Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Bíóalda í Grundarfirði um helgina

4.3.2010 13:49 Bíó

NorthernWave

Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave verður haldin í þriðja skiptið í Grundarfirði á Snæfellsnesi um helgina. Sýnd verða 75 tónlistarmyndbönd og stuttmyndir frá 20 löndum en hátíðinni bárust í kringum150 myndir frá 40 mismundandi löndum.

Það verður frítt inn á alla viðburði og heimamenn á Grundarfirði efna til fiskisúpukeppni meðal bæjarbúa. Keppnin verður haldin á laugardagskvöldið (6.mars) og koma gestir hátíðarinnar til með að smakka á súpunum og greiða atkvæði um þá bestu. Boðið verður uppá ókeypis tónleika bæði kvöldin en hljómsveitirnar Bárujárn,Quadruplos, DLX ATX og DJ Unnur Andrea munu sjá um tónlistina. Valdís Óskarsdóttir, klippari og leikstjóri, situr fyrir svörum á laugardeginum og sýnir brot úr nýjustu mynd sinni Kóngavegi 7. Ragnar Bragason er gestadómari hátíðarinnar í ár en Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri og Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld sitja með honum í dómnefnd en þau hafa verið í dómnefndinni frá upphafi. Hátíðin hefur farið stækkandi á hverju ári en í fyrra fylltist öll gisting á svæðinu,bændagisting, farfuglaheimili Grundarfjarðar og Hótel Framnes.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica