Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Gísli Snær skólastjóri í Singapúr

1.3.2010 0:52 Bíó

Gisli-Snaer

Gísli Snær Erlingsson leikstjóri er sjálfsagt þekktastur hérlendis fyrir myndir á borð við Benjamín dúfu og Ikingut, en undanfarin áratug hefur hann búið í Tókýó og starfrækt þar framleiðslufyrirtæki sem hefur unnið að gerð heimildamynda og auglýsingamynda auk þess að dreifa erlendum myndum í Japan. En hann hefur nú verið ráðinn skólastjóri Puttnam-kvikmyndaskólans í Singapúr, sem er hluti af Lasalle-listaháskólanum.

Það var kvikmyndaframleiðandinn David Puttnam, maðurinn á bak við endurreisn breskra kvikmynda snemma á níunda áratugnum (en þá framleiddi hann myndir á borð við Chariots of Fire, Local Hero, The Killing Fields og The Mission) sem stofnaði þessa deild fyrir fjórum árum og var það í fyrsta sinn sem boðið var upp á BA-nám í kvikmyndagerð í Singapúr.

Í samtali við vefritið IcelandCinemaNow segir Gísli að hann hlakki til að byggja upp kvikmyndanám á heimsmælikvarða. „Þetta eru mjög spennandi tímar fyrir asíska kvikmyndagerð, hún hefur vaxið mjög ört og hefur mikið að gefa heimi kvikmyndanna. Ríkisstjórnin í Singapúr hefur undanfarin ár stutt mjög vel við bakið á skapandi greinum og því er hér frábært tækifæri til þess að gera spennandi hluti.“

Um þessar mundir er Gísli að leggja lokahönd á 21:21, heimildamynd um nauðsyn þess að aðlaga menntakerfið að framtíðartilvist íbúa 21. aldarinnar. Hér má sjá stiklu myndarinnar.

2121 Trailer from 21Foundation on Vimeo.

Texti: Ásgeir H Ingólfsson

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica