auk þess á stefnuskránni hjá nokkrum frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins, þar á meðal er fyrrverandi bæjarstjóri Sigrún Björk Jakobsdóttir, að selja húseignir Akureyrarbæjar í Listagilinu. Ketilhúsið sem gert var klárt fyrir tónleika, ráðstefnur, fundi og myndlistarsýningar fyrir nokkrum árum og einnig annað fjölnotahús Deiglan sem nýst hefur fyrir smærri viðburði, tónleika og sýningar. Hótelhaldarar og aðrir hafa sýnt áhuga á að kaupa þessi hús en óvíst er hvað verður eftir af menningu í þeim ef svo fer.
Allt þetta er að gerast á sama tíma og verið er að undirbúa opnun á Menningarhúsinu Hofi sem farið hefur langt fram úr áætlun og þá er ekki verið að tala umnokkrar milljónir heldur milljarða. En sem fyrr hafa sumir stjórnmálamenn meiri áhuga á að byggja sér minnisvarða heldur en að styðja grasrótina og hinar skapandi greinar.
Mynd af Akureyri er fengin af vef Menningarhússins Hofs.
HH

