Spáð í bókmenntaverðlaun
Eftir miklar bollalengingar og krystalskúlupússun hefur Smugan komist að niðurstöðu. Þetta eru þær fimm bækur sem eiga eftir að fá tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í kvöld - en þau verða afhent á Háskólatorgi í beinni útsendingu í Íslandi í dag á Stöð 2.

- Skuggamyndir úr ferðalagi - Óskar Árni Óskarsson
- Hvert orð er atvik - Þorsteinn frá Hamri
- Ofsi - Einar Kárason
- Rökkurbýsnir - Sjón
- Skaparinn - Guðrún Eva Mínervudóttir
Og í sannleika sagt lítur maður yfir þennan lista og þykist nokkuð viss - þangað til maður skoðar annan fimm bóka lista, lista af bókum sem virkar nærri því jafn sannfærandi ...
- Vonarstræti - Ármann Jakobsson
- Konur - Steinar Bragi (að því gefnu að hún hafi verið lögð fram)
- Vetrarsól - Auður Jónsdóttir
- 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp - Hallgrímur Helgason
- Rán - Álfrún Gunnlaugsdóttir
Menningarritstjórinn skal þó hundur heita ef tilnefningarnar verða ekki úr þessum hóp. En ef svo fer þá má líkast til þakka hundsnafngiftina óvæntu vali bóka á borð við Segðu mömmu að mér líði vel eftir Guðmund Andra Thorsson, Algleymi eftir Hermann Stefánsson, Dimmar rósir eftir Ólaf Gunnarsson, Leitin að barninu í gjánni eftir Guðberg Bergsson, Hvernig ég hertók höll Saddams eftir Börk Gunnarsson, Loftnet klóra himin eftir Þórunni Erlu-Valdimarsdóttur, Fiðrildi, mynta og spörfuglar lesbíu eftir Magnús Sigurðsson eða Steindýrin eftir Gunnar Theodór Eggertsson.
Hinn flokkurinn, fræðirit og bækur almenns eðlis, virkar hins vegar ekkert sérstaklega sterkur í ár. Sigurstranglegasta bókin fyrirfram, Saga af forseta, er skyndilega dottin út af borðinu ef marka má vægast sagt misjafnar viðtökur og því skýtur Smugan á þessar - þótt engin þeirra virðist dæmigerð verðlaunabók:

- Íslenskar kynjaskepnur - Sigurður Ægisson og Jón Baldur Hlíðberg
- Nýja Ísland: listin að týna sjálfum sér - Guðmundur Magnússon
- Glíman við Guð - Árni Bergmann
- Gott á pakkið - Níels Rúnar Gíslason
- Lárus Pálsson leikari - Þorvaldur Kristinsson
Og hefur eftirtaldar til vara:
- Með seiglunni hefst það, saga Benedikts Davíðssonar - Haukur Sigurðsson
- Tabú - ævisaga Harðar Torfa - Ævar Örn Jósepsson
- Slæðusviptingar - Halla Gunnarsdóttir
- Tvískinna - Davíð A. Stefánsson
- Ég tek það gilt - Vésteinn Ólafsson
- Óður til steinsins - Aldís B. Björnsdóttir
En kommentakerfið er opið, sá sem spáir þar best á inni bjór hjá undirrituðum - af því gefnu að viðkomandi sé getspakari en undirritaður, vitaskuld.
Ásgeir H Ingólfsson
Athugasemdir (5)
-
Auður H Ingólfsdóttir skrifar:
Hvað með bókina Magneu, eftir Sigmund Erni í flokknum fræðibækur og rit almenns eðlis? Ég skýt á hana.
Svo er spurning hvort bókin hans Barkar, Hvernig ég hertók höll Saddams, eigi ekki heima í síðari hópnum? Held þetta byggi á reynslu hans fyrir friðargæsluna í Írak, og sé ekki skáldsaga. -
Ásgeir H Ingólfsson skrifar:
Jú, bókin hans Barkar flokkast væntanlega sem skáldævisaga - og það er allur gangur á því hvorum megin þær eru flokkaðar á endanum.
-
Oddný skrifar:
En Frá manni til manns eftir Harald Ólafsson? Einhver búinn að lesa hana?
-
Sigurður Svavarsson skrifar:
Minni á Amtmanninn á einbúasetrinu eftir Kristmund Bjarnason frá Sjávarborg og Bauka-Jón eftir Jón Þ. Þór, sem báðar hljóta að koma vel til greina í fræðiritaflokknum. Einnig Dögun vetnisaldar - Róteindin tamin, eftir Þorstein Inga Sigfússon.
-
Sigrún skrifar:
Mér finnst það segja alla söguna um þessi Íslensku bókmenntaverðlaun að hvorug þeirra ágætu skáldkvenna sem tilnefndar eru til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs á árinu 2009 voru tilnefndar til verðlauna í sínu eigin heimalandi. Þetta eru þær Auður Ólafsdóttir og Sigurbjörg Þrastardóttir sem eru vel að tilnefningu til norrænna bókmenntaverðlauna komnar. Til hamingju!


Skrifa athugasemd