Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Eyrnabíturinn ógurlegi kjaftar frá

8.7.2009 5:15 Bíó

tyson
3 / 5tyson

Tyson
Leikstjóri: James Toback

Ef það er einn boxari sem líklegt er að hérumbil allir þekki þá er það mögulega Mike Tyson, þótt Muhammed Ali veiti honum eflaust harða samkeppni, og hann er svo sannarlega verðugt efni í heimildamynd. Fyrir utan að hafa verið heimsmeistari í boxi þá hefur hann gert margt annað sér til frægðar, ber þar að helsta að nefna að sitja inn í fangelsi í þrjú ár fyrir nauðgun og að hafa bitið eyrað af andstæðing sínum (og seinna meir hótað að snæða börn annars andstæðings).  Þessi mynd James Toback er í raun bara eitt langt viðtal við Tyson þar sem hann lætur allt flakka. Hann fer í gegnum ævi sína, frá barnæsku og til nútímans, og segir frá hvernig hann kynntist boxi, hvernig það var að vera heimsmeistari og segir sína hlið á nauðgunarmálinu og eyrnabitsmálinu.  Í stuttu máli fáum við ævisögu Mike Tyson frá hans sjónarhorni á aðeins 80 mínútum. Þú þarft ekki að lesa neina bók um hann, þessi mynd dugir.

En spurningin er: er þetta góð kvikmynd? Í rauninni gæti þessi mynd allt eins átt heima í sjónvarpi. Það er lítið sem sker hana frá mörgum sjónvarpsheimildamyndum. Hún skiptist á milli viðtala við Tyson og gamalla fréttamynda og er ekki mikið um tæknilegar tilraunir, auk þess sem hún er tekin á stafræna myndbandsvél. Það helsta sem Toback gerir til að lífga upp á myndina er að nota stundum svokallað “split-screen” þar sem myndin skiptist upp í nokkra smærri skjái, og hljóðið “overlappar.” Þetta er stíleinkenni hjá Toback sem hann hefur notað í mörgum af leiknum myndum sínum.

En þótt myndin sé kannski ekki mjög kvikmyndaleg þá skilar hún sínu engu að síður nokkuð vel og tekst að halda athyglinni allan tímann. Tyson er magnaður karakter og þó hann stígi ekki beint í vitið hefur hann athyglisverða sýn á lífið og hefur margt að segja. Hann er oft í mótsögn við sjálfan sig, en það hefur ákveðið skemmtanagildi út af fyrir sig. Myndinni tekst að veita góða innsýn í manninn á bak við boxarann og er um leið ágætis dæmi um hvað það gerir manni að vera ríkur og frægur á unga aldri. Frægðin er fallvölt og Mike Tyson er skýrt dæmi um það.

Atli Sigurjónsson

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica