Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Í minningu Horst

Derrick leysir lífsgátuna

16.12.2008 11:57 Kaffistofan

derrick01
derrick

Hér á kaffistofu menningardeildar hefur ritstjórnin verið óhuggandi síðasta sólarhringinn í kjölfar fráfalls sjónvarpshetju æsku okkar, Horsts Tapperts, sjálfs Inspektor Stephan Derrick. VHS-tækið á skrifstofunni er ónýtt þannig að ekki er hægt að spila alla gömlu Derrick-þættina aftur og því brá ritstjórn á það ráð að leggjast í þýska þúskjásleit til þess að rifja upp verk meistarans. Þar mátti sjá myndbönd aðdáenda með þessum hryggðarorðum; Derrick ist weg :(:(:( – og ef einhver hefur verðskuldað þrjá sorgarkalla þá var það félagi Horst.

Ritstjórnin minnist ferðar á sjónvarpssafnið í Berlín í haust þar sem fyrsti þátturinn af Derrick var rifjaður upp – sérstaka athygli vakti raddstyrkur lögregluforingjans og það hve glettilega mikið Harry Klein svipar til Ewan McGregor. Horst talaði þýsku eins og alltaf átti að tala hana, með trausta rökhyggju blandaðri óumdeildri virðingi og samúð með skjólstæðingum sínum.

Svo þúskjáumst við áfram, finnum rímix af Derrick og Bob Marley og Derrick og Snoop Dog, Derrick á ítölsku, upptökur frá næturklúbb í Utrecht sem heitir því fróma nafni Aus der Reihe Derrick (hugsið ykkur bara, nú er bæði hægt að djamma á Bjarna Fel og hoppa svo upp í einkaþotuna (þær eru á útsölu þessa dagana) og djamma á Derrick) og hlustum á magnaða rokkupptöku af Derrick-laginu frá Dresden, „Kraut Rock City.“

En loks finnum við upptökuna sem við vorum að leita að. Þetta er frá síðasta Derrick-þættinum, þar sem við sjáum þá félaga Derrick og Harry Klein í góðra vina hópi. Þeir hafa orðið gamlir saman á meðan ritstjórn fullorðnaðist og við sjáum Derrick kveðja. Svo gengur hann niður strætið og undir hljóma undurfagur söngkonu sem Smugan kann ekki að nefna, og eftir að lögregluforinginn hverfur í fjarskann þá sjáum við framan í tárvott andlit Harry Klein sem speglar okkar eigið.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica